Erlent

Fullyrða að Trump muni lýsa yfir sigri áður en úrslit liggja fyrir

Sylvía Hall skrifar
Donald Trump er sagður búa sig undir ýmsar niðurstöður í kosningunum á þriðjudag.
Donald Trump er sagður búa sig undir ýmsar niðurstöður í kosningunum á þriðjudag. Getty/John Moore

Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa fullyrt við sína nánustu bandamenn að hann ætli sér að lýsa yfir sigri á þriðjudag ef útlit verður fyrir að hann sé með forskot. Þetta hefur Axios eftir þremur heimildarmönnum sínum.

Til þess að það gerist telja bandamenn hans nauðsynlegt að hann sé með öruggan sigur eða þokkalegt forskot í ákveðnum ríkjum; Ohio, Flórída, Norður-Karólínu, Texas, Iowa, Arizona og Georgíu.

Forsetinn er sagður hafa farið yfir þessi áform sín í smáatriðum og lýst því hvernig hann ætli sér að lýsa yfir sigri í pontu á kosningakvöldinu.

Spekingar hafa áður sagt að tölur kosningakvöldsins gætu gefið skakka mynd af niðurstöðum. Þannig sé líklegt að Trump verði með forskot í Pennsylvaníu kosningakvöldið sjálft en það myndi að öllum líkindum breytast eftir talningu póstatkvæða.

Sjaldan hafa jafn margir greitt atkvæði með pósti og í ár. Kórónuveirufaraldurinn hefur mikið með þá þróun að gera.Getty/Joe Raedle

Ætla að láta reyna á lögmæti póstatkvæðanna 

Trump hefur ítrekað ráðist á póstatkvæði í kosningabaráttu sinni og fullyrt að þau leiði til stórfelldra kosningasvika. Þannig hafa póstatkvæði og talning þeirra orðið að einum helsta óvissuþættinum í úrslitum forsetakosninganna vestanhafs.

Gaf hann þannig í skyn í kosningabaráttu sinni að hann myndi ekki viðurkenna ósigur við tap, nema hætt yrði að bjóða upp á póstatkvæðagreiðslu.

Repúblikanar hafa höfðað mál í mörgum ríkjum til þess að takmarka póstatkvæði og hvenær þau skuli teljast gild.

Reglur um hvenær póstatkvæði þurfa að berast eru ólíkar á milli einstakra ríkja Bandaríkjanna og fara kosningar raunar fram að mestu með slíkum hætti í fimm ríkjum Bandaríkjanna. Það er í Colorado, Hawaii, Oregon, Utah og Washington,

Líklegra að póstatkvæðin verði demókrötum í vil 

Axios fullyrðir að Trump og lögfræðingateymi hans búi sig nú undir að láta reyna á gildi þeirra póstatkvæða sem talin eru eftir 3. nóvember. Munu þeir halda því fram að þeir atkvæðaseðlar séu hluti af kosningasvindli.

Miklar líkur eru á því að póstatkvæðin verði demókrötum í vil samkvæmt sérfræðingum vestanhafs. Þess vegna hafi ráðgjafar Trump hafið undirbúning að þessari áætlun fyrir einhverjum vikum síðan.

Trump myndi þá lýsa yfir sigri áður en úrslit liggja fullkomlega fyrir. Ef úrslitin myndu svo breytast í Pennsylvaníu eftir kosningakvöldið sjálft með póstatkvæðatalningu myndi hann fullyrða að demókratar hefðu „stolið kosningunum.“

Gríðarlegur fjöldi Bandaríkjamanna er þegar búinn að kjósa, þar á meðal báðir forsetaframbjóðendurnir. Útlit er fyrir að kjörsókn verði sú mesta í meira en heila öld.


Tengdar fréttir

Bandaríkjamenn á Íslandi uggandi um atkvæði sín

Tafir hjá bandarísku póstþjónustunni og herferð Donalds Trump forseta gegn póstatkvæðum veldur Bandaríkjamönnum búsettum á Íslandi áhyggjum af því að atkvæði þeirra í kosningunum í næsta mánuði verði ekki talin.

„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum

Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér.

Telur að úrslit kosninganna fari fyrir Hæstarétt

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann teldi að Hæstiréttur Bandaríkjanna þyrfti að skera út um úrslit forsetakosninganna í nóvember. Þessa vegna segir hann mikilvægt að skipa nýjan dómara í sæti Ruth Bader Ginsburg eins hratt og auðið sé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×