Svartar horfur
Jafnvel þótt mannkyninu takist að skipta hratt og örugglega yfir í græna orku og öll ný ökutæki í Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og Kína verði knúin grænum orkugjöfum fyrir árið 2040 er ekki hægt að halda hlýnun innan tveggja gráða. Þetta sagði í rannsókn sem orkumarkaðsgreiningarfyrirtækið Wood Mackenzie birti undir lok síðasta árs. Forsendan sem rannsakendur gáfu sér var að hlutfall endurnýjanlegrar orku ykist um ellefu prósent ár hvert fram til 2035.Teymi fræðimanna á vegum bandaríska alríkisins sem stendur að Rannsóknarverkefni Bandaríkjanna um hnattrænar breytingar (USGCRP) birti um sama leyti 1.600 blaðsíðna skýrslu um þær afleiðingar sem loftslagsbreytingar eru þegar farnar að hafa. Var þar til að mynda minnst á aukna útbreiðslu skordýra er bera hættulega sjúkdóma. Samkvæmt rannsakendum myndu Bandaríkin verða af um 500 milljörðum dala á ári vegna uppskerubrests, minnkandi vinnuaf ls og veðurofsa ef fram heldur sem horfir.

Sé horft sérstaklega til Íslands má benda á að losun gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda jókst um 2,2 prósent milli áranna 2016 og 2017. Þetta kom fram í skýrslu Umhverfisstofnunar um losun gróðurhúsalofttegunda frá því í apríl síðastliðnum. Var þar hlutur landnotkunar stærstur en á eftir fylgdu vegasamgöngur, olíunotkun fiskiskipa, iðragerjun húsdýra og losun frá kælitækjum.
Ekki öll von úti
Staðan er þó ekki ómöguleg. Rannsakendur hjá fyrrnefndri World Resources Institute komust til að mynda að þeirri niðurstöðu að hægt væri að halda hlýnun undir 1,5 gráðum ef gripið verður til stórtækra aðgerða strax. Að því er kom fram í ritrýndri grein sem birtist í Nature síðasta sumar er til dæmis þörf á um 460 milljarða dala fjárfestingu árlega næstu tólf árin til að ná þessu 1,5 gráða markmiði.Við erum enn langt frá þessari tölu, samkvæmt tölfræði sem Bloom bergNEF birti á þriðjudaginn. Fjárfesting á heimsvísu stóð í 288,9 milljörðum dala á síðasta ári. Hafði þá minnkað um ellefu prósent frá árinu 2017.
Hvað get ég gert?
Samkvæmt rannsókn sem Kimberly Nicholas og Seth Wynes hjá Háskólanum í Lundi gerðu í fyrra eru fimm stærstu einstöku ákvarðanirnar sem einstaklingur getur tekið til þess að berjast gegn loftslagsbreytingum að lifa bíllausum lífsstíl, fækka flugferðum, skipta yfir í raf bíl, nota græna orku og tileinka sér mataræði er byggir á plöntum. Nicholas og Wynes settu reyndar efst á lista sinn að eignast færri börn en sú afstaða er umdeild enda vafaatriði hvort hægt sé að skrifa ákvarðanir barna á foreldra og þá hversu lengi. 
Spurningar um hvort það skipti raunverulegu máli hvort maður sjálfur breyti því einn og sér hvað maður gerir eru algengar. Miðað við rannsóknir eins og þá sem birt var í tímariti Association for Psychological Science í september 2017 eru slíkar áhyggjur hins vegar óþarfar.
Ein tilrauna rannsakenda þá leiddi til dæmis í ljós að gestir á kaffihúsi í Bandaríkjunum sem höfðu fengið þær upplýsingar að 30 prósent Bandaríkjamanna hefðu ákveðið að draga úr kjötneyslu voru tvöfalt líklegri til að panta sér ekki kjöt.
Ábyrgð einstaklinga bliknar hins vegar í samanburði við ábyrgð jarðefnaeldsneytisfyrirtækja, að því er kom fram í skýrslu Climate Accountability Institute fyrir tveimur árum. Þótt gjörðir einstaklinga séu mikilvægar er því einnig þörf á því að bæði stórfyrirtæki og ríkisstjórnir átti sig á alvarleika málsins.
Að því er Debra Robert, einn formanna Alþjóðanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sagði við BBC þurfa allir að taka þátt í baráttunni. Einstaklingar þurfa að þrýsta á bæði ríkisstjórnir og fyrirtæki að innleiða nauðsynlegar breytingar.