Hafði á sér eina milljón króna í reiðufé Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. desember 2019 07:25 Ökumaðurinn sem reyndi að flýja undan lögreglu var ökuréttindalaus. Vísir/vilhelm
Mikið var um umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nótt og er það sem helst ber á í dagbók lögreglu. Hátt á annan tug ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þó nokkrir voru teknir af lögreglu réttindalausir. Þá hafði einn ökumaðurinn reynt að flýja lögreglu þegar hún tendraði blá neyðarljós og ók ökumaður inn í götu af Snorrabraut á móti einstefnu. Maður var handtekinn rétt fyrir klukkan eitt í nótt á við veitingahús í hverfi 103 og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu vegna ástands. Þá kom í ljós að maðurinn hafði með sér rúma milljón króna í reiðufé. Kona varð fyrir líkamsárás rétt fyrir klukkan fimm í nótt á veitingastað í miðbænum. Maður sló konuna ítrekað í andlitið og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Þá var annar maður handtekinn í Breiðholti vegna gruns um líkamsárás, eignaspjöll og vörslu fíkniefna. Lögregla hafði afskipti af manninum fyrir utan verslunarmiðstöð í Breiðholti vegna slagsmála hans og konu. Bifreið var ekið á ljósastaur í Mosfellsbæ og lenti bíllinn síðan út af. Engin slys urðu á fólki en bifreiðin er illa farin og óökufær. Þá voru maður og kona handtekin vegna gruns um ölvun við akstur. Þau fóru ekki að fyrirmælum lögreglu og eru grunuð um ofbeldi gegn opinberum starfsmanni. Þau voru vistuð í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira