Markmið aðgerðanna er að ná samningum Sighvatur Arnmundsson skrifar 2. mars 2019 07:15 Þau Sólveig Anna Jónsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson standa í ströngu þessa dagana. Fréttablaðið/Eyþór „
Meginmarkmiðið með þessu öllu saman er auðvitað fyrst og fremst að reyna ná samningum. Við vonumst til að þetta aðgerðaplan bíti það fast að við fáum samningsaðila að borðinu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, um áætlun um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir. VR og Efling birtu í gær aðgerðaáætlun um næstu aðgerðir félaganna. Eins og fram hefur komið er aðgerðunum beint gegn stórum aðilum í ferðaþjónustu. Þannig munu starfsmenn félaganna hjá hópbifreiðafyrirtækjum og tilgreindum hótelum fara í verkföll. Verði aðgerðirnar samþykktar í atkvæðagreiðslu og ekki takist samningar í tíma er um að ræða sólarhrings verkfall 22. mars en síðan tæki við tveggja sólarhringa verkfall í lok mars og fjögur þriggja sólarhringa verkföll í apríl. Ótímabundið verkfall tæki svo við frá 1. maí. Ragnar Þór segist gera ráð fyrir því að atkvæðagreiðsla um aðgerðirnar hefjist snemma í næstu viku en einungis þeir starfsmenn sem aðgerðirnar munu ná til geta greitt atkvæði. Það þýðir að þátttakan þarf að lágmarki að vera 20 prósent til að atkvæðagreiðslan teljist gild. Aðspurður segist hann ekki vera kominn með endanlegar tölur yfir fjölda félagsmanna VR sem aðgerðirnar gætu náð til en líklegast sé um yfir þúsund manns að ræða. „Ég á ekki von á því að það verði bitist eitthvað um framkvæmdina en það má alveg búast við því að Samtök atvinnulífsins láti reyna á öll álitamál sama hver þau eru. Það hefur alltaf verið eðli ferlisins að það sé látið reyna á nánast allt fyrir Félagsdómi,“ segir Ragnar Þór. Það þurfi að passa upp á mörg praktísk mál í þessu ferli öllu. „Við erum fyrst og fremst að reyna að gera þetta rétt og við viljum vanda okkur. Við kvörtum allavega ekki yfir aðgerðaleysi þessa dagana.“ Ragnar segir að aðilar muni hittast hjá ríkissáttasemjara næstkomandi fimmtudag þótt fundur hafi ekki formlega verið boðaður. Samkvæmt lögum þarf að halda fund innan við tveimur vikum frá því að viðræðum er slitið en sá frestur rennur út á fimmtudaginn. Mikill meirihluti þeirra félagsmanna í Eflingu sem tóku þátt í atkvæðagreiðslu um verkfall hjá hótelþernum næstkomandi föstudag samþykktu aðgerðirnar. Af þeim 862 sem tóku þátt samþykktu 769 verkfallsboðun eða 89 prósent. Þátttaka var um ellefu prósent en Félagsdómur á eftir að skera úr um lögmæti verkfallsboðunarinnar. Er niðurstöðu að vænta um miðja næstu viku. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist gríðarlega ánægð með niðurstöðuna. „Auðvitað er alltaf gott að sjá sem mesta þátttöku en það er eðlismunur á þeirri aðferð sem við notuðum og þeim sem hafa tíðkast hér. Við settum okkur það markmið í nafni alvöru lýðræðis að tryggja það með öllum tiltækum ráðum að þær manneskjur sem myndu leggja niður störf ef til verkfalls kæmi væru þær manneskjur sem fengju tækifæri til að kjósa.“ Hún segir þennan hóp, sem sé mestmegnis samansettur af konum af erlendum uppruna, vera að senda skýr skilaboð. „Þetta er jaðarsettasti hópur vinnuaflsins á Íslandi. Það að þær sjálfar hafi gengið til atkvæða og þetta sé niðurstaðan er mjög merkilegt. Ef fólk sér það ekki þá er því ekki við bjargandi.“ Sólveig Anna segir að þeirri taktík að fara á milli vinnustaða og safna atkvæðum verði áfram beitt. Sú breyting verður þó á í tengslum við aðgerðaplanið að einungis þeir félagsmenn sem tækju þátt í verkfallsaðgerðum greiða atkvæði. Hún segist binda vonir við að aðgerðaáætlunin muni ýta við viðsemjendum. „Ég mun samt aldrei segja það sem allir segja, að það vilji enginn fara í verkfall. Ég veit að það er ósatt. Þetta er mýta sem er líka étin upp innan verkalýðshreyfingarinnar. Þetta er ein af stóru lygunum í íslensku samfélagi.“
Birtist í Fréttablaðinu Kjaramál Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira