Skoraði með hendinni og komst upp með það eins og Maradona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2020 16:30 Josh Grommen og mark Diego Maradona með hendinni á HM í Mexíkó 1986. Samsett/Getty
Það hefur farið lítið fyrir hendi guðs á fótboltavellinum undanfarin ár en hún lét aftur á sér kræla í mikilvægum fótboltaleik á Filippseyjum á dögunum. Margir eru búnir að bölva Varsjánni síðustu vikur á mánuði en það hefði verið betra að hafa hana til staðar í leik í Asíubikar félagsliða í knattspyrnu. Josh Grommen skoraði eitt marka Ceres–Negros FC í Asíubikarnum með hendinni og komst upp með það. Guardian vakti athygli á þessu og birti myndband með markinu eins og sjá má hér fyrir neðan. Handball goal goes unnoticed in AFC Cup https://t.co/fmkdEAvQZapic.twitter.com/cAmD1UHfcP— Guardian sport (@guardian_sport) February 12, 2020 Ceres–Negros FC vann leikinn 4-0 en mark Josh Grommen var fyrsta mark liðsins í leiknum og kom strax á fjórtándu mínútu. Grommen plataði alla með því að þykjast skalla boltann niður en í endursýningunni sást að hann missti af boltanum með höfðinu en sló hann aftur á móti lúmskt inn í markið. Leikmenn Svay Rieng frá Kambódíu mótmæltu markinu harðlega en dómararnir sáu ekkert athugavert og dæmdu markið gilt. Josh Grommen er 23 ára gamall og fæddist rétt rúmlega tíu árum eftir að Diego Maradona skoraði með hendi guðs á HM í Mexíkó 1986. Hann er líka nýkominn til Ceres–Negros frá Sukhothai í Tælandi. Það besta við þetta mark er að Josh Grommen er ekki beint þekktur fyrir að skora mörk. Hann spilar sem miðvörður og þetta var hans fyrsta mark í mjög langan tíma.
Fótbolti Mest lesið Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Jafnt í stórleiknum Fótbolti Gray hetja Tottenham Enski boltinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Spennutryllir eftir tvö burst Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Jafnt í stórleiknum Martínez skaut Inter á toppinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Sjá meira