Svavar Gestsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. janúar 2021 15:49 Svavar Gestsson var áhrifamaður í pólítík áratugum saman sat í fjölmörgum stjórnum og nefndum. Forlagið Svavar Gestsson, fyrrum ritstjóri Þjóðviljans, formaður Alþýðubandalagsins, þingmaður, ráðherra og sendiherra, lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfararnótt 18. janúar. Svavar fæddist á Guðnabakka í Stafholtstungum 26. júní 1944, sonur hjónanna Guðrúnar Valdimarsdóttur og Gests Sveinssonar. Svavar var elstur átta systkina.
Eftirlifandi eiginkona Svavars er Guðrún Ágústsdóttir, fyrrum forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Börn Svavars eru Svandís, Benedikt og Gestur og börn Guðrúnar eru Ragnheiður, Árni og Gunnhildur. Ræðuskörungur Svavar var svipmikill stjórnmálamaður og ræðuskörungur en þá að sama skapi umdeildur. Allra síðustu ár hefur hann látið til sín taka sem mikill talsmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs og hefur staðið þétt að baki dóttur sinni, Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra. Sem slíkur var hann eindreginn stuðningsmaður sitjandi ríkisstjórnar. Árið 2012 sendi hann frá sér fróðlega ævisögu en titill hennar er Hreint út sagt. Þar segir baráttumaðurinn persónulega og pólitíska sögu sína sem samofin er sögu Íslands í meira en hálfa öld. Á bókarkápu segir að um sé að ræða sögu stráks af venjulegu íslensku alþýðuheimili í borg og sveit. Jafnframt er þess þar getið að Svavar hafi snemma orðið vinstri sinnaður maður sem brann af réttlætiskennd. Svavar fæddist á Guðnabakka í Stafholtstungum þann 26. júní á lýðveldisárinu 1944. Tuttugu ára lauk hann stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og gegndi þar embætti forseta Framtíðarinnar, nemendafélags MR, skólaárið 1962-1963. Svavar var ritstjóri Nýja stúdentablaðsins 1965 og starfaði sem blaðamaður á Þjóðviljanum áður en hann varð ritstjóri þar 1971 til sjö ára. Svavar starfaði hjá Æskulýðsfylkingunni 1962, Alþýðubandalaginu 1966-1967 og hjá Samtökum hernámsandstæðinga 1966. Þá var hann formaður Útgáfufélags Þjóðviljans um árabil. Þingmaður frá 1978 til 1999 Svavar var fyrst kosinn á Alþingi fyrir Alþýðubandalagið í Reykjavíkurkjördæmi árið 1978 og sat síðan sem þingmaður Alþýðubandalagsins til 1995, fyrir Alþýðubandalagið og óháða 1995-1999. Svavar var þingmaður Alþýðuflokksins um árabil og svo formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1995–1999.Alþingi Hann var þó þingmaður Samfylkingarinnar allra síðustu daga þingsetu sinnar er þingflokkar Alþýðubandalagsins, Alþýðuflokksins og Kvennalistans sameinuðust. Árið 1999 var hann skipaður sendiherra og varð fyrst aðalræðismaður Íslands í Winnipeg í Kanada. Þar var hann jafnframt framkvæmdastjóri hátíðahalda Íslendinga vegna landafunda og landnámsafmæla í Kanada og norðurríkjum Bandaríkjanna. Hann varð síðan sendiherra í Stokkhólmi 2001-2005 og jafnframt sendiherra Íslands í Bangladesh, Sri Lanka, Pakistan, Serbíu, Búlgaríu og Albaníu. Hann var sendiherra í Danmörku 2005-2009 og jafnframt sendiherra í Ísrael, Slóveníu, Túnis, Tyrklandi og Rúmeníu. Hann var sérstakur fulltrúi utanríkisráðherra gagnvart Afríkusambandinu 2008. Ráðherra í fjórum ríkisstjórnum Svavar var viðskiptaráðherra í annarri ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar 1978 til 1979, heilbrigðis- og tryggingaráðherra og félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980 til 1983 og menntamálaráðherra í annarri og þriðju ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 1988 til 1991. Ríkisráðsfundur 1. september 1978. Talið frá vinstri: Steingrímur Hermannsson, Magnús H. Magnússon, Hjörleifur Guttormsson, Ólafur Jóhannesson, Kristján Eldjárn forseti Íslands, Benedikt Gröndal, Kjartan