Lífið

Flóni og Villi Vill hamast í Siglfirsku Ölpunum

Snorri Másson skrifar
Óvænt tvíeyki: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Friðrik Róbertsson á fjallaskíðum.
Óvænt tvíeyki: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Friðrik Róbertsson á fjallaskíðum. Instagram

Rapparinn Flóni, Friðrik Róbertsson, og stjörnulögfræðingurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hafa notið lífsins í Siglfirsku Ölpunum um helgina, þar sem þeim er skutlað upp á fjall með þyrlu til þess eins að skíða aftur niður. 

Eftir langan dag á fjallinu náði Vísir tali af Flóna, sem hefur farið sjö ferðir upp á fjall með þyrlunni í dag. „Ég er alveg dauður. Þetta var ógeðslega erfitt en ógeðslega gaman. En þetta er besta ferð ársins, það er enginn vafi,“ segir rapparinn.

Sjálfur er Flóni harður skíðamaður og vanur brettamaður en hefur ekki stundað þyrluskíði í neinum mæli. Hann ber íþróttinni þó vel söguna og hrósar sigri yfir því að vera sólbrunninn eftir daginn.

Þyrluskíði eru annars eðlis en venjuleg, útskýrir Flóni.INSTAGRAM

Flóni og Villi skipulögðu í sjálfu sér ekki að fara saman upp í fjall en hittust í túrnum hjá Viking Heliskiing sem hefur boðið upp á svona ferðir um nokkurt skeið. Góð vinátta tókst auðvitað sjálfkrafa með þeim félögum, sem eru þó hluti af um 30 manna hópi sem dvelur á hóteli í bænum í sérstakri þyrluskíðaferð.

Hópurinn tók því síðan rólega á Siglufirði í kvöld, þar sem farið var út að borða og veðurblíðunnar notið nú þegar dagarnir eru farnir að lengjast. Það er ágætt á meðan enn er snjór í fjöllunum.

Uppfært kl. 23.00:

Vísi hefur borist kvæði frá hagyrðingnum Þórði Vilbergi Oddssyni. Ekki verður hjá því komist að leyfa því að fylgja með. 

Tvíeykið er býsna bratt,

í brekkunum á Fróni.

Á Vísi lifa vinir hratt,

Vilhjálmur og Flóni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.