Segir Barnaverndarnefnd Seltjarnarness hafa brugðist barni sem bjó við ofbeldi Nadine Guðrún Yaghi skrifar 2. júní 2019 18:30
Sextán ára stúlka og faðir hennar hafa kvartað til Barnaverndarstofu vegna starfa Barnaverndarnefndar Seltjarnarnesbæjar. Stúlkan er sögð hafa búið við verulega vanrækslu af hálfu móður alla ævi og að sögn lögmanns feðginanna sýna gögn málsins að nefndin hafi verið meðvituð um vandann árum saman án þess að gera viðeigandi ráðstafanir. Stúlkan hefur búið hjá móður sinni alla tíð sem er með geðhvarfasýki og glímir við áfengisvanda. Í gögnum málsins segir að móðirin hafi haft miklar ranghugmyndir um föður stúlkunnar og umgengni við barnið því ætíð verið slitrótt. Það var ekki fyrr en móðirin var vistuð á geðdeild síðasta haust að faðirinn fékk tímabundið forræði. Þá opnaði stúlkan sig um aðstæður sínar og ákváðu feðginin að leita til lögmanns. Þá kom í ljós að barnaverndarnefnd Seltjarnarness hafi ítrekað borist ábendingar um aðstæður barnsins án þess að bregðast við með fullnægjandi hætti. Fréttastofa hefur gögn nefndarinnar undir höndum. Þau sýna að þegar stúlkan var fimm ára hafi móðirin lokað sig af í nokkrar vikur og ekki látið dóttur sína á leikskólann. Nefndin hafi verið kölluð til eftir að móðirin var svipt sjálfræði og lögð inn á geðdeild. Stúlkan var vistuð tímabundið hjá móðurforeldrum og ekki var talin þörf á frekari eftirliti. Faðirinn var ekki látinn vita. Þegar stúlkan var tíu ára hafði lögregla samband við Barnaverndarstofu vegna heimilisofbeldis. Í skýrslu segir að móðirin hafi verið búin að loka sig inni í nokkra daga með stúlkunni. Stúlkan sagði í viðtali að mamma hennar hafi hvorki eldað né borðað, bara reykt. Sjálf hafi hún borðað snakk þegar maturinn kláraðist. Mamma hennar hafi talað skringilega og sagt að það væri fólk að koma út úr málverkunum. Aftur var faðirinn ekki látinn vita og í gögnum segir að það hafi verið vegna þess að barnið segðist ekki tala við hann lengur. Ekki hafi unnist tími til að kanna það frekar og stúlkan var vistuð hjá móðurforeldrum. Nefndin fékk þau tilmæli að tryggja áfram öryggi barnsins. „Á þessum tímapunkti hefði verið tími til að grípa inn í af hálfu barnaverndaryfirvalda og þá vista barnið við viðunandi aðstæður en barnaverndarnefnd að hafðist ekkert og lokaði málinu,“ segir Sævar Þór Jónsson, lögmaður.Vísbendingar um að brotið hafi verið á stúlkunni kynferðislega Nefndinni hafi áfram borist ábendingar um slæmar aðstæður barnsins, bæði frá lögreglu og föður. Það var þó ekki fyrr en síðasta haust sem barnaverndarnefnd þótti nauðsynlegt að vista stúlkuna hjá föður sínum, en þá var tekinn til starfa nýr starfsmaður hjá nefndinni. „Í kjölfarið af því að þetta mál er tekið upp aftur og það er farið að fara í gegn um gögn málsins kemur í ljós að líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi hafi átt sér stað og barnaverndarnefnd grípur þá loksins inn í með þeim hætti að kæra málið til lögreglu,“ segir Sævar Þór. Í beiðni Seltjarnarnesbæjar um lögreglurannsókn segir að fram séu komnar vísbendingar um að stúlkan hafi orðið fyrir kynferðisbrotum frá átta ára aldri af hálfu móður sinnar og sambýlismanna „Það má segja að vanrækslan hafi verið viðloðandi í fimmtán ár.“ Í beiðni til lögreglu segir einnig að stúlkan hafi búið við mikla vanrækslu af hálfu móður alla ævi. „Bæði samskipti mín við starfsmann nefndarinnar og af gögnum málsins má segja að nefndin sé búin að viðurkenna mistök í þessu máli,“ segir Sævar Þór. Í skriflegu svari til fréttastofu segir félagsmálastjóri Seltjarnarnesbæjar að starfsmenn nefndarinnar geti ekki rætt barnaverndarmál opinberlega. Feðginin hafa farið fram á að bærinn viðurkenni bótaábyrgð enda hafi nefndin átt að vera meðvituð um vanræksluna. „Við höfum líka sent beiðni til barnaverndarstofu þar sem við óskum eftir því að það verði gerð úttekt á barnaverndarnefnd Seltjarnarnesbæjar og störfum þeirra.“
Lögreglumál Ofbeldi gegn börnum Seltjarnarnes Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira