Skoðun

Skýr ávinningur

Sighvatur Arnmundsson skrifar
Mögulegur fjárhagslegur ávinningur af sameiningu sveitarfélaga, miðað við tillögur um að lágmarksíbúafjöldi verði eitt þúsund árið 2026, gæti orðið allt að fimm milljarðar króna á ári. Þetta sýnir ný úttekt sem unnin var fyrir samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og kynnt á Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga fyrir helgi. Þessar tölur, sem eru auðvitað settar fram með fyrirvara um að mögulegur ávinningur skili sér, eru að mati skýrsluhöfunda varfærnismat. Það er ljóst að hér er eftir miklu að slægjast. En það er ekki bara fjárhagslegur ávinningur sem horfa þarf á, heldur einnig möguleikar og tækifæri sveitarfélaga til að eflast og dafna.

Eins og við var að búast hafa tillögur Sigurðar Inga Jóhannssonar mætt töluverðri andstöðu hjá mörgum af minnstu sveitarfélögunum. Hafa sum þeirra gengið svo langt að segja sig úr Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Meðal þeirra raka sem heyrast eru að það sé andstætt lýðræðinu að ætla sér að þvinga sveitarfélög til sameiningar með löggjöf. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, hefur bent á að það geti heldur varla talist lýðræðislegt að minnstu sveitarfélögin þurfi að útvista mörgum lögbundinna verkefna sinna.

Auðvitað væri æskilegt að sameiningar væru sjálfsprottnar en reynslan sýnir því miður að þannig gerast hlutirnir allt of hægt. Danir gáfust til að mynda upp á slíkri bið og settu lögbundinn lágmarksíbúafjölda. Það má ekki verða svo að minnstu sveitarfélögin komi í veg fyrir að fleiri verkefni verið færð yfir til sveitarfélaganna. Sterk og öflug sveitarfélög eru forsenda öflugrar landsbyggðar og þess vegna er málflutningur andstæðinga sameiningartillagnanna furðulegur. Hér er í mörgum tilfellum um viðkvæm svæði að ræða í byggðarlegu tilliti sem hafa átt undir högg að sækja.

Þótt hægt hafi gengið að sameina sveitarfélög á síðustu árum er fram undan síðar í mánuðinum mikilvæg íbúakosning í fjórum sveitarfélögum á Austurlandi. Þrjú sveitarfélaganna hafa í dag færri en þúsund íbúa og eitt þeirra færri en 250 sem gæti orðið lágmarkið frá 2022. Lykilatriði í vinnu samstarfsnefndar sveitarfélaganna er hugmyndin um svokallaða „heimastjórn“. Er þannig ætlunin að koma til móts við kröfur um áhrif heimamanna á þjónustu í nærumhverfi sínu. Sameining sveitarfélaga snýst nefnilega ekki endilega um sameiningu byggðanna sem slíkra, heldur sameiningu stjórnsýslunnar. Því fylgir auðvitað stóraukin samvinna byggðanna en einkennin þurfa ekki að tapast þótt breytt sé um nafn sveitarfélagsins.

Framtíð málsins mun ráðast á Alþingi í vetur. Í þeirri vinnu sem fram undan er þarf auðvitað að hlusta á öll sjónarmið og horfa til reynslu fyrri sameininga og læra af þeim mistökum sem gerð hafa verið. Margir hafa bent á að erfitt geti reynst að miða við einhverja eina tölu þegar kemur að lágmarksíbúafjölda í sveitarfélagi. Undir það má taka og þingmenn þurfa að skoða af fullri alvöru hvort þessar tillögur gangi of skammt. Það er hins vegar tæknilegt úrlausnarefni. Efling sveitarstjórnarstigsins hefst aftur á móti með pólitískri yfirlýsingu um stærri og öflugri sveitarfélög.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×