
Ljósanótt

Engin vopn á Ljósanótt og Októberfest
Töluvert var um ofbeldisbrot og unglingadrykkju á Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina. Tilkynnt var um fjórar líkamsárásir og einn hátíðargestur kýldi tvo lögreglumenn í andlitið. Gestir Októberfest í Reykjavík voru töluvert rólegri.

Tvöfalda viðbúnað á Ljósanótt í kvöld
Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á Ljósanótt tónlistar- og bæjarhátíð í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Búist er við talsvert fleiri gestum á hátíðinni í kvöld og viðbúnaður lögreglu verður meira en tvöfaldaður miðað við það sem var í gær.

„Hjálpið okkur að hjálpa ykkur“
Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi Reykjanesbæjar og einn skipuleggjenda menningarhátíðarinnar Ljósanætur segir aukið viðbragð verða á hátíðinni vegna ákalls um aðgerðir til að sporna við ofbeldi meðal ungmenna.

Aukinn viðbúnaður á Ljósanótt og Októberfest
Skipuleggjendur Ljósanætur og Októberfest SHÍ ætla að auka viðbúnað í kringum hátíðirnar vegna alvarlegra atvika undanfarið í samfélaginu. Þá hefur verið ákveðið að nota málmleitartæki á öllum framhaldsskólaböllum á höfðuborgarsvæðinu. Forseti Stúdentaráðs segir mikilvægt að fólk upplifi sig öruggt.

„Okkur þykir náttúrulega miður að þetta skyldi koma upp“
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar harmar vinnubrögð lögreglunnar á Suðurnesjum gagnvart sautján ára dreng á bæjarhátíðinni Ljósanótt í Reykjanesbraut. Málið varpi skugga á hátíðina

Leita réttar síns vegna framkomu lögreglu á Ljósanótt
Mæðgin hyggjast leita réttar síns vegna framkomu lögreglunnar á Suðurnesjum á Ljósanótt í Reykjanesbæ. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir málið vera áhyggjuefni og að það sé til rannsóknar.

Vinnubrögð lögreglunnar á Suðurnesjum á Ljósanótt til skoðunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum lítur mál unglingspilts á Ljósanótt í Reykjanesbæ sem snýr að vinnubrögðum lögreglu alvarlegum augum. Móðir drengsins hefur sakað lögreglu um kynþáttahatur.

„Ég vissi ekki að svona rasismi væri til“
Ferð tveggja sautján ára drengja á bæjarhátíðina Ljósanótt í Reykjanesbæ breyttist fljótt í martröð. Þeir voru nýmættir á hátíðina þegar fjöldi lögreglumanna ýttu öðrum drengnum, sem er dökkur á hörund, upp að vegg og létu fíkniefnahund leita á honum. Mikið sjokk, segir móðir drengsins sem hætti við að fara á hátíðina eftir uppákomuna. Hún sakar lögreglu um rasisma og vill skýringar á atvikinu.

Leita allra leiða til að halda dagskrá í óveðri
Forsvarsmenn bæjarhátíðarinnar Ljósanætur í Reykjanesbæ leita nú allra leiða til að halda hátíðina samkvæmt dagskrá. Aftakaveðri er spáð næstu helgi þegar hátíðin fer fram.

Aldrei fleiri mætt á Ljósanótt
Það var sannkölluð hátíðarstemmning í Reykjanesbæ þar sem Ljósanótt náði hámarki í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn í þrjú ár sem hátíðin fer fram en henni var aflýst síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins.

Sossa segir Reykjanesið leynda perlu
Reykjanesið býr yfir einstökum náttúrutöfrum og þangað er hægt að gera frábæra ferð.

Hótaði að drepa Kamillu og fjölskyldu hennar ef hún færi
Kamilla Ívarsdóttir hefur þurft að þola gróft ofbeldi af hendi fyrrverandi kærasta síns. Hann var í mars á þessu dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir fólskulega líkamsárás á hana í október síðastliðinn. Kamilla var þá 17 ára. Hún hefur nú kært hann fyrir aðra árás.

Margt um að vera á Ljósanótt
Ljósanótt fer fram um helgina og er mikil dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Ljósanótt hefur verið haldin árlega frá árinu 2000.

Við erum öll hluti af samfélaginu
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, verkefnisstjóri fjölmenningarmála hjá Reykjanesbæ, tekst á við spennandi áskoranir í starfi sínu enda er um fjórðungur íbúa bæjarins með erlent ríkisfang.

Valdimar tók stórbrotna ábreiðu af The Winner Takes It All með ABBA
Valdirmar Guðmundsson er löngu búinn að sanna það að hann er einn allra besti söngvari landsins.

Ljósanótt aldrei tilkomumeiri
Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur aldrei verið eins tilkomumikil og nú segir menningarfulltrúi bæjarins. Yfir hundrað viðburðir séu í boði þar sem matur og menning eru í fyrirrúmi.

Bifhjólamenn þurfa að forskrá sig á Ljósanótt
Hertar öryggisreglur verða á Ljósanótt í Reykjanesbæ sem fram fer seinni hluta næstu viku. Meðal annars verður umferð takmörkuð á hátíðarsvæðinu. Krafist þess að þátttakendur í hópakstri skrái sig fyrir fram.

Ljósanótt nær hámarki í dag
Fjölbreytt dagskrá verður um allan bæ fram eftir degi sem nær hámarki á stórtónleikum á stóra sviðinu.

Mercedes-Benz með bílasýningu á Ljósanótt
Alls verða 10 bílar á staðnum og má þar nefna blæjubíl, jeppa, fólksbíla og sportbíla.

Biggi flugþjónn ósáttur við akstursbann: „Ætlum við að búast við því að allir ökumenn séu hugsanlega morðingjar?“
Birgir Örn Guðjónsson, áður þekktur sem Biggi lögga, segist ósammála lögreglustjóranum um aksturbann Fornbílaklúbb Íslands á Ljósanótt.

Fornbílaklúbburinn æfur vegna akstursbanns á Ljósanótt
Lögreglustjórinn segir ákvörðunina byggja á öryggissjónarmiðum.

Banna drónaflug og akstur bifreiða á Ljósanótt
Lögreglan á Suðurnesjum hefur bannað leyfislaust drónaflug og akstur bifreiða um Hafnargötu í Reykjanesbæ yfir Ljósanótt.

Reykjanesbær er „ekki gamli bærinn minn“
Tónlistarmaðurinn Gunnar Þórðarson vill ekki að lag hans Gamli bærinn minn verði spilaður yfir flugeldasýningunni á Ljósanótt.