Ljósanótt fer fram um helgina og er mikil dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Ljósanótt hefur verið haldin árlega frá árinu 2000. Hápunktur hátíðarinnar er á laugardagskvöld þegar blásið er til stórtónleika á útisviði og lýsing Bergsins fer fram.
Stórtónleikar á aðalsviði frá klukkan 20:30-23:00
Stórtónleikana hefja Emmsjé Gauti og Aron Can á aðalsviðinu í kvöld þangað til Stuðlabandið tekur við klukkan 21:00. Stuðlabandið heldur uppi fjörinu í einn og hálfan klukkutíma frá klukkan til klukkan 22:30. Með þeim verða góðir gestir, þau Jóhanna Guðrún, Jón Jósep Snæbjörnsson, Salka Sól og Sverrir Bergmann. Herra Hnetusmjör spilar klukkan 22:40-23:00 og lýkur tónleikahaldinu á útisviðinu.
Þá mun flugeldasýning fara fram klukkan 22:30 og þegar henni er lokið munu ljósin verða kveikt á berginu. Þá mun Tónlistardagskrá halda áfram og Herra Hnetusmjör loka henni.
Ljósanæturballið 2019
Ljósanæturballið fer fram í Hljómahöllinni frá miðnætti og fram á rauða nótt. Því mun ljúka klukkan fjögur í nótt. Þar munu Hljómsveitin Albatross, Sverrir Bergmann, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, FM95BLÖ, Muscleboy og Sveppi Krull stíga á stokk og skemmta ballgestum.
Sunnudagsdagskrá
Margir viðburðir verða í boði á morgun, sunnudag, á Ljósanótt. Þar á meðal verður Tívolí, Ljósanæturmótið í golfi, Black Kross Tattoo heldur áfram með pop-up, Plastlaus september verður með kynningarbás, keppnin Sterkasti maður Suðurnesja 2019 verður haldin, Bubbi Morthens spilar og syngur eigin sálma og söngva í kvöldmessu í Keflavíkurkirkju og margt fleira.