Andri kom inn á fyrir Bologna og Birkir byrjaði fyrir Brescia Ísak Hallmundarson skrifar 8. júlí 2020 23:10 Andri Fannar í leiknum gegn Inter á dögunum. getty/Mattia Ozbot
Sex leikir fóru fram í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Í tveimur þeirra komu Íslendingar við sögu. Bologna mætti Sassuolo og kom Andri Fannar Baldursson inn á sem varamaður á 74. mínútu fyrir Bologna í 1-2 tapi. Þetta var annar leikurinn í röð sem Andri fær að taka þátt í fyrir Bologna. Bologna situr í 10. sæti deildarinnar en með sigrinum fór Sassuolo upp í 8. sætið. Birkir Bjarnason byrjaði leikinn fyrir Brescia í 3-1 tapi á útivelli gegn Torino. Staðan var 0-1 fyrir Brescia í hálfleik en Torino svaraði með þremur mörkum í seinni hálfleik. Birkir var tekinn út af á 61. mínútu í stöðunni 2-1 fyrir Torino. Brescia er í næstneðsta sæti með 21 stig, sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni. Torino siglir lygnan sjó í 14. sæti deildarinnar, sjö stigum frá fallsæti. Atalanta heldur áfram sigurgöngu sinni og unnu í dag sinn níunda leik í röð í deildinni, 2-0 á móti Sampdoria. Mörk Atalanta skoruðu þeir Luis Muriel og Rafael Toloi. Atalanta er nú komið í 3. sæti, stigi fyrir ofan Inter sem á leik til góða. Þá unnu Roma og Napoli mikilvæga sigra í Evrópudeildarbaráttunni en öll úrslit dagsins má sjá hér að neðan. Öll úrslit dagsins í ítalska boltanum: Genoa 1-2 NapoliAtalanta 2-0 SampdoriaBologna 1-2 SassuoloRoma 2-1 ParmaTorino 3-1 BresciaFiorentina 0-0 Cagliari
Fótbolti Ítalski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira