Leikir gegn Portúgal á stórmótum: Erfiður Resende, sætur sigur á heimavelli Portúgala og draumaleikur Janusar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. janúar 2021 11:01 Besti landsleikur Janusar Daða Smárasonar var gegn Portúgal á EM í fyrra. vísir/hulda margrét Ísland mætir Portúgal í þriðja sinn á átta dögum þegar liðin leiða saman hesta sína í F-riðil á HM í Egyptalandi í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Ísland og Portúgal skiptu sigrunum á milli sín í undankeppni EM 2022. Níu marka sigur Íslendinga á Ásvöllum á sunnudaginn gerir það hins vegar að verkum að þeir verða fyrir ofan Portúgala ef liðin verða jöfn að stigum í riðlinum. Leikurinn í kvöld er afar mikilvægur í baráttunni um toppsætið í F-riðli og upp á að taka með sér stig í milliriðil. Þetta verður fimmti leikur Íslands og Portúgals á stórmótum. Þau mættust þrisvar í upphafi aldarinnar þegar Portúgalir voru með sterkt lið og svo á EM í fyrra. Ísland 25-28 Portúgal, EM 2000 Fyrsta Evrópumót Íslendinga reyndist engin frægðarför. Strákarnir okkar töpuðu öllum fimm leikjum sínum í riðlakeppninni en unnu svo Úkraínu í leiknum um 11. sætið. Í öðrum leik sínum í B-riðli tapaði Ísland með þriggja marka mun fyrir Portúgal, 25-28. Carlos Resende, sem var besti leikmaður Portúgala á þessum tíma, skoraði tíu mörk fyrir Portúgali sem voru marki yfir í hálfleik, 13-14. Portúgalir náðu undirtökunum um miðjan seinni hálfleik og náði mest sex marka forskoti, 20-26. Á endanum munaði þremur mörkum á liðunum. Valdimar Grímsson var langbesti maður Íslands með níu mörk. Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk. Mörk Íslands: Valdimar Grímsson 9/4, Ólafur Stefánsson 5, Patrekur Jóhannesson 4, Róbert Sighvatsson 2, Gústaf Bjarnason 2, Magnús Már Þórðarson 2, Magnús Sigurðsson 1. Ísland 22-19 Portúgal, HM 2001 Íslendingar og Portúgalir lentu einnig saman í riðli á heimsmeistaramótinu í Frakklandi 2001 og aftur áttust þau við í öðrum leik riðlakeppninnar. Portúgal vann stórsigur á Tékklandi í fyrsta leik sínum, 29-19, á meðan Ísland tapaði fyrir Svíþjóð, 24-21, eins og alltaf á þessum árum. Íslendingar náðu fram hefndum gegn Portúgölum og unnu góðan þriggja marka sigur, 22-19. Íslenska vörnin var gríðarlega í seinni hálfleik þar sem Portúgal skoraði aðeins átta mörk. Róbert Sighvatsson og Róbert Julian Duranona skoruðu fimm mörk hvor fyrir íslenska liðið. Ísland endaði í 3. sæti A-riðils og féll svo úr leik fyrir Júgóslavíu, 27-31, í sextán liða úrslitunum. Þetta reyndist síðasta stórmót Þorbjörns Jenssonar með íslenska liðið. Mörk Íslands: Róbert Sighvatsson 5, Róbert Julian Duranona 5/1, Ólafur Stefánsson 4/2, Einar Örn Jónsson 3, Guðjón Valur Sigurðsson 2, Aron Kristjánsson 1, Patrekur Jóhannesson 1, Dagur Sigurðsson 1. Ísland 29-28 Portúgal, HM 2003 Ísland og Portúgal voru saman í riðli á þriðja stórmótinu á fjórum árum á HM 2003 sem fór einmitt fram í Portúgal. Liðin áttust við í miklum spennuleik í þriðja leik riðlakeppninnar þar sem Ísland hafði sigur, 29-28. Íslendingar voru marki yfir í hálfleik, 14-13. Portúgal komst tveimur mörkum yfir, 24-26, og hefðu