
HM 2021 í handbolta

Danir drottna yfir handboltaheiminum
Danir eiga besta handboltafólkið og þjálfarana samkvæmt kjöri alþjóða handknattleikssambandsins vegna ársins 2021.

Þórir tilnefndur sem besti þjálfari heims
Alþjóða handknattleikssambandið, IHF, hefur tilkynnt um tilnefningar til bestu þjálfara og leikmanna heims árið 2021 og einn Íslendingur er þar á meðal.

Þórir getur orðið þjálfari ársins í tveimur löndum
Íslenski handboltaþjálfarinn Þórir Hergeirsson er einn af þeim sem eru tilnefndir sem þjálfari ársins í Noregi.

Þórir þjálfari ársins í fyrsta sinn
Þórir Hergeirsson, þjálfari heims- og Evrópumeistara Noregs í handbolta kvenna, er þjálfari ársins 2021 á Íslandi. Frá þessu var greint á verðlaunahófi Samtaka íþróttafréttamanna í kvöld.

Ekkert fararsnið á Þóri sem segir kjarnann í norska liðinu geta spilað á ÓL 2024
Þórir Hergeirsson segir ekkert því til fyrirstöðu að norska kvennalandsliðið í handbolta geti ekki haldið áfram að vinna til verðlauna á stórmótum. Hann heldur ótrauður áfram með liðið.

„Hún hefur valið rétta foreldra“
Ein af stjörnum norska kvennalandsliðsins á nýafstöðnu heimsmeistaramóti í handbolta var hin 22 ára Henny Reistad. Þórir Hergeirsson, þjálfari Noregs, segir hana einstakan leikmann.

Ver mína leikmenn og fannst ómaklega að þeim vegið
Guðmundur Guðmundsson segir gagnrýni á íslenska karlalandsliðið í handbolta, í kringum HM í Egyptalandi fyrir tæpu ári síðan, hafa verið óvægna á köflum.

„Vinn mikið í nútíð og framtíð en ekki svo mikið í fortíð“
Það að Þórir Hergeirsson stýri norska kvennalandsliðinu í handbolta í verðlaunasæti á stórmótum er orðinn jafn fastur hluti af aðventunni og kertaljós, mandarínur og skata. Á sunnudaginn varð Noregur heimsmeistari eftir sigur á Frakklandi, 29-22. Þórir segir vinnusemi og góðan liðsanda lykilinn að árangrinum sem hann tekur svo sannarlega ekki sem sjálfsögðum hlut.

Ein af hetjunum hans Þóris gafst ekki upp þrátt fyrir tíu hnéaðgerðir
Það voru örugglega margir búnir að afskrifa norska kvennalandsliðið þegar liðið var komið sex mörkum undir í fyrri hálfleiknum í úrslitaleik heimsmeistaramótsins á móti Frökkum.

Dætur Þóris Hergeirssonar afar stoltar af föður sínum
Þórir Hergeirsson heldur áfram að gera frábæra hluti og sigurganga hans hélt áfram á Spáni í gær. Margir glöddust í Noregi og ekki síst fjölskyldumeðlimirnir.

Höfuðhögg markvarða í handbolta: Sjáið bara þessa mynd
Danski landsliðsmarkvörðurinn Althea Reinhardt fékk skot beint í andlitið á undanúrslitaleik HM í handbolta kvenna um helgina en það mynd ljósmyndarans Beate Oma Dahle af atvikinu sem hefur vakið talsverða athygli.

Forseti Alþjóðahandboltasambandsins gerði sig að fífli í ræðu eftir úrslitaleikinn
Norðmenn tryggðu sér heimsmeistaratitilinn í handbolta kvenna í gær eftir sigur á Frakklandi í úrslitaleiknum. Ræða eftir leik hneykslaði marga.

Þórir á leið með norsku stelpurnar í tíunda úrslitaleikinn
Norska kvennalandsliðið í handbolta er á leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins eftir nokkuð öruggan sex marka sigur gegn heimakonum frá Spáni. Lokatölur urðu 27-21, en þetta er í tíunda skipti sem norska liðið fer í úrslitaleik á stórmóti undir stjórn Þóris Hergeirssonar.

Frakkar snéru taflinu við og tryggðu sér sæti í úrslitum
Franska kvennalandsliðið í handbolta er á leið í úrslit heimsmeistaramótsins eftir nauman sigur gegn Dönum í undanúrslitum í dag. Danska liðið leiddi leikinn lengst af, en þær frönsku höfðu að lokum betur, 23-22.

Þórir getur komið norsku stelpunum í tíunda úrslitaleikinn á stórmóti
Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson er á kunnuglegum slóðum með norska kvennalandsliðið í handbolta en það spilar í kvöld í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu á Spáni.

