Leikstjóri argar og gargar vegna opnunar líkamsræktarstöðva Kolbeinn Tumi Daðason og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 20. október 2020 22:45 Björk er ósátt við ákvörðun heilbrigðisráðherra. Ólafur Már Svavarsson
Leikstjórinn Björk Jakobsdóttir óttast að opnun líkamsræktarstöðva hafi það í för með sér að lengri tíma taki að kveða niður þriðju bylgju faraldursins. Það leiði af sér að lengri tími líði þar leikhúsin geti dregið tjöldin frá og að önnur starfsemi geti farið á flug. „Miðað við reynsluna þá er ég hrædd um að með þessari opnun sjáum við aukin tilfelli smita og það hægir á öllu samfélaginu. Það hægir á því að við getum farið að opna leikhúsin. Lengri tími mun þá líða þar til tónlistarfólk getur starfað á ný o.s.frv,“ sagði Björk Jakobsdóttir, leikkona og leikstjóri í samtali við fréttastofu. Hún segir þá aðgerð heilbrigðisráðherra að heimila líkamsræktarstöðvum að standa fyrir hóptímum splundra allri samstöðu. Sóttvarnalæknir vildi loka líkamsræktarstöðvum en heilbrigðisráðherra ber fyrir sig jafnræðisreglu. Hugsar til vinkonu á Landspítalanum Margt er í biðstöðu vegna þriðju bylgju faraldursins. Því segir Björk samfélagslega mikilvægt að kveða niður faraldurinn á sem stystum tíma. „Vinkona mín bíður eftir aðgerð á Landspítalanum. Þetta tefur aðgerðina hennar.“ Björk spyr hvers vegna fólk geti ekki ræktað líkama sinn utan dyra þessa dagana. Björk, sem er öflug í leikhússtarfinu í Hafnarfirði og rekur Gaflaraleikhúsið þar í bæ, vekur máls á afstöðu sinni á Facebook. Hún sé ekki vön að garga á samfélagsmiðlinum en nú verði hún. „GAAARRRGGG! Hvað er málið með að leyfa líkamsræktarstöðvum að hafa opið?“ spyr Björg. Launalaus síðan í mars Sýningar á leikritinu Mamma klikk, eftir bók Gunnar Helgasonar, voru tiltölulega nýhafnar þegar þeim var frestað vegna hertra sóttvarnaraðgerða á höfuðborgarsvæðinu. Leikhópurinn í Mamma klikk.Gaflaraleikhúsið „Við æfðum í september og sýndum eina helgi. Svo kom þessi bylgja. Leikararnir sem starfa hjá okkur eru sjálfstæðir verktakar og hafa ekki fengið sýningarlaun frá því í mars. Það er blóðugt að neita fólki um launatékkann vegna stöðunnar og horfa upp á það að fólk þurfi að komast í spinning,“ segir Björk. „Samt hefur enginn hingað til smitast að mér vitanlega í leikhúsinu en það má rekja mörg hundruð smit til líkamsræktarstöðva.“ Ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem tók gildi í dag heimilar hóptíma í líkamsræktarstöðvum að uppfylltum skilyrðum. Fólk fær ekki aðgang að búningsklefum, deilir ekki tækjum og tólum með öðrum auk þess sem miðað er við tuttugu manns að meðtöldum kennara í tímunum - í samræmi við tuttugu manns samkomubann í landinu. Hvetur fólk til að láta í sér heyra „Þessi gjörningur á væntanlega eftir að leiða af sér fleiri smit sem að veldur því að við getum ekki opnað leikhús landsins. Hvað með andlega heilsu? Það er indælis haustveður og fólk getur vel ræktað líkamann utan dyra. Og á sama tíma og það má fara grímulaus í hóptíma í líkamsræktarstöðvum þar sem svitinn bogar af fólki og loftræsting er léleg þá er sundfélögum bannað að æfa þó það sé einn iðkandi í lauginni í einu. Það sér það hver heilvita maður að svona gjörningur splundrar allri samstöðu,“ segir Björk. Boðið var upp á hóptíma í Sporthúsinu og World Class í dag en sömuleiðis í fjölmörgum Crossfit stöðvum. Sitt sýnist hverjum um ákvörðun heilbrigðisráðherra.Vísir/Vilhelm „Líkamsræktarstöðvar eiga bara ekkert meira bágt en við hin og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra þarf að endurskoða þennan gjörning ef að hún ætlar að treysta á samstöðu landans.