Stærsta stökkið í fjölda smita síðustu fimmtíu daga Atli Ísleifsson skrifar 27. maí 2020 07:25 Nú eru staðfest tilfelli í Suður-Kóreu orðin 11.256 og eru 269 dauðsföll þar rakin til Covid-19. Chung Sung-Jun
Fjörutíu ný tilfelli kórónuveirunnar voru staðfest í Suður-Kóreu síðasta sólarhringinn og er það stærsta stökk í fjölda smita á einum degi í fimmtíu daga samfellt. Í frétt Guardian segir að óttast sé að faraldurinn sé að taka við sér þar á nýju en Suður-Kórea hefur verið tekið sem dæmi um land þar sem vel hefur gengið að vinna bug á faraldrinum en þar hefur smitrakningu verið beitt með góðum árangri. Nú eru staðfest tilfelli í Suður-Kóreu orðin 11.256 og eru 269 dauðsföll rakin til Covid-19. Langflest nýju tilfellin hafa komið upp í höfuðborginni Seúl og hafa þau þegar verið rakin til næturklúbba, karíókí-staða og vöruhúss netverslunar. Þrjú smitana eru síðan rakin til fólks sem var að koma erlendis frá. Óttast er að þetta geti sett strik í reikninginn hjá landsmönnum þar sem lífið hefur verið að færast í samt lag að nýju síðustu daga og vikur. Í dag áttu til að mynda tvær milljónir skólabarna að setjast aftur á skólabekk eftir langt hlé.
Suður-Kórea Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Meira en 100 ný smit tengd næturlífinu í Suður-Kóreu 101 einstaklingur hefur nú greinst með kórónuveiruna í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, en smitin eru öll tengd tilteknu hverfi í borginni þar sem er fjöldi næturklúbba. 12. maí 2020 06:34 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira
Meira en 100 ný smit tengd næturlífinu í Suður-Kóreu 101 einstaklingur hefur nú greinst með kórónuveiruna í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, en smitin eru öll tengd tilteknu hverfi í borginni þar sem er fjöldi næturklúbba. 12. maí 2020 06:34