Erlent

Nýr ákærudómstóll skoðar sönnunargögn í máli Trump

Kjartan Kjartansson skrifar
TIl rannsóknar er hvort að fyrirtæki Trump hafi ýmist slegið í eða úr um verðmæti eigna sinna, allt eftir hvað hentaði því hverju sinni.
TIl rannsóknar er hvort að fyrirtæki Trump hafi ýmist slegið í eða úr um verðmæti eigna sinna, allt eftir hvað hentaði því hverju sinni. Vísir/EPA

Saksóknarar í New York hafa kallað saman nýjan ákærudómstól sem á að leggja mat á sönnunargögn í rannsókn á mögulegum brotum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta.

Rannsóknin á Trump og fyrirtæki hans hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Hún beinist að því hvort að Trump hafi blekkt banka og skattayfirvöld um raunveruleg verðmæti eigna fyrirtækisins. Hann hafi ýmist ýkt virði þeirra til að fá hagstæðari lán eða gert lítið úr þeim til að komast hjá skattgreiðslum.

Allen Weisselberg, fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins til margra ára, hefur þegar verið ákærður í tengslum við rannsóknina. Hann er sakaður um skattsvik og að fela sporslur sem hann hlaut frá fyrirtækinu.

AP-fréttastofan segir að saksóknararnir íhugi nú að gefa út fleiri ákærur. Í því skyni hafi þeir kallað saman ákærudómstóll. Slíkir dómstólar eru nokkurs konar kviðdómar sem taka afstöðu til hvort að efni standi til að gefa út ákærur í málum. Þetta er annar ákærudómstóllinn sem þeir kalla til við rannsóknina.

Saksóknarar svæðissaksóknarans í New York vinna með dómsmálaráðherra ríkisins að rannsókninni. Washington Post segir að skipan ákærudómstólsins nú þýði ekki endilega að fyrirtæki Trump eða stjórnendur þess verði ákærðir.


Tengdar fréttir

Fjármálastjóri Trumps lýsti yfir sakleysi sínu

Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í New York í dag. Það gerði hann í kjölfar þess að hann var ákærður fyrir skattsvik vegna tveggja ára langrar rannsóknar saksóknara á fyrirtæki forsetans fyrrverandi.

Ákæra fyