Par grunað um líkamsárás Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 26. apríl 2020 07:29 Maður var fluttur á Bráðadeild eftir að hafa dottið af hestbaki en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum. Vísir/Vilhelm
Par var handtekið í gærkvöldi vegna gruns um að það hafi ráðist á konu í Breiðholti. Parið var vistað í fangageymslu lögreglu vegna rannsóknar málsins. Áverkar þolandans eru talin minniháttar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Þá var tilkynnt um umferðaróhapp á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar klukkan ellefu í gærkvöldi. Tjónvaldur hafði gengið af vettvangi en var hann handtekinn þar nærri vegna gruns um akstur undir áhrifum og vörslu fíkniefna og var hann í kjölfarið vistaður í fangageymslu lögreglu vegna málsins. Þá var maður handtekinn vegna gruns um líkamsárás en hann hafði ráðist á mann við bar í Laugardalnum. Árásarþolinn var kýldur í andlitið og er talið líklegt að tönn hans hafi brotnað. Nokkur tilfelli voru um að ökumenn væru stoppaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna en alls var um fimm slík tilfelli að ræða. Þá var tilkynnt um slys í Mosfellsbæ á áttunda tímanum í gær þegar maður datt af hesti. Hann var fluttur með sjúkrabíl á bráðadeild til aðhlynningar en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum á hestbaki. Þá var bifreið stöðvuð á Hringbraut í Vesturbænum laust upp úr miðnætti en ökumaður er grunaður um ítrekaðan akstur án gildra réttinda en hann er aðeins sautján ára gamall. Málið var tilkynnt foreldri og Barnavernd.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið „Erum við að fara að deyja?“ Innlent Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Innlent Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Mogginn afþakkar framlag Dags B. Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna Innlent Fleiri fréttir Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Rafbyssum aldrei beitt oftar Munu auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra Réttmæt reiði vegna ofurkjara kjörinna fulltrúa og embættismanna „Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Tók fjögur ár að slá föstu að samræði við barn væri nauðgun Kærður fyrir að löðrunga hundinn sinn Óttast fordæmið sem ákvörðun ráðherra setur um Baldur Botnlaus gróðafýsn, viðsnúningur í nauðgunarmáli og óánægja vegna Baldurs „Erum við að fara að deyja?“ Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró sér fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Sjá meira