Skoðun

Hvar var rannsóknarblaðamennskan?

Theódór S. Halldórsson skrifar

Fjölmiðlar, ásakanirnar á hendur séra Friðriki og spurningarnar sem enn bíða svara.

Fjölmiðlar eiga ekki að vera dómstólar. En þeir eiga heldur ekki að vera bergmálshellar þeirra sem hæst tala hverju sinni.

Þegar alvarlegar ásakanir koma fram á hendur manni sem er látinn og getur ekki borið hönd fyrir höfuð sér verður ábyrgð fjölmiðla sérstaklega mikil. Þeir eiga að segja frá ásökununum, en jafnframt að rannsaka forsendur þeirra, kanna mótsagnir og gera skýran greinarmun á frásögn, mati og sönnuðum staðreyndum.

Í umfjölluninni um séra Friðrik Friðriksson vakna spurningar um hvort fjölmiðlar hafi sinnt þessum skyldum nægilega vel. Það tel ég ekki.

Bókin og heimildarmaðurinn

Haustið 2023 kom út ævisaga séra Friðriks eftir Guðmund Magnússon. Þar voru birtar alvarlegar ásakanir sem meðal annars byggðust á frásögn heimildarmanns sem nefndur var „Kristinn“ og óskað eftir að hann kæmi fram sem hann gerði ekki.

Það var sjálfsagt fréttnæmt. Fjölmiðlar höfðu fulla ástæðu til að fjalla um málið.

En hvað gerðist næst?

Hversu margir fjölmiðlar reyndu sjálfstætt að kanna frásögnina? Hversu ítarlega var leitað að samtímaheimildum, mögulegum vitnum eða upplýsingum sem gætu annaðhvort styrkt eða veikt ásakanirnar?

Og hversu skýrt var lesendum og áhorfendum sagt hvaða atriði höfðu verið staðfest með sjálfstæðum hætti og hvaða atriði byggðust fyrst og fremst á frásögn eins heimildarmanns?

Það er ekki vanvirðing við þann sem segir frá mögulegu ofbeldi að spyrja slíkra spurninga. Það er hluti af ábyrgri blaðamennsku.

Þegar mat verður að vissu

Í desember 2023 lá fyrir skýrsla sem Bjarni Karlsson og Sigrún Júlíusdóttir unnu fyrir KFUM og KFUK.

Í umræðu um skýrsluna hefur verið vísað til þess að gögn hafi verið rýr og niðurstaðan orðuð þannig að meiri líkur væru en minni á að tiltekin brot hefðu átt sér stað.

Stjórn KFUM og KFUK notaði hins vegar mun afdráttarlausara orðalag þegar hún lýsti niðurstöðunni sem hafinni yfir skynsamlegan vafa. Þarna er verulegur munur á orðalagi og því hversu mikla vissu það gefur til kynna.

Hvar voru fjölmiðlarnir sem kröfðust skýringa á þessum mun?

Spurðu þeir hvort stjórn samtakanna hefði undir höndum önnur gögn en þau sem fram komu í skýrslunni? Eða hvers vegna stjórnin taldi rétt að orða niðurstöðuna með meiri vissu en höfundar hennar?

Það hefði verið eðlilegt að fá skýr svör við þessum spurningum áður en orðalag stjórnarinnar var hafið upp sem hinni einu réttu atvikalýsingu. Hvers vegna felur stjórn KFUM/KFUK upplýsingar og segjist jafnvel hafa eytt gögnum?

Kastljós og erfiðu spurningarnar

Þann 20. desember 2023 var fjallað um málið í Kastljósi. Þar komu meðal annars fram Tómas Torfason, framkvæmdastjóri KFUM og KFUK, og Sigrún Júlíusdóttir, annar höfunda skýrslunnar.

Í síðari umfjöllun hefur verið vakin athygli á því hvernig niðurstöðum skýrslunnar var lýst í viðtalinu og hvernig þær lýsingar samræmdust því að upplýsingarnar væru að verulegu leyti ekki fengnar frá fyrstu hendi. Þetta er atriði sem vert er að skoða nánar með því að bera viðtalið sjálft saman við skýrsluna.

Fjölmiðlar eiga að spyrja gagnrýninna spurninga, ekki aðeins um það sem viðmælendur telja sig vita heldur líka um það sem þeir vita ekki.

Hvaða upplýsingar voru fengnar frá fyrstu hendi? Hvað var staðfest með öðrum gögnum? Hvað byggðist á endursögnum? Og hvaða takmarkanir fylgdu þeirri rannsóknaraðferð sem beitt var?

Þetta skiptir máli þegar almenningur reynir að átta sig á því hversu traust niðurstaðan er.

Hver leitaði að mótrökunum?

Rannsóknarblaðamennska felst ekki í því að ákveða fyrirfram að ásakanir séu réttar eða rangar. Hún felst í því að prófa þær. Bera ekki fyri sig „Gróu á Leiti“.

Þegar alvarleg ásökun hefur verið sett fram þarf að leita svara við spurningum sem kunna að reynast óþægilegar fyrir alla aðila.

Var leitað að sjálfstæðum staðfestingum? Voru aðrar frásagnir kannaðar? Var rætt við þá sem höfðu þekkingu á aðstæðum þess tíma? Voru frumheimildir skoðaðar?

Og þegar Reykjavíkurborg, Valur og Akraneskaupstaður tóku ákvarðanir um minnismerki og heiðursviðurkenningar séra Friðriks, spurðu fjölmiðlar þá hvaða sjálfstæðu gögn lágu að baki?

Eða nægði að segja frá ákvörðununum eins og þær væru eðlilegt framhald af niðurstöðu sem þegar hefði verið staðfest? Eða bara talið.

Málið er ekki búið

Árið 2026 hefur komið fram gagnrýni á meðferð málsins, meðal annars frá sagnfræðilegum og lögfræðilegum sjónarhóli. Málið hefur verið rætt á málþingi og ýmsar spurningar vaknað um rannsóknina, niðurstöðurnar og viðbrögð stofnana.

Þá vaknar önnur spurning: Hvers vegna ætti rannsóknarblaðamennskunni að ljúka þegar fyrri fréttahrinan er liðin hjá?

Ef nýjar upplýsingar, gagnrýni eða rök koma fram eiga fjölmiðlar að vera reiðubúnir að skoða málið aftur. Það á jafnt við hvort sem ný gögn styrkja upphaflegar ásakanir eða vekja efasemdir um þær.

Það er ekki hlutverk fjölmiðla að verja fyrri umfjöllun sína. Hlutverk þeirra er að leita sannleikans.

Þegar heimildir eru rýrar reynir á blaðamenn

Ég er ekki að halda því fram að fjölmiðlar hefðu átt að þegja um ásakanirnar á hendur séra Friðriki. En alvarlegar ásakanir sem jaðra við mannorðsmorð eiga rétt á vandaðri og sjálfstæðri umfjöllun. Ekki bara afhenda ásakandanum hljóðnemann.

Fjölmiðlar verða að gera meiri kröfur til sjálfra sín en að birta ásakanir, segja frá viðbrögðum og fylgja síðan eftir þeim ákvörðunum sem aðrir taka.

Rannsóknarblaðamennska er aldrei mikilvægari en þegar almenningsálitið virðist þegar hafa komist að niðurstöðu þrátt fyrir vægast sagt rýrar heimildir.

Þetta er 4 fjórða grein mín um málefni Sr Friðriks. Næsta grein mín verður 5. Grein “Þegar dómur götunnar verður að keðjuverkun”.

Höfundur er einn af drengjum Sr Friðriks Friðrikssonar.




Skoðun

Sjá meira


×