Innlent

Áður óbirtar myndir frá eldgosinu á Heimaey sýndar á Stöð 2 í kvöld

Kristján Már Unnarsson skrifar
Frá Heimaey á fjórða degi eldgossins.
Frá Heimaey á fjórða degi eldgossins. Mynd/Ingvar Friðleifsson.

Sextán mínútna löng kvikmynd ásamt fjölda ljósmynda, sem Ingvar Friðleifsson jarðfræðingur tók á fyrstu dögum eldgossins á Heimaey árið 1973, verða sýndar í fyrsta sinn opinberlega í þættinum Um land allt á Stöð 2 kl. 19.10 í kvöld. Jafnframt verður rætt við hóp Vestmannaeyinga sem flúðu eldgosið en settust að í Grindavík.

Ingvar lýsir gosstróknum á myndinni í viðtalinu á Stöð 2Stöð 2/Einar Árnason.

Ingvar var 26 ára gamall í doktorsnámi við Oxford-háskóla þegar eldgosið hófst þann 23. janúar 1973. Rektor jarðvísindadeildar bauð Ingvari þá að fara til Íslands og Vestmannaeyja á kostnað skólans gegn því að hann flytti síðan fyrirlestra um gosið. Tveimur dögum síðar var Ingvar kominn til Eyja með kvikmyndatökuvél og ljósmyndavél.

Hraunið byrjað að brjóta niður Kirkjubæina, austustu íbúðarhúsin á Heimaey. Myndina tók Ingvar 25. janúar, á þriðja degi eldgossins.

Hann dvaldi á eynni í tvo sólarhringa, á þriðja og fjórða degi gossins. Hann myndaði meðal annars fyrstu húsin fara undir hraun sem voru Kirkjubæirnir austast á eynni. 

Hamagangur í bíla- og búslóðarflutningum við höfnina. Til vinstri sést maður stökkva af vörubílspalli. Takið eftir hvernig nafn Heklu ber í eldgíginn.Mynd/Ingvar Friðleifsson.

Eyjamennirnir í Grindavík rifja í þættinum upp gosnóttina og flóttann frá Heimaey og hvernig líf þeirra umturnaðist. Þeir ræða einnig um þá óvissu sem þeir hafa búið við undanfarnar vikur vegna hugsanlegrar kvikusöfnunar við fjallið Þorbjörn. 

Strandlengjan og bærinn eru mikið breytt frá því þessi mynd var tekin. Öll húsin á myndinni hurfu undir hraun en vitinn stendur enn.Mynd/Ingvar Friðleifsson

Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um myndirnar:




Fleiri fréttir

Sjá meira


×