Norwich stöðvaði sigurgöngu Leicester Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. desember 2019 16:45 Pukki skoraði mark Norwich. vísir/getty
Leicester City gerði 1-1 jafntefli við nýliða Norwich City í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fyrir leikinn hafði Leicester unnið átta leiki í röð. Refirnir eru í 2. sæti deildarinnar með 39 stig, tíu stigum á eftir Liverpool. Teemu Pukki kom Norwich yfir á 26. mínútu eftir sendingu frá Emiliano Buendía. Leicester jafnaði í 1-1 á 38. mínútu þegar Tim Krul, markvörður Norwich, skoraði sjálfsmark og þar við sat. Norwich er í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar með tólf stig, þremur stigum frá öruggu sæti. Sheffield United komst upp í 5. sæti deildarinnar með 2-0 sigri á Aston Villa í nýliðaslag á Bramall Lane. John Fleck skoraði bæði mörk Sheffield United. Þetta er í fyrsta sinn sem Skotinn skorar tvö mörk í leik á ferlinum. Jack Grealish skaut í slá úr vítaspyrnu fyrir Villa á 78. mínútu. Liðið er í 17. sæti deildarinnar. Burnley vann afar mikilvægan sigur á Newcastle United, 1-0. Chris Wood skoraði eina mark leiksins með skalla á 58. mínútu. Jóhann Berg Guðmundsson er enn frá vegna meiðsla hjá Burnley sem er í 12. sæti deildarinnar, einu sæti neðar en Newcastle.
Enski boltinn Tengdar fréttir Liverpool með ellefu stiga forskot eftir sigur á botnliðinu Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool í sigri á Watford. 14. desember 2019 14:15 Fjórða tap Chelsea í síðustu fimm leikjum Bournemouth gerði góða ferð til London og vann 0-1 sigur á Chelsea. 14. desember 2019 16:45
Liverpool með ellefu stiga forskot eftir sigur á botnliðinu Mohamed Salah skoraði bæði mörk Liverpool í sigri á Watford. 14. desember 2019 14:15
Fjórða tap Chelsea í síðustu fimm leikjum Bournemouth gerði góða ferð til London og vann 0-1 sigur á Chelsea. 14. desember 2019 16:45