Næstum því allir þingmenn Demókrataflokksins greiddu atkvæði með frumvarpinu, sem ber titilinn House Resolution 1 eða H.R. 1, og allir Repúblikanar greiddu atkvæði gegn því.
Verði það samþykkt í öldungadeildinni yrðu þetta umfangsmestu breytingar á kosningalöggjöf Bandaríkjanna um áraraðir.
Frumvarpið myndi meina stjórnmálamönnum að breyta kjördæmum eftir eigin duttlungum til að bæta stöðu sinna flokka, sem kallast „gerrymandering“ á ensku. Það myndi fjarlægja hindranir varðandi það að greiða atkvæði og gera fólki auðveldara að kjósa fyrir sjálfan kjördag, auk þess sem að löglegir kjósendur þyrftu ekki lengur að skrá sig sjálfir á kjörskrá í aðdraganda kosninga.
Þá myndi frumvarpið auka gagnsæi varðandi fjárveitingar til stjórnmálaflokka og frambjóðenda á þann veg að auðjöfrar gætu ekki veitt peningum í stjórnmál með nafnleynd. Sá hluti frumvarpsins er sérstaklega óvinsæll meðal Repúblikana.
Frumvarpið myndi þar að auki þvinga samfélagsmiðlafyrirtæki til að merkja pólitískar auglýsingar, búa til siðferðisreglur fyrir hæstaréttardómara í fyrsta sinn og þvinga forsetaframbjóðendur til að opinbera skattaskýrslur sínar, svo eitthvað sé nefnt.
Á sama tíma og Demókratar samþykkja þetta frumvarpi í fulltrúadeildinni eru Repúblikanar í ríkisþingum víða um Bandaríkin að reyna að koma á reglum og lögum sem myndu gera mörgum erfiðara að kjósa og draga úr kosningaþátttöku. Þá áherslu þeirra byggja Repúblikanar á ósannindum um heillindi forsetakosninganna í nóvember í fyrra.
Í frétt AP fréttaveitunnar segir að mikið sé í húfi og átök þessi milli flokkanna gætu haft áhrif á kosningar langt fram í tímann.
„Allt er í húfi. Við verðum að vinna þetta kapphlaup, þennan slag fyrir frumvarpinu,“ sagði Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, eftir að frumvarpið var samþykkt í gær.
Aðrir þingmenn Demókrataflokksins segja kosningarétt almennings í húfi.
Repúblikanar halda því fram að með frumvarpinu sé Demókratar að reyna að bæta stöðu sína á kostnað þeirra. Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni, kallaði frumvarpið nýlega skrímsli og sagði nauðsynlegt að stöðva það.
Hæstiréttur Bandaríkjanna er samkvæmt AP líklegur til að staðfesta ný lög í Arizona sem myndu gera fólki erfiðara að greiða atkvæði utan kjörfundar, heimila embættismönnum að ógilda atkvæði sem væri skilað í öðru kjördæmi en þar sem viðkomandi kjósandi er skráður og gera erfiðara að breyta kosningalögum í framtíðinni.
Lögmaður Repúblikanaflokksins í Arizona var spurður af hverju Repúblikanar vildu gera þessi lög, var hann tiltölulega berorður og sagði að þau bættu stöðu Repúblikana gagnvart Demókrataflokknum í ríkinu.
„Í pólitík er eins dauði annars manns brauð.“
Demókratar stefna einnig að því að samþykkja annað frumvarp varðandi kosningalög en örlög þeirra beggja í öldungadeildinni eru óráðin. Þar myndu þingmenn Repúblikanaflokksins þurfa að styðja þau einnig. Þar sem 60 þingmenn af hundrað þurfa að greiða atkvæði með flestum tegundum frumvarpa til að samþykkja þau.
Jafnvel þó útlit sé fyrir að frumvörp verði ekki samþykkt í öldungadeildinni segir Chuck Schumer, leiðtogi Demókrataflokksins þar, að hann muni halda atkvæðagreiðslur um þau.
Þannig vill hann þvinga þingmenn Repúblikanaflokksins til að greiða opinberlega atkvæði gegn frumvörpum sem snúa jafnvel að málefnum sem eru vinsæl meðal kjósenda.
Hér má sjá stutt útskýringarmyndband frá Washington Post um það hvernig „gerrymandering“ virkar.