Innlent

Gæslan samþykkti tillögu Áslaugar og metur fimm tilboð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Georg Lárusson um borð í Þór  í mars þegar tilkynnt var um kaupin á nýju varðskipi.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Georg Lárusson um borð í Þór  í mars þegar tilkynnt var um kaupin á nýju varðskipi. Aðsend

Nýlega efndu Ríkiskaup og Landhelgisgæsla Íslands til útboðs vegna kaupa á nýju varðskipi sem ljóst er að mun fá nafnið Freyja. Fimm tilboð bárust að því er segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Tilboðin voru frá Atlantic Shipping A/S, C‐solutions ehf, Havila Shipping ASA, Maersk Supply Service A/S og United Offshore Support GmbH. Tilboð voru opnuð í gær og nú er unnið að því að meta þau.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra tilkynnti í mars að nýlegt varðskip yrði keypt fyrir Landhelgisgæsluna síðar á árinu. Starfshópur hóf strax undirbúning kaupanna. Dómsmálaráðherra lagði til að varðskipið fengi nafnið Freyja en fram að þessu hafa varðskip Landhelgisgæslunnar öll borið karlmannsnöfn úr norrænni goðafræði.

„Landhelgisgæslan tók vel í hugmyndina og hefur þegar tryggt sér einkarétt á skipsnafninu Freyju hjá Samgöngustofu. Gert er ráð fyrir að varðskipið Freyja verði komið til landsins fyrir næsta vetur,“ segir í tilkynningunni.

Tilboðin voru eftirfarandi:

Atlantic Shipping A/S 1.100.000.000 ISK

C‐solutions ehf 1.491.000.000 ISK

Havila Shipping ASA 13.627.000 EUR

Maersk Supply Service A/S 10.000.000 USD

United Offshore Support GmbH 1.753.049.250 ISK

Tilboð Havila umreiknað í íslenskar krónur miðað við gengi dagsins í dag hljóðar upp á rúma tvo milljarða króna. Tilboð Maersk supply upp á rúman 1,2 milljarða króna.


Tengdar fréttir

Nýtt varðskip sem fær líklega nafnið Freyja

Ríkisstjórnin hefur fallist á tillögu dómsmálaráðherra þess efnis að hafist verði handa við kaup á nýlegu varðskipi. Ástæðan er alvarleg bilun í vél varðskipsins Týs. Kostnaður við viðgerð er talin nema meiru en sem svarar verðmæti skipsins eða um hundrað milljónum króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×