Tilkynntu að engum yrði sagt upp en þrettán fengu uppsagnarbréf Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. október 2020 08:31 María Heimisdóttir er forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Vísir/Baldur Hrafnkell
Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) tilkynntu um skipulagsbreytingar í tengslum við nýtt skipurit þann 25. september síðastliðinn. Í tilkynningunni sagði meðal annars að stjórnendum hjá stofnuninni yrði fækkað en ekki væri gert ráð fyrir að neinum yrði sagt upp. Raunin er hins vegar sú að þrettán stjórnendum var sagt upp hjá stofnuninni í liðinni viku. Þetta staðfestir María Heimisdóttir, forstjóri SÍ, í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis. Í 43. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem vísað var til við uppsögnina, er kveðið á um rétt forstöðumanns stofnunar til að segja starfsmanni upp störfum eftir því sem fyrir er mælt í ráðningarsamningi. Í uppsagnarbréfunum var stjórnendunum tilkynnt að staða þeirra yrði lögð niður og þeim sagt upp með lög- og samningsbundnum uppsagnarfresti, að sögn Maríu. Bjóðast störf á lægri launakjörum Með hverju uppsagnarbréfi fylgdi annað styttra bréf þar sem viðkomandi var greint frá því að honum byðist annað starf hjá stofnuninni. „Ráðning þeirra hjá SÍ mun því ekki rofna nema þeir taki þá ákvörðun að afþakka starfið. SÍ vona að sem flestir úr þessum hópi kjósi að starfa áfram hjá SÍ og taka þátt í tímabærri uppbyggingu stofnunarinnar,“ segir í svari Maríu. Þau störf sem fólki bjóðast í stað stjórnendastarfanna eru á lægri launakjörum enda gera stofnanasamningar SÍ ráð fyrir því að sérfræðingar séu á lægri launum heldur en stjórnendur, að því er fram kemur í svari Maríu. Aðspurð hvers vegna stofnunin hafi tilkynnt um að engar uppsagnir yrðu þegar raunin sé önnur, samkvæmt orðanna hljóðan í uppsagnarbréfum starfsmanna, segir María að ef til vill hefði orðalagið mátt vera nákvæmara í tilkynningunni. „Við breytingar eins og þær sem fyrirhugaðar eru er óhjákvæmilegt annað en að einhverjar stöður verði lagðar niður. Slíkri niðurlagningu fylgir á sama hátt óhjákvæmilega að segja þarf þeim sem stöðum þessum gegna jafnframt upp störfum. Það hefur frá upphafi verið yfirlýst markmið stofnunarinnar að fækka ekki starfsfólki hjá SÍ í þessu ferli og mun þessum aðilum verða boðin önnur störf. Það er það atriði sem við vildum leggja áherslu á í tilkynningunni. Ég vona að þetta skýri stöðuna,“ segir María. Nýtt skipurit Sjúkratrygginga Íslands tekur gildi um áramótin.Vísir/Egill Málið til skoðunar hjá BHM Forstjórinn segir stofnunina líta svo á að settum reglum hafi verið fylgt við framkvæmd uppsagnanna. Samkvæmt heimildum Vísis er málið til skoðunar hjá BHM með tilliti til þess hvort uppsagnirnar standist settar reglur en margir stjórnendanna eru félagar í aðildarfélögum BHM. Í nýju skipuriti, sem tekur gildi 1. janúar 2021, verður stjórnendum hjá SÍ fækkað úr 23 í 16. María segir að hlutfall stjórnenda hjá stofnuninni hafi verið mjög hátt enda hafi starfseiningar verið margar og sumar mjög litlar. „Með endurskipulagningu er stjórnunareiningum fækkað til að búa til stærri og öflugri starfseiningar. Þannig er hægt að styrkja þá þætti í starfsemi stofnunarinnar sem Ríkisendurskoðun hefur sérstaklega bent á að þurfi að styrkja, þ.e. samningastjórnun, eftirlit og greiningar,“ segir hún. Aðspurð hvort auglýsa eigi nýjar stjórnendastöður áður en nýtt skipurit taki gildi og hver margar þær stöður verða segir María að samkvæmt lögum sé SÍ skylt að auglýsa lausar stöður hjá stofnuninni. Auglýsingar verði birtar fljótlega. Vísa í nýja heilbrigðisstefnu og ábendingar Ríkisendurskoðunar Þegar hún er svo spurð út í það á hvaða grundvelli skipulagsbreytingarnar séu gerðar; hvort um sé að ræða hagræðingu í rekstri stofnunarinnar eða hvort einhver verkefni SÍ séu að færast til annarra stofnanna vísar María í fyrrnefnda tilkynningu á vef SÍ þar sem segir: „Þessari skipulagsbreytingu er ætlað að aðlaga stofnunina að þeim verkefnum sem henni eru ætluð samkvæmt lögum og heilbrigðisstefnu og jafnframt að bregðast við þeim ábendingum sem Ríkisendurskoðun hefur beint að stofnuninni. Breytingin byggist á ítarlegri greiningar- og stefnumótunarvinnu innan stofnunarinnar þar sem styrkleikar og veikleikar hennar voru greindir. Allir starfsmenn komu að þeirri vinnu.“ Hún bætir svo við að hagræðing sé sífellt verkefni opinberra stofnanna, meðal annars SÍ. „[…] en megintilgangur þessara breytinga er að undirbúa stofnunina fyrir það stóraukna hlutverk sem henni er ætlað samkvæmt nýrri heilbrigðisstefnu og að bregðast við niðurstöðum bæði ytri og innri greininga þar sem komið hefur fram hvaða þætti í starfseminni þurfi helst að styrkja,“ segir María.
Stjórnsýsla Heilbrigðismál Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Dr. Bjarni er látinn Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Erlent Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Erlent Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Erlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Innlent Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Erlent Fleiri fréttir Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Mál Oscars sé barnaverndarmál en ekki útlendingamál Bein útsending: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Vara við aukinni hættu á gróðureldum á Austurlandi Stór skjálfti rétt hjá Grímsey Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Dr. Bjarni er látinn Kristrún á leiðtogafundi um varnarmál: Þjóðirnar í Norður-Atlantshafi þurfi að sýna forystu Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum Sjá meira