getað náð þriggja marka forskoti en Roland Valur Eradze kom í veg fyrir það með því að verja víti. Ísland skoraði svo fimm af síðustu sjö mörkum leiksins og vann sætan sigur, 29-28. Sigfús Sigurðsson skoraði sigurmarkið. Hornamennirnir Guðjón Valur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson skoruðu sjö mörk hvor og Roland átti góða innkomu og varði vel. Ísland missti naumlega af sæti í undanúrslitum á HM 2003 og endaði að lokum í 7. sæti mótsins. Sigurinn á Júgóslavíu, 32-27, í leiknum um 7. sætið tryggði Íslandi sæti á Ólympíuleikunum 2004 í Aþenu. Mörk Íslands: Guðjón Valur Sigurðsson 7, Einar Örn Jónsson 7, Ólafur Stefánsson 5/2, Sigfús Sigurðsson 3, Patrekur Jóhannesson 2, Rúnar Sigtryggsson 2, Heiðmar Felixson 1, Sigurður Bjarnason 1, Aron Kristjánsson 1. Ísland 28-25 Portúgal, EM 2020 Portúgalir hristu heldur betur upp í hlutunum í fyrsta leik sínum á EM 2020 með því að vinna Frakka, 28-25. Þeir komust með sannfærandi hætti í milliriðla þar sem þeir mættu Íslendingum. Portúgalir unnu tíu marka sigur á Svíum, 35-25, í fyrsta leik sínum í milliriðli á meðan Íslendingar töpuðu fyrir Slóvenum, 30-27. Það var þó ekki að sjá í upphafi leiks þar sem Ísland var miklu sterkara, skoraði fyrstu fjögur mörkin og komst í 8-2. Portúgal komst þó inn í leikinn og í hálfleik munaði bara tveimur mörkum á liðunum, 14-12. Portúgalir byrjuðu seinni hálfleikinn svo betur og komust yfir, 16-17, í eina skiptið í leiknum. Ísland svaraði með 5-1 kafla og komst yfir, 21-18. Portúgal jafnaði í 22-22 en Ísland var sterkara á lokakaflanum og vann þriggja marka sigur, 28-25. Janus Daði Smárason átti sinn besta landsleik á ferlinum og skoraði átta mörk. Aron Pálmarsson, Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu allir fimm mörk. Leikurinn var síðasti sigurleikur þess síðastnefnda með íslenska landsliðinu. Björgvin Páll Gústavsson átti mjög góðan leik í markinu og varði sextán skot (fjörtíu prósent). Ísland endaði að lokum í 11. sæti á EM á meðan Portúgal endaði í því sjötta og tryggði sér þar með sæti í Ólympíuumspili. Mörk Íslands: Janus Daði Smárason 8, Guðjón Valur Sigurðsson 5, Aron Pálmarsson 5, Alexander Petersson 5, Bjarki Már Elísson 2/2, Arnór Þór Gunnarsson 1, Sigvaldi Guðjónsson 1, Ólafur Guðmundsson 1.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórir ráðleggur þjálfurum Noregs líka í þrjátíu prósent starfi Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir „Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ „Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 33-35 | Appelgren gerði útslagið Bronslið Dags Sig burstaði Svisslendinga í fyrsta leik eftir EM Frábært að sleppa við austantjaldið Heilluðust af Ölfu Brá á HM og sömdu við hana Mætir með vænt glóðarauga: „Þetta var smá barningur“ Berta Rut snýr heim í Hauka Deildarmeistarar Vals unnu nauman sigur fyrir norðan Uppgjörið: Stjarnan - Fram 34-34 | Stjarnan heldur lífi í fallsætisbaráttunni „Ekki endilega það sem maður vildi“ Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Enginn slaki gefinn Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram Sjá meira