Þunglyndislyf gæti nýst gegn sjúkdómi sem leiðir til blindu Fanndís Birna Logadóttir skrifar 21. október 2021 14:25 Lyfið er selt í Bandaríkjunum undir heitinu Prozac. Ný rannsókn vísindamanna við læknadeild Háskólans í Virginíu bendir til að þunglyndislyfið fluoxetine geti reynst áhrifaríkt til að koma í veg fyrir aldursbundna augnbotnahrörnun. Lyfið er þekkt í Bandaríkjunum undir heitinu Prozac.
Sjúkdómurinn, AMD, er lang algengasta ástæða blindu og alvarlegrar sjónskerðingar fólks eldri en 50 ára og glíma ríflega 200 milljón manns víða um heim við sjúkdóminn. Að því er kemur fram í tilkynningu um málið var lyfið notað í tilraunum á dýrum auk þess sem vísindamenn fóru yfir tvo gagnabanka tryggingafélaga sem innihéldu upplýsingar um fleira en 100 milljónir Bandaríkjamanna. Niðurstöður rannsóknarinnar voru nýverið birtar í læknaritinu PNAS en niðurstöðurnar sýndu að það væru minni líkur á að fólk þróaði með sér sjúkdóminn ef þau tóku fluoxetine. Við rannsóknina voru átta önnur þunglyndislyf einnig gefin en enginn þeirra sýndu sömu virkni og fluoxetine. Kallað hefur verið eftir því að klínísk rannsókn fari nú fram þar sem áhrif lyfsins á fólk sem glímir við sjúkdóminn verða könnuð. Reynist það áhrifaríkt væri hægt að gefa lyfið ýmist munnlega eða með ígræðslu í auga. Vísindamennirnir segja að um sé að ræða spennandi dæmi um nýtingu lyfja í öðrum tilgangi en þeim var upprunalega ætlað. Mögulegt sé að hægt sé að kanna áhrif annarra lyfja á aðra sjúkdóma og með því draga verulega úr þeim tíma sem vanalegast tekur að fá nýtt lyf samþykkt og flýta fyrir meðferð sjúklinga.
Lyf Bandaríkin Geðheilbrigði Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira