Skoðun

Þegar illska og skepnuskapur manna keyrir úr hófi; nú í Færeyjum

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Auðvitað eru margir uppteknir af kosningunum, sem fram undan eru, og úir hér og grúir af greinum og málflutningi þeim tengdum. En annað líf heldur líka áfram, og má ekki gleymast.

Sl. sunnudag ráku Færeyjangar hátt í tvö þúsund höfrunga upp í Skálafjörð og meitluðu þar lífið úr 1.428 dýrum, með sveðjum og spjótum, þar til að allt flaut í blóði. Heiftarlegt og hörmulegt blóðbað, sem enginn raunverulegur tilgangur var með og alls engin þörf var á. Ekstra Bladet í Danmörku kallar þetta blóðæði.

Yfirleitt hefur manni fundist, að Færeyingar séu skikkanlegt fólk, rólegt, yfirvegað og mannlegt, en þegar kemur að drápsvenjum á ýmsum sjávardýrum, virðast þeir tapa glórunni og tekur þá miskunnarleysi og grimmd völd.

Er hér vitnað í reglubundið dráp Færinga á grindhvölum, sem eru reknir í torfum upp á strönd, þar sem stjaki með járnkló er rekinn í loftholu dýranna, sem auðvitað eru feykilega viðkvæmt líffæri, til að negla þau, og svo eru dýrin meitluð til dauða með spjótum og sveðjum.

Breytist þá litur víka og fjarða úr bláum lit í rauðan. Venjulegir menn geta vart skilið þetta atferli og þennan trylling siðmenntaðra manna, sem ættu að vera.

Nú væri það eitt, ef Færeyingar væru fátæk þjóð og sveltandi, þyrfti á drápi höfrunga og grindhvala að halda til að að svelta ekki og komast af. Því fer víðs fjarri að svo sé. Færeyingar er vel efnuð þjóð, og er velmegun þar mikil, þar kemur mikill fiskafli að landi, og skortir þar engan mat eða viðurværi, eftir því sem bezt verður séð.

Á öldum áður mun þetta hafa verið öðruvísi, þá þurftu eyjamenn oft að fara í grindhvala drápið til að komast af. Nú er þetta mest „sport og skemmtun“ Færeyinga, virðist vera. Sögur fara af því, að gamalt grindhvalakjöt sé tekið úr frystum og því hent eða grafið í jörðu, til að rýma fyrir nýju, eðlilegu sláturkjöti.

Þeim mun hryggilegra er þetta fjöldadráp – eða fjöldamorð – á 1.428 saklausum og varnarlausum höfrungum, þar sem höfrungar eru taldir með gáfuðustu og tilfinningaríkustu dýrum hafsins.

Þeir eru félagslyndir, fara yfirleitt saman í hópum, vinna saman við veiðar, sýna þar af sér mikla greind og mikla skipulagsgáfur, ef einn meiðist, slasast eða veikist, fær hann hjálp frá öðrum í hópnum.

Leikgleði höfrunga er mikil og alls staðar þekkt, og fylgja þeir oft eftir skipum og leika þar alls konar listir í kring, áhöfnum og öðrum, sem til sjá, til skemmtunar og gleði. Köfurum sýna þeir oft mikla vinsemd og vinahót.

Frumtegund höfrunga er oft kölluð hundfiskur, enda líkjast höfrungar hundum á margan hátt, að greind og mannelsku. Grikkir til forna mátu höfrunginn svo mikils, að hann var talinn ímynd guðsins Appollos.

Mikil má skömm þeirra Færeyinga vera, sem að þessari tilgangslausu og hryllilegu slátrun á 1.428 saklausum og varnarlausum höfrungum stóðu, líka er skömm þeirra annarra Færeyinga nokkur, sem stóðu álengar, horfðu á og létu þetta gerast án athugasemda eða tilfrauna til inngrips.

Höfundur er stofandi og formaður Jarðarvina, félags um dýra-, náttúru og umhverfisvernd




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×