Aron negldi boltanum fjórum sinnum upp í samskeytin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2019 17:30 Aron Pálmarsson lætur vaða í leiknum á móti Króatíu. Vísir/EPA
Aron Pálmarsson skoraði sjö mörk í fyrsta leik íslenska landsliðsins á HM í handbolta í ár og flest þeirra með frábærum þrumuskotum. Aron skoraði öll sjö mörkin sín með langskotum en Króatar skoruðu allir samanlagt níu mörk með langskotum í leiknum. Mótshaldarar halda utan um það hvert leikmenn skjóta boltanum og það er fróðlegt að skoða aðeins „skotkort“ Arons frá því í Króatíuleiknum. Fjögur af sjö mörkum Arons enduðu nefnilega upp í bláhorninu sitt hvoru megin við markmann Króata. Aron var skaut heldur ekki niður í hornin í þessum leik því hin skotin hans komu í mitt markið sitthvorum megin við markmanninn. Aron skoraði fyrstu þrjú mörkin sín í leiknum í mitt markið, vinstra eða hægra megin, samkvæmt skráningu tölfræðinga IHF. Fyrsta skotið hann upp í bláhornið var negla sem mældist á 115 km hraða og kom íslenska liðinu yfir í 12-10. Síðustu fjögur mörk Arons komu öll með skotum upp í skeytin samkvæmt tölfræðiskráningu mótshaldara. Hér fyrir neðan má sjá hvert skotin hans Arons fóru og enn neðar er yfirlit yfir mörkin hans. Mynd/IHFMörkin hans Arons Pálmarsson í Króatíuleiknum samkvæmt skráningu IHF: 1) Langskot í mitt markið hægra megin (1-0 fyrir Ísland) 2) Langskot í mitt markið vinstra megin (2-1 fyrir Ísland) 3) Langskot í mitt markið hægra megin (6-5 fyrir Ísland) 3) Langskot upp í bláhornið hægra megin (12-10 fyrir Ísland) 4) Langskot upp í bláhornið hægra megin (20-21) 5) Langskot upp í bláhornið vinstra megin (26-25 fyrir Ísland) 7) Langskot upp í bláhornið vinstra megin (27-31)
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira