Nágrannar hjálpuðu við að slökkva sinueldinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júní 2020 20:28 Reykjarmökkurinn yfir svæðinu var þykkur um kvöldmatarleytið. Vísir/Sylvía
Búið er að slökkva mikinn gróðureld sem kviknaði við Ásvelli í Hafnarfirði á sjöunda tímanum í kvöld. Allt tiltækt slökkvilið og aðrir viðbragðsaðilar voru sendir á vettvang og mikinn reyk lagði yfir svæðið á tímabili. Nágrannar hjálpuðu til við að slökkva eldinn. Tilkynnt var um brunann um klukkan hálf sjö og slökkvilið kom á vettvang skömmu síðar. Um „heilmikinn“ bruna var að ræða, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Slökkvilið náði tökum á eldinum um áttaleytið og um fimmtán mínútum síðar var búið að slökkva hann. Nú er unnið að því að tryggja að ekki kvikni aftur eldur á svæðinu. Vettvangurinn er langt frá vegi og því þurfti að leggja langar slöngur frá dælubílum og að brunanum. Íbúar í nágrenninu aðstoðuðu slökkvilið við að ráða niðurlögum eldsins og notuðu svokallaðar „klöppur“ sem iðulega er beitt við sinubruna til að berja niður eldinn. Þá var nokkuð hvasst á vettvangi sem gerði brunann erfiðan við að etja. Varðstjóri gat ekki sagt til um það hversu stórt svæði var undirlagt brunanum. Fréttin var uppfærð klukkan 21:04. Vatni sprautað yfir svæðið.Vísir/Sylvía Unnið á vettvangi.Vísir/Sylvía Hvasst er á svæðinu og því erfitt að eiga við brunann.Vísir/Sylvía Reykurinn sást úr talsverðri fjarlægð fyrr í kvöld.Vísir/Sylvía
Slökkvilið Hafnarfjörður Gróðureldar á Íslandi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira