Fylgjast með hvort kvika sé á flæði undir Krýsuvík Kristján Már Unnarsson skrifar 21. október 2020 21:31 Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands. Stöð 2/Arnar Halldórsson.
Reykjanesskaginn heldur áfram að nötra og hafa sjö skjálftar í dag mælst milli þrjú og fjögur stig. Jarðvísindamenn sjá þó skýr merki þess að dregið hafi úr hrinunni eftir stóra skjálftann í gær. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Vegagerðin opnaði Djúpavatnsleið á ný í dag en hún lokaðist þegar grjót féllu á veginn í skjálftanum. Vinnuvél Vegagerðarinnar á Djúpavatnsleið í Reykjanesfjallgarði í dag.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Vegagerðarmenn létu ekki duga að hreinsa burt grjótið sem féll á veginn í gær heldur færðu í leiðinni nokkra steina sem þóttu standa of nærri vegkantinum. Sá sem stýrði hjólaskóflunni, Einar Bjarnason, hafði aldrei áður þurft að moka eftir jarðskjálfta „Nei, aldrei. Það er gaman að þessu annað slagið,“ sagði Einar, en hnullungarnir voru 7-8 talsins sem lokuðu veginum og aðallega á tveimur stöðum. Einar Bjarnason, flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Einar, sem er flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði, notaði jafnframt tækifærið til að hreinsa burt steina sem áður höfðu fallið í skjálftum fyrri tíma. Annar Vegagerðarmaður, Jens Matthíasson, kom svo akandi Djúpavatnsleið frá Suðurstrandarvegi á móti Einari. „Ég var að athuga hvort það væru fleiri steinar hér á leiðinni eða hvort það væri eitthvað að veginum, frá Suðurstrandavegi og hingað,“ sagði Jens, en kvaðst aðeins hafa tínt smásteina af veginum hér og þar. „En engir stórir nema bara undir þessari hlíð sem hann var að plokka upp áðan,“ sagði Jens. Jens Matthíasson, flokksstjóri hjá Vegagerðinni í Hafnarfirði.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Víða nærri upptakasvæði stóra skjálftans í gær sjást merki eftir grjóthrun eins og í hlíð Norðlingaháls. Virknin hefur færst vestar í dag, nær Grindavík. Við Fagradalsfjall urðu til að mynda tveir skjálftar um sjöleytið í morgun sem fundust meðal annars á Reykjavíkursvæðinu, 3,8 og 3,6 stig að stærð, að sögn Kristínar Jónsdóttur, jarðskjálftafræðings á Veðurstofu Íslands. „En annars hefur bara dregið mjög mikið úr hrinunni,“ segir Kristín. Hún útlokar þó ekki annan stóran skjálfta næstu daga. „En svona samt - þessi hegðun sem við erum að fylgjast með núna er má segja týpísk hegðun fyrir kerfi sem er að jafna sig eftir átök. Þannig að við skulum bara vona að jörðin taki tíma í það núna aðeins að jafna sig eftir þetta.“ Horft frá Krýsuvík til Seltúns og Kleifarvatns í gær.Arnar Halldórsson Ein stærsta spurningin er hvort hræringunum á Reykjanesi fylgi landris með kvikuflæði. Kristín segir að mjög greinileg innskot hafi komið við fjallið Þorbjörn fyrr á árinu. „En ógreinilegri hreyfingar við Reykjanes en alveg hugsanlegt að þar hafi líka verið innskotavirkni. Og núna við Krýsuvík, eitthvað sem við erum ennþá að fylgjast með.“ Merki um kvikuflæði undir Krýsuvík eru þó óljós. „Það er svona kannski frekar erfitt að túlka þau og segja alveg af eða á hvort þetta sé til dæmis kvika eða ekki,“ segir Kristín Jónsdóttir. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Eldgos og jarðhræringar Samgöngur Jarðhræringar á Reykjanesi Hafnarfjörður Grindavík Almannavarnir Tengdar fréttir Líkur á frekari jarðskjálftum nær höfuðborgarsvæðinu Líkur eru á frekari jarðskjálftum á suðvesturhorninu á næstu árum og þá sérstaklega jarðskjálfta með upptök við Brennisteinsfjöll, sem er töluvert nær höfuðborgarsvæðinu en skjálftinn sem varð í gær. 21. október 2020 18:43 Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri Eftirskjálftar eftir stóra skjálftann í gær eru orðnir hátt í 2000 talsins; frá miðnætti hafa þeir verið á milli 700 og 800. 21. október 2020 10:39 Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum. 20. október 2020 21:52 Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Fleiri fréttir Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagræðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Sjá meira
Líkur á frekari jarðskjálftum nær höfuðborgarsvæðinu Líkur eru á frekari jarðskjálftum á suðvesturhorninu á næstu árum og þá sérstaklega jarðskjálfta með upptök við Brennisteinsfjöll, sem er töluvert nær höfuðborgarsvæðinu en skjálftinn sem varð í gær. 21. október 2020 18:43
Ekki hægt að útiloka fleiri skjálfta yfir þremur og jafnvel stærri Eftirskjálftar eftir stóra skjálftann í gær eru orðnir hátt í 2000 talsins; frá miðnætti hafa þeir verið á milli 700 og 800. 21. október 2020 10:39
Krýsuvík næst upptökum og þar fór fólkið hlaupandi út Jarðskjálftinn sem reið yfir suðvesturhorn landsins laust fyrir klukkan tvö í dag mældist 5,6 stig og var með upptök skammt vestur af Krýsuvík. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast en í Krýsuvík hljóp fólk út og þar hrundi úr fjöllum. 20. október 2020 21:52