Jóhannsson, Guðmundur Benediktsson ríkisráðsritari, Ragnar Arnalds, Svavar Gestsson og Tómas Árnason.Stjórnarráðið Svavar var formaður Alþýðubandalagsins 1980-1987, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins og óháðra 1995-1999, sat í miðstjórn og framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins 1968-1999, var í ritstjórn tímaritsins Réttar um langt árabil. Hann skrifaði fjölda blaða- og tímaritsgreina. Árið 1995 kom út eftir hann bókin Sjónarrönd sem fjallaði um jafnaðarstefnu. Árið 2012 sendi hann frá sér sjálfsævisöguna Hreint út sagt. Svavar sat í stjórn Landsvirkjunar 1995-1997, í stjórn Ríkisspítalanna 1991-1994 og var formaður stjórnar Norræna menningarsjóðsins 1996-1997. Hann var einn af þremur yfirskoðunarmönnum ríkisreikninga 1991-1995. Hann sat fjögur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Formaður samninganefndar um Icesave Svavar var formaður ráðherranefndar EFTA 1979, var formaður vestnorræna ráðsins 1998 og í ráðinu um árabil. Hann sat í þjóðhátíðarnefnd 1994 í tilefni fimmtíu ára afmælis lýðsveldisins. Hann var formaður embættismannanefndar sem samdi um Icesave reikningana í Bretlandi og Hollandi eftir bankahrunið á Íslandi. Þeir samningar voru samþykktir á Alþingi og forseti Íslands undirritaði lögin. Bretar og Hollendingar höfnuðu þeim lögum. Í framhaldi af þeim voru því gerðir nýjir samningar sem samþykktir voru á alþingi. Þeim samningum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu 2010. Svavar mætti í heilbrigðisráðuneytið þann 1. desember 2017 ásamt fjölmiðlafólk en þann dag tók Svandís dóttir hans við lyklavöldum í ráðuneytinu. Svavar færði dóttur sinni blómvönd og bókagjöf; sérprentun um Haraldínu Haraldsdóttur úr tímaritinu Breiðfirðingi. Svavar var sjálfur ritstjóri Breiðfirðings, tímarits Breiðfirðingafélagsins.Vísir/Elín Margrét Svavar var gerður að heiðursfélaga Íslendingafélagsins í Vatnabyggð Saskatschewan árið 2000. Hann sat í stjórn Þjóðræknisfélags Íslendinga á Íslandi 2010-2017 og var formaður heiðursráðs þess til 2018. Þá var hann heiðursfélagi í Þjóðræknisfélaginu frá 2018. Hann var í stjórn Félags fyrrverandi alþingismanna 2011-2017, var formaður þess 2014-2017. Hann var ritstjóri tímaritsins Breiðfirðings 2015-2019 og var í stjórn Ólafsdalsfélagsins. Þá var hann ritari Sturlunefndar og varaformaður Eiríksstaðanefndar. Svavar var ötull talsmaður Gullna söguhringsins sem nær frá Búðardal, út fyrir Klofning og að Saurbæ. Fjallað var um verkefnið sem nú er orðið að veruleika í þættinum Um land allt árið 2017. Hann sat í stjórn Hins íslenska fornritafélags frá 2018. Svavar eignaðist þrjú börn og meðal þeirra er Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, eins og áður sagði. Kona hans er Guðrún Ágústsdóttir fyrrverandi forseti borgarstjórnar Reykjavíkur. Fyrri kona Svavars var Jónína Benediktsdóttir ritari, fædd 1943 og látin 2005.
Andlát Alþingi Mest lesið Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Innlent Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Furðu lostin yfir bílaplani í grænmetisparadís Innlent Sturluðu myndskeiði af „Nýja-Gasa“ deilt á samfélagsmiðlum Trump Erlent Fleiri fréttir Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Bein útsending: Öryggismál í öndvegi Bæjarskrifstofan snýr aftur til Grindavíkur Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs: „Mesta bull sem ég hef heyrt“ Furðu lostin yfir bílaplani í grænmetisparadís Tekur varaformannsslaginn Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Ráðist í skipulagsbreytingar og þremur sagt upp Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Kátt á hjalla í Karphúsinu í gærkvöldi Leggjast aftur yfir myndefnið Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Sjá meira