Frakkland síðasta landið inn í undanúrslit HM
Frakkland vann góðan fimm marka sigur á Svíþjóð í 8-liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handbolta. Frakkland er þar með síðasta landið inn í undanúrslit mótsins.

Þórir kominn með norska liðið í undanúrslit
Þórir Hergeirsson stýrði norska landsliðinu til sigurs gegn Rússlandi á HM kvenna í handbolta í dag. Noregur vann öruggan sex marka sigur, 34-28, og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum mótsins.

Leikmenn hverfa á miðju HM kvenna í handbolta
Íranska landsliðið er að keppa á HM kvenna í handbolta sem nú stendur yfir á Spáni. Það lítur út fyrir það að það munu ekki allir leikmenn liðsins skila sér heim af mótinu. Þá sögu geta fleiri lönd sagt.

Spánverjar í undanúrslit á heimavelli
Spænska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum heimsmeistaramótsin í handbolta sem fram fer á Spáni um þessar mundir með fimm marka sigri gegn Þjóðverjum, 26-21.

Danir stungu af í seinni hálfleik og eru á leið í undanúrslit
Danska kvennalandsliðið í handbolta tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Heimsmeistaramótsins í handbolta með öruggum fimm marka sigri gegn Brasilíu, 30-25.

Fengu pítsu og kók en nöguðu líka neglur
Það var spennuþrungið andrúmsloft á hóteli sænska kvennalandsliðsins í handbolta í gærkvöld þegar liðið beið þess að vita örlög sín á HM á Spáni.

Noregur áfram eftir sigur á heimsmeisturunum | Frakkland með fullt hús stiga
Noregur vann dramatískan sigur á heimsmeisturum Hollands í milliriðli tvö á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í kvöld. Hollendingar eru þar með úr leik. Þá vann Frakkland öruggan sigur og fer í 8-liða úrslit með fullt hús stiga.

Púertó Ríkó vann uppgjör margrasskelltu liðanna á HM kvenna
Púertó Ríkó tryggði sér fimmta sætið í milliriðli tvö á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta eftir þriggja marka sigur á Kasakstan, 30-27, í lokaleik liðanna á mótinu.

Kínverjar drógu sig úr keppni vegna smits
Kínverska kvennalandsliðið í handbolta dró sig úr keppni síðastliðinn föstudag á HM sem fram fer á Spáni um þessar mundir eftir að einn leikmaður liðsins greindist með kórónuveiruna.

Spánverjar og Danir tryggðu sér sigur í milliriðlunum
Spánn og Danmörk tryggðu sér sigur í milliriðlum þrjú og fjögur á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta með sigrum í leikjum sínum í kvöld. Danir fóru illa með Þjóðverja og unnu 16 marka sigur og Spánverjar unnu sterkan þriggja marka sigur gegn Brasilíu.

Þrettán mörk Karsten dugðu ekki gegn Japan | Tékkland loks komið á blað
Japan og Tékkland unnu í dag góða sigra í milliriðlum á HM kvenna í handbolta. Hvorugt liðið á þá möguleika á að komast áfram í 8-liða úrslit mótsins.

Svíar tóku stig af Noregi | Fyrsti sigur Pólverja í milliriðlinum
Seinustu tveim leikjum dagsins á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta lauk nú rétt í þessu. Svíþjóð og Noregur gerðu jafntefli, 30-30, og Pólverjar unnu nauman sigur gegn Slóveníu, 27-26.

Hollendingar og Rúmenar með stórsigra | Frakkar þurftu að hafa fyrir sigrinum
Fjórum af þeim sex leikjum sem fram fara á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í dag er nú lokið. Hollendingar unnu risasigur gegn Kasakstan og það gerðu Rúmenar einnig gegn Púertó Ríkó. Frakkar þurftu að hafa fyrir sigrinum gegn Serbum og Rússar unnu öruggan sigur gegn Svartfellingum.

Danir og Spánverjar flugu inn í átta liða úrslitin
Danir og Spánverjar unnu leiki sína er seinustut tveir leikir dagsins fóru fram á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta. Danir unnu öruggann 15 marka sigur gegn Tékkum og Spánverjar unnu fjögurra marka sigur gegn Króötum.

Frábær viðsnúningu Japana | Öruggt hjá Ungverjum
Nú rétt í þessu lauk tveimur leikjum í milliriplum Heimsmeistaramóts kvenna í handbolta. Japan vann virkilega góðan sigur gegn Austurríki eftir að hafa verið fimm mörkum undir snemma í seinni hálfleik og Ungverjar unnu sannfærandi átta marka sigur gegn Kongó.