Þrettán fórust í árekstri jeppa og vöruflutningabíls Kjartan Kjartansson skrifar 2. mars 2021 19:28 Lögreglumenn á vettvangi slyssins í dag. Malarflutningabíl var ekið inn í jeppa með 25 manns um borð. AP/Gregory Bull Þrettán manns eru látnir eftir harðan árekstur jeppa og vöruflutningabíls á hraðbraut í sunnanverðri Kaliforníu í Bandaríkjunum í dag. Talið er að 25 manns hafi verið um borð í jeppanum.
Slysið átti sér stað á hraðbraut sem liggur um landbúnaðarhérað um 160 kílómetrum austur af San Diego, um átján kílómetrum norður af landamærunum að Mexíkó. Lögreglustjóri á svæðinu segir við AP-fréttastofuna að tólf manns hafi verið úrskurðaðir látnir á vettvangi og sá þrettándi á sjúkrahúsinu. Upphaflega greindu talsmenn sjúkrahússins í El Centro þangað sem flestir þeirra slösuðu voru fluttir frá því að fimmtán væru látnir. AP-fréttastofan uppfærði frétt sína í kjölfarið og sagði þrettán látna. Fjöldi annarra farþega í bílnum slasaðist í árekstrinum og var fluttur á sjúkrahús. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu en óvenjumargir farþegar voru í jeppanum. Jeppinn var af gerðinni Ford Expedition og tekur átta manns. AP segir að malarflutningabílnum hafi verið ekið inn í jeppann. Landamæraverðir aðstoða nú lögreglu við rannsókn á slysinu. Ekki er vitað hvort að fólkið í jeppanum hafi verið með landvistarleyfi í Bandaríkjunum. Marcario Mora, talsmaður Tolla- og landamæraeftirlits í Yuma og El Centro, segir að mögulega hafi verið um farandverkamenn að ræða. Uppskerutímabil stendur nú yfir á káli og fleiri jurtum á svæðinu þar sem slysið varð. Bændur í sunnanverðri Kaliforníu reiða sig mjög á erlenda farandverkamenn. Frá Imperial-sýslu í sunnanverðri Kaliforníu þar sem slysið varð. Sýslan er landbúnaðarsvæði og er talið mögulegt að fólkið í jeppanum hafi verið farandverkamenn.Vísir/Getty Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira