Bar skylda til að upplýsa um gamalt lekavandamál í einbýlishúsi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. júní 2021 10:39 Einbýlishúsið sem deilt var um fyrir dómi er á Blönduósi. Vísir/Vilhelm Hjón á Blönduósi hafa verið dæmd til að greiða hjónum og syni þeirra tæplega tíu milljónir króna vegna galla á einbýlishúsi sem þau seldu þeim árið 2016. Kaupverð eignarinnar var 22 milljónir króna og vildu kaupendurnir að samningnum yrði rift.
Seljendurnir gerðu gagnkröfu fyrir dómi að yrði fallist á riftun kaupsamnings þyrftu kaupendurnir að greiða þeim 9,6 milljónir króna fyrir afnot af húsinu frá kaupdegi til dagsins í dag, miðað við 200 þúsund króna gjald á mánuði. Í dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra kemur fram að kaupsamningur um fasteign að Húnabraut á Blönduósi hafi verið undirritaður 1. apríl 2016. Kannski viðeigandi því segja má að ýmislegt hafi verið í plati sem átti eftir að koma síðar í ljós. Lekavandamál í haustlægð Kaupendur urðu varir við leka í eigninni haustið 2016. Fengu þau verkfræðistofu til að taka húsið út og lá niðurstaða fyrir í febrúar 2017. Var þá ljóst að eignin þarfnaðist verulegra viðgerða. Ráðast þyrfti í verulega framkvæmdir og var mat skoðunarmanns að þær gætu kostað milljónir króna, ef ekki tugmilljónir. Kaupendur lýstu yfir riftun á kaupsamningi í febrúar 2020 eftir misheppnaðar viðræður við seljendur um lausn í málinu. Í ljósi þess að þrjú ár liðu frá því að gallinn kom í ljós og þar til lýst var yfir riftun féllst dómurinn ekki á kröfu um riftun. Kaupendur hefðu glatað rétti sínum til þess með tómlæti. Að sama skapi var þá krafa seljenda um bætur ekki tekin til skoðunar. Dómurinn taldi kaupendurna þó ekki hafa fyrirgert rétti sínum til skaðabóta eða afsláttar af kaupverðinu enda hefðu þeir gert kröfu um slíkt allt frá því snemma árs 2017. Kröfur um skaðabætur voru í sex liðum. Bætur vegna múrviðgerðar og ónýts þaks á bílskúr Fyrsta krafan var um 3,7 milljónir í bætur vegna kostnaðar við múrviðgerð. Seljendur voru meðvitaðir um leka sem varð í húsinu árið 2013. Þau létu kaupendur ekki vita af honum og báru fyrir að þau hefðu talið vandamálið vera úr sögunni. Dómurinn taldi viðgerðir greinilega ekki hafa verið fullnægjandi. Þá hefðu þau átt að greina kaupendum frá vandamálinu sem hefði komið upp. Var því fallist á þessa kröfu kaupenda. Sömuleiðis féllst dómurinn á kröfu um fimm milljónir króna í bætur vegna þess að þak á bílskúr var ónýtt. Engin leið var fyrir kaupendur að átta sig á því að þakið væri skemmt við kaupin og hafi heldur ekki verið við seljendur að sakast. Var fallist á þá kröfu kaupenda. Þá var fallist á að seljendur ættu að greiða kaupendum 768 þúsund krónur fyrir kostnað við vinnupalla, spörtlun og málun. Lagnir, gluggar og svalir komin til ára sinna Hins vegar var ekki fallist á kröfur um milljónir í bætur vegna úrbóta á neyslu- og hitavatnslögnum enda hefði ekkert komið fram um að um leyndan galla væri að ræða. Þær væru einfaldlega komnar til ára sinna vegna aldurs. Þá var ekki fallist á kröfur um bætur vegna endurbóta á svölum enda hafi slæmt ástand þeirra verið öllum augljóst við undirritun kaupsamnings. Sömu sögu var að segja um kröfu um bætur vegna endurbóta á gluggum. Samanlagður kostnaður við að bæta úr göllum nam því tæplega tíu milljónum króna eða rúmlega 45% af kaupverði eignarinnar. Samkvæmt fasteignalögum telst eignin því gölluð og eiga því rétt á afslætti af kaupverði. Dráttarvextir voru miðaðir við mánuð frá þingfestingu. Þá voru seljendurnir dæmdir til að greiða hluta af málskostnaði kaupenda, alls eina milljón króna.
Dómsmál Fasteignamarkaður Blönduós Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Yfirlýsingar í fjölmiðlum um verðhækkanir gætu verið lögbrot Fá á baukinn frá Neytendastofu fyrir skort á íslensku Lykilatriði að nota alltaf sama kortið til að greiða fargjaldið Verð á raforku rokið upp um tugi prósenta á einu ári Hægt að borga með korti í strætó Drekinn og King Kong fá á baukinn fyrir að auglýsa nikótínvörur Loka verslun í Smáralind Verðstríð á jólabókamarkaði og hátt í þrefaldur verðmunur „Gamla góða“ Cocoa Puffsið aftur í verslanir Bilun hjá Símanum Freyju og Góu blöskrar ummæli frá Nóa Siríus ÁTVR hafi haldið dýrari og sterkari bjór að neytendum Lækka það sem fæst hjá öðrum en hækka hitt Dominos hækkar verð á þriðjudagstilboðinu Fengu ekki að tjá sig og sektin helminguð ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Flóðin á Spáni hafa áhrif á jólahefð Íslendinga Fékk 542 þúsund króna rukkun fyrir hreindýrakjötið Sektuð vegna fullyrðinga um aukinn hárvöxt og minni hrukkur EasyJet lengir flugtímabil frá London til Akureyrar Níu varðhundar neytenda sameinast á einum vef Hélt tryggingunni vegna geymslu á innbúi í Grindavík Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Sjá meira