Moka jarðvegi yfir eldinn á Álfsnesi Gunnar Reynir Valþórsson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 14. janúar 2019 09:58 Frá vettvangi í Álfsnesi. vísir/vilhelm
Töluverður eldur logar enn á urðunarstaðnum á Álfsnesi en eldurinn blossaði upp í morgun eftir að hann hafði kraumað í dekkjakurli um helgina. Eldurinn logar ofan í gryfju fyrir rusl á urðunarstaðnum og er þar töluverður eldmatur vegna dekkjakurlsins. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er eldurinn ekki að aukast en þó nokkur vinna er framundan við að moka jarðvegi yfir eldinn. Verið sé að bæta tækjum við til að halda áfram að moka yfir og er búist við að slökkvistarf haldi áfram eitthvað fram eftir degi. „Við fórum í þetta á milli fimm og sex í morgun og vindáttin var nú þannig þegar þeir komu að þeir áttu erfitt með að komast að þessu, en það er betra núna,“ sagði Bernódus Sveinsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi fyrr í morgun er hann var staddur á vettvangi. Alls eru níu slökkviliðsmenn á vettvangi frá tveimur stöðvum ásamt verktökum til að reyna að ráða niðurlögum eldsins en mikinn reyk leggur frá staðnum.Fréttin var uppfærð klukkan 11:04.Töluverður eldur logar á staðnum.vísir/vilhelmEldurinn logar ofan í gryfju á urðunarstaðnum.vísir/vilhelmStórvirkar vinnuvélar eru notaðar við slökkvistarfið.vísir/vilhelmAlls níu slökkviliðsmenn eru á staðnum ásamt verktökum til að reyna að ráða að niðurlögum eldsins.vísir/vilhelm
Slökkvilið Umhverfismál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira