Allyson Felix mun taka þátt í níunda heimsmeistaramótinu í röð og setja með því met en þetta stóð ansi tæpt hjá henni að þessu sinni.
Hinn 33 ára gamla Allyson Felix varð nefnilega móðir í fyrsta sinn fyrir aðeins tíu mánuðum síðar. Hún átti barnið með keisaraskurði.
Six-time Olympic champion Allyson Felix has been selected in the #USA team for the World Athletics Championships for a record ninth consecutive time
More: https://t.co/vKKD7MCluJpic.twitter.com/NJmJPCh6Rw
— BBC Sport (@BBCSport) September 16, 2019
Barneign Allyson Felix vakti sérstaka athygli þegar hún skrifaði opið bréf til íþróttavöruframleiðandans Nike og hafði það í gegn að íþróttakonur missi ekki styrktarsamninga sína þegar þær verða óléttar.
Allyson Felix verður í boðhlaupssveitinni í 4 x 400 metra hlaupinu. Hún reyndi að vinna sér þátttökurétt í 400 metra hlaupinu í úrtökumótinu í Des Moines í Iowa í júlí en náði því ekki.
Alls var 141 frjálsíþróttamaður valinn í bandaríska landsliðið, átta þeirra hafa orðið heimsmeistarar áður og þrettán unnu gull á ÓL í Ríó fyrir þremur árum.
Auk Allyson Felix eru heimsmeistararnir Tori Bowie, Kori Carter, Emma Coburn, Phyllis Francis, Justin Gatlin, Sam Kendricks, Brittany Reese og Christian Taylor í hóp Bandaríkjamanna.
Allyson Felix hefur unnið alls ellefu gullverðlaun, þrenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun á heimsmeistaramótum sínum í gegnum tíðina. Hún tók fyrst þátt á HM í Saint-Denis í Frakklandi 2003 en þá var hún aðeins sautján ára gömul.
Fyrstu verðlaunin vann hún í 200 metra hlaupi á HM í Helsinki 2005 (gull) en hún vann þrenn verðlaun (2 gull og 1 brons) á síðasta HM sem fór fram í London fyrir tveimur árum.
Hinn 37 ára gamli Justin Gatlin er einn af heimsmeisturunum en tognun hans í 100 metra hlaupi í Zagreb 3. september síðastliðinn var ekki alvarlega. Gatlin vann gull í 100 metra hlaupi á HM í London en það var púað á hann í verðlaunaafhendingunni þar sem Gatlin hefur fallið oftar en einu sinni á lyfjaprófi á ferlinum.
Olympian Allyson Felix is a champion through and through pic.twitter.com/oCStDkGiJc
— Business Insider (@businessinsider) September 16, 2019