“ Hún hvetur fólk til að láta í sér heyra. „Ég er alla vega brjáluð AAARRRGGG!“ Smit tengd líkamsræktarstöðvum hlaupi á hundruðum 110 kórónuveirusmit hafa verið rakin beint til líkamsræktarstöðva og annarrar íþróttaiðkunar. Þar eru ekki meðtalin afleidd smit sem væntanlega hlaupa á hundruðum. Þetta kemur fram í svari almannavarna við fyrirspurn fréttastofu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í gær að sér þætti ekki hyggilegt að opna líkamsræktarstöðvar á ný í ljósi þess að þær væru „aðaluppspretta faraldursins“ sem nú gengur yfir. Björk undrast ákvörðun heilbrigðisráðherra í ljósi þess að sóttvarnarlæknir lagði til að líkamsræktarstöðvar yrðu áfram lokaðar. „Við erum öll að blæða og verðum að takast á við þetta saman. Líkamsræktarstöðvum blæðir ekki meira en okkur sem störfum í leikhúsunum,“ sagði Björk. Þórólfur hefur áhyggjur af opnun líkamsræktarstöðva enda má rekja 110 smit beint til nokkurra slíkra stöðva.Vísir/Vilhelm Lagði hann því til við ráðherra að líkamsræktarstöðvum yrði lokað. Hann ræddi málið í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Þá fóru menn að velta fyrir sér annars konar líkamsrækt. Hvort öll líkamsrækt væri þá bönnuð. Hvort það væri bannað að fólk stundaði æfingar og færi út að hlaupa,“ sagði Þórólfur. Fólk hafi velt fyrir sér hvort krossfitt og jóga væri íþrótt eða ekki. Vildi þá banna alla slíka starfsemi „Við það flæktist málið töluvert þannig að á endanum voru íþróttir sem ekki eru skilgreindar innan ÍSÍ, þar á meðal krossfitt og jóga, látnar falla undir venjulegar íþróttir þar sem væri gætt að nándarreglunni og öðru slíku,“ sagði Þórólfur. „Í mínum huga var líkamsrækt algjörlega eitthvað sem við þurftum að stöðva áfram þangað til við værum búin að ná betri tökum á faraldrinum.“ Þórólfur Guðnason skilar tilmælum sínum til heilbrigðisráðherra sem tekur svo ákvörðun um útfærslu á reglugerðum.Vísir/Vilhelm Hann segir að tvær leiðir hafi verið í stöðunni fyrir ráðuneytið. Annað hvort að leyfa krossfitt, jóga og almenna líkamsrækt innan þessara marka líkt og ráðuneytið gerði. „Eða þá að skilgreina þetta allt sem starfsemi sem væri bönnuð. Ég lagði til að það yrði gert en hitt varð ofan á,“ sagði Þórólfur. Segja þau Þórólf hafa sama skilning Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagðist í samtali við fréttastofu í dag ekki vera að láta undan þrýstingi frá líkamsræktarstöðvunum. Þetta snerist um jafnræðisreglu. Því hefði hún tekið þessa ákvörðun. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur að mestu fylgt tilmælum sóttvarnalæknis undanfarna mánuði en með undantekningum þó.Vísir/Vilhelm „Þetta snýst um það að [Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknis] leggur til að heimila ákveðna starfsemi eins og jóga og krossfitt í bókuðum tímum þar sem að eru innan við tuttugu manns og tveir metrar á milli og það er hægt að hreinsa búnað á milli og svo framvegis. Og vegna jafnræðisreglu er ekki hægt að heimila það hjá einum rekstraraðila en ekki hjá öðrum,“ segir Svandís. Þessi afar takmarkaða starfsemi verði því heimil hjá líkamsræktarstöðvum, eins og hjá öðrum aðilum sem veita þessa þjónustu. „Við Þórólfur höfum farið yfir þetta og það er algjörlega sameiginlegur skilningur á því eins og það er núna,“ segir Svandís. Fyrirgefið. ég er nú ekki vön að garga á Feisbókinni, en nú bara verð ég. GAAARRRGGG! Hvað er málið með að leyfa...Posted by Björk Jakobsdóttir on Tuesday, October 20, 2020 Fleiri ósáttir og telja samstöðu horfna Formaður Körfuknattleikssambands Íslands deilir þeirri skoðun með Björk að samstaðan sem ríkt hafi í upphafi faraldursins sé horfin. „Staðan í dag er sundung og það er vegna óreiðu yfirvalda og stjórnsýslunnar. Engin veit hver raunverulega ræður í sóttvarnaraðgerðum landsins í baráttunni við COVID hér á Íslandi í dag,“ sagði Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ í dag. Hann harmar hve lítið samráð hann telur yfirvöld hafa haft við íþróttahreyfinguna í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Ekki sé borin virðing fyrir „fjölmennustu fjöldahreyfingu landsins“. „Frábært að líkamsræktarstöðvar mega opna, það gleður mig! En samt má ekki stunda íþróttir í skipulögðu íþróttastarfi eða konan mín mæta í vinnuna sína á Englahár til að klippa og lita þá sem vilja komast í hársnyrtingu!“
Menning Leikhús Líkamsræktarstöðvar Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Segir marga hafa verið í sóttkví við greiningu í gær sé áhöfnin tekin út fyrir mengið Sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra að líkamsræktarstöðvar yrðu áfram lokaðar. Hann segir að margir hafi verið í sóttkví í gær séu skipverjarnir teknir út fyrir mengið. 20. október 2020 21:50 Frændsystkin í einangrun sakna foreldra sinna: „Allt út af smiti á líkamsræktarstöð“ Móðir 7 ára stúlku sem smitaðist af Covid19 í gegn um líkamsræktarstöð segir ábyrgðarlaust af ráðherra að heimila opnun stöðvanna. Hún hefur ekki hitt dóttur sína í þrjár vikur. 20. október 2020 20:00 110 smit rakin beint til líkamsræktarstöðva og annarra íþrótta Þar eru ekki meðtalin afleidd smit sem væntanlega hlaupa á hundruðum. 20. október 2020 16:39 „Ekki borin virðing fyrir fjölmennustu fjöldahreyfingu landsins“ Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að ekki sé borin virðing fyrir íþróttahreyfingunni í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Hann kallar eftir betra samtali við yfirvöld. 20. október 2020 13:31 Mest lesið Dó í 33 mínútur og 3 sekúndur Lífið Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lífið Fréttatía vikunnar: Kosningasvik, náttúruhamfarir og sorg Lífið Stefnir að því að gera mömmu sína að stjörnu Lífið Afmæliskaka hinnar sönnu raunveruleikastjörnu? Lífið Myndaveisla: Snjórinn féll á bjórþyrsta borgara Lífið Bjarni Ben orðinn tvöfaldur afi Lífið Ríða, drepa, giftast setti Ingu í ómögulega stöðu Lífið Hollywood stjarna til liðs við Laufeyju Lífið „Baneitraður veruleiki að vera í þessari vinnu“ Lífið Fleiri fréttir Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira
Segir marga hafa verið í sóttkví við greiningu í gær sé áhöfnin tekin út fyrir mengið Sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði sínu til heilbrigðisráðherra að líkamsræktarstöðvar yrðu áfram lokaðar. Hann segir að margir hafi verið í sóttkví í gær séu skipverjarnir teknir út fyrir mengið. 20. október 2020 21:50
Frændsystkin í einangrun sakna foreldra sinna: „Allt út af smiti á líkamsræktarstöð“ Móðir 7 ára stúlku sem smitaðist af Covid19 í gegn um líkamsræktarstöð segir ábyrgðarlaust af ráðherra að heimila opnun stöðvanna. Hún hefur ekki hitt dóttur sína í þrjár vikur. 20. október 2020 20:00
110 smit rakin beint til líkamsræktarstöðva og annarra íþrótta Þar eru ekki meðtalin afleidd smit sem væntanlega hlaupa á hundruðum. 20. október 2020 16:39
„Ekki borin virðing fyrir fjölmennustu fjöldahreyfingu landsins“ Formaður Körfuknattleikssambands Íslands segir að ekki sé borin virðing fyrir íþróttahreyfingunni í baráttunni við kórónuveirufaraldurinn. Hann kallar eftir betra samtali við yfirvöld. 20. október 2020 13:31