Þórir Jóhann seldur til Ítalíu Sindri Sverrisson skrifar 15. júlí 2021 09:16 Þórir Jóhann Helgason hefur yfirgefið FH og spilar með Lecce í vetur. vísir/bára Knattspyrnumaðurinn Þórir Jóhann Helgason ferðast til Lecce á Ítalíu í dag og gengur þar endanlega frá samkomulagi við samnefnt félag sem spilar í næstefstu deild.
Lecce greinir frá því á heimasíðu sinni í dag að félagið hafi gert samning við Þóri sem gildi til fjögurra ára, með möguleika á fimmta ári, en hann á þó eftir að fara í læknisskoðun í dag. Þórir kemur til Lecce frá FH og verður liðsfélagi Brynjars Inga Bjarnasonar sem kom til Lecce frá KA fyrir skömmu. Báðir voru þeir í íslenska A-landsliðshópnum sem spilaði vináttulandsleiki fyrir einum og hálfum mánuði. Þar lék Þórir sinn fyrsta A-landsleik, í 2-1 tapinu gegn Mexíkó. Þórir var í íslenska hópnum á EM U21-landsliða í mars og lék þar einn leik, og á samtals sjö leiki að baki fyrir U21-landsliðið. Þórir kom til FH frá Haukum fyrir þremur árum. Þessi tvítugi miðjumaður hefur þegar leikið 46 leiki í efstu deild og skorað þrjú mörk. Lecce endaði í 4. sæti ítölsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð en féll naumlega úr leik í undanúrslitum umspils um sæti í efstu deild. Þórir skilur við FH í óvanalegri stöðu, í 10. sæti Pepsi Max-deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Ítalski boltinn Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Styrmir nýr formaður hjá Val Verður einn sá dýrasti í sögu KR HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Messi fer á sjötta heimsmeistaramótið Snýr aftur heim til Víkinga Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Írar unnu góðan sigur „Skítugur blettur á íþróttinni okkar“ Allegri ráðinn þjálfari Napoli Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Sjá meira