Strákarnir hans Heimis hleyptu spennu í einvígið gegn HJK Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2019 20:25 Heimir er á sínu öðru tímabili með HB. vísir/vilhelm
Færeyjameistarar HB gerðu 2-2 jafntefli við HJK í Þórshöfn í seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Jafnteflið dugði strákunum hans Heimis Guðjónssonar skammt því þeir töpuðu fyrri leiknum í Helsinki, 3-0. Finnsku meistararnir unnu því einvígið, 5-2 samanlagt, og mæta annað hvort Suduva frá Litháen eða Rauðu Stjörnunni frá Serbíu í næstu umferð. HB komst í 2-0 í leiknum í kvöld og þurfti þá aðeins eitt mark til að jafna einvígið. Það kom hins vegar ekki og gestirnir jöfnuðu með tveimur mörkum. Sebastian Pingel kom HB yfir á 17. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik. Á 56. mínútu skoraði Lasse Andersen annað mark heimamanna eftir sendingu frá Símun Samuelsson, fyrrverandi leikmanni Keflavíkur. Aðeins fjórum mínútum síðar minnkaði varamaðurinn Riku Riski muninn í 2-1 og einvíginu því nánast lokið. Hann skoraði svo annað mark á 77. mínútu og jafnaði í 2-2 sem urðu lokatölur leiksins. Brynjar Hlöðversson kom inn á sem varamaður hjá HB eftir að Riski skoraði sitt annað mark.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Árásin í Magdeburg: „Snertir djúpt hvað þetta var nálægt manni“ Handbolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Dagskráin í dag: Enski boltinn, íslenskur körfubolta og það besta frá Bandaríkjunum Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Englandsmeistarar Chelsea meðal liða sem vilja Cecilíu Rán Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Sjá meira