Davíð Örn Símonarson stofnaði Smitten með Ásgeir og bendir á að í raun eigi það betur við að kalla Smitten afþreyingarapp fyrir einhleypa frekar en stefnumótaapp. Og þá hafi það þegar sannast að Smitten sé mun skemmtilegra en Tinder.
Á síðastliðnum áratug hafa stofnendur Smitten unnið og fylgt eftir ýmsum nýsköpunarverkefnum, nú síðast Smitten stefnumóta- og/eða afþreyingarappinu sem um tuttugu þúsund manns á Íslandi hafa hlaðið niður.
Smitten var stofnað árið 2018 og í dag starfa þar níu manns.
Tinder: Gamaldags og leiðinlegt?
Ásgeir Vísir og Davíð hafa síðastliðin rúm átta ár unnið að ýmsum nýsköpunarverkefnum saman.
Öll hafa þau gengið út á að tengja saman fólk: samfélagsmiðla-appið Blendin, Watchbox, Watchbox for work og hið alvörugefna stefnumóta-app The One.
Að því síðastnefnda stóð Magnús Ólafsson tæknistjóri Smitten líka að því að þróa, en hann bættist fljótlega í hópinn með Ásgeir og Davíð.
Þegar Smitten var kynnt til sögunnar í fyrra, lýstu þeir félagar því strax yfir að markmiðið væri að taka við kyndlinum af Tinder.
En hvers vegna að búa til Smitten fyrst Tinder var orðið til sem svona vinsælt app?
„Tinder kom út árið 2012 og er því orðið um níu ára gamalt app. Bransinn hefur þróast mikið frá því að fyrsta netvædda stefnumótaþjónustan fór af stað árið 1995 en það var þegar að match.com lénið var skráð,“ segir Davíð.
Með Match.com stækkaði stefnumótalaugin verulega árið 1995 því allt í einu gat fólk leyst úr einu stærsta vandamáli ástleitinna einstaklinga:
Að kynnast!
Að sögn Ásgeirs og Davíðs átti Match.com markaðinn næstu árin á eftir.
Eða allt þar til Tinder kom á markaðinn.
Með Tinder var stefnumótunarþjónustan orðin meira sérsniðin. Ekki var lengur hægt að senda bara öllum skilaboð eins og hægt var á Match.com heldur þurfti fólk sjálfviljugt að vilja tengjast.
Þetta þýðir að á Tinder þurfa báðir aðilar að vera samþykkir því að vilja kynnast. Svona rétt eins og gildir um vinabeiðnir á Facebook og víðar.
Að mati Ásgeirs og Davíðs, sýnir Tinder merki um það í dag að vera orðið svolítið gamaldags og þreytt í hugum notenda.
„Í dag er vandamálið tvíþætt, annarsvegar að fólk talar ekki saman, þó það verði til tenging, og hins vegar að eftir svolítinn tíma fer þetta að líkjast vinnu, frekar en einhverju sem er skemmtilegt að gera,“ segir Ásgeir og Davíð bætir við:
Smitten gerir notendum jafn auðvelt að byrja áhugavert samtal og að ,,læka“ hvort annað á öðrum stefnumóta-öppum.
Bæði notendur okkar og tölurnar tala sínu máli, en gögnin sýna að varan er nú þegar á heimsklassa og endurgjöf notenda er nánast undantekningarlaust að Smitten sé skemmtilegra en Tinder.“

Með 17 stefnumóta-öpp í símanum
Davíð og Ásgeir segja þróun Smitten í fullum gangi og að nú standi appið á vegamótum þar sem fjórir heimar eru að mætast:
- Stefnumótaþjónusta
- Tölvuleikir
- Samfélagsmiðlar
- Afþreying.
„Við lítum ekki á Smitten sem stefnumóta-app í sjálfu sér, heldur afþreyingar-app fyrir einhleypa, en við erum enn að þreifa fyrir okkur hvað það þýðir nákvæmlega,“ segir Davíð.
Að sögn þeirra félaga, hafa flestir sem hafa verið einhleypir á síðustu átta árum eða svo, prófað Tinder. Þeir sem standa að Smitten eru engin undantekning á því.
Það var auðvitað skrýtið fyrir kærusturnar okkar að vita af því að við erum með um 17 stefnumótaforrit á símanum, en það er mikilvægt að vera meðvitaður um hvað samkeppnin er að gera og hvert bransinn er að stefna,“
segir Ásgeir.
Því að mati þeirra félaga, liggur ekki alveg ljóst fyrir hvernig stefnumóta-öpp munu í rauninni þróast og skilgreina sig til framtíðar.

Stefna hátt og að allir njóti
Davíð og Ásgeir segja fyrri reynslu sína af eldri nýsköpunarverkefnum nýtast vel við rekstur og þróun Smitten.
,,Það er ekkert til sem heitir einnar nætur árangur eða eins og oft er sagt á ensku: ,,Overnight success.“ Það hefur í raun tekið rúm átta ár, fimm öpp og marga tugi milljóna að gefa út Smitten,“ segir Davíð og bætir við: ,,Við hefðum aldrei getað gefið út Smitten nema af því að við höfum verið svo heppnir að fá tækifæri til að læra af mistökunum okkar og halda áfram.“
Þá segja þeir félagar að þótt Smitten stefni að víðtækri dreifingu um allan heim, sé Ísland góður staður til að gefa út ný öpp.

Þannig sé Ísland ódýrari og einfaldari markaðurinn til að byggja upp notkun og læra af viðtökum á einum afmörkuðum stað þar sem markhópurinn er frekar nálægur.
Að geta staðið fyrir nýsköpun á Íslandi sé þó aðeins hægt ef stuðningurinn er til staðar fyrir frumkvöðlana sjálfa.
Þar segir Ásgeir þá félaga vera heppna.
„Við verið heppnir með fjárfesta og maka sem hafa haft trú á okkur sem teymi og við fengið tækifæri til þess að elta draumana okkar, þó að oft á tíðum hafi verkefnin ekki gengið upp,“ segir Ásgeir.
Í dag eru allir starfsmenn Smitten hluthafar.
„Smitten verður aldrei betra en þeir sem vinna hjá fyrirtækinu og við trúum því að þeir sem taka þátt í ævintýrinu eigi ekki bara að fá samkeppnishæf laun, heldur einnig hlut í fyrirtækinu. Þess vegna eru eigendur fyrirtækisins allir sem vinna hjá fyrirtækinu,“ segir Davíð en skýrir út að enn séu stofnendur aðaleigendur félagsins.
Hugmyndin er hins vegar að allir njóti góðs af velgengninni síðar.
„Það er á ábyrgð okkar allra að gera vöruna framúrskarandi og þegar fyrirtækið fer á markað eða verður selt, þá eiga starfsmenn að fá hluta af ágóðanum,“ segir Ásgeir.
Ásgeir segir mikinn uppgang og hug í Smitten þessi dægrin. Að standa að nýsköpun og hafa þrautseigjuna til að fylgja þeirri nýsköpun eftir, taki á en nýsköpun kalli líka á ákveðna ástríðu:
„Það eru svo óendanlega margir hlutir sem þurfa að koma saman til þess að búa til vöru sem fólk elskar og fyrirtæki sem fólk þráir að vinna fyrir," segir Davíð og Ásgeir bætir við: „Síðustu ár hafa kennt okkur margt og vegferðin framundan mun kenna okkur ennþá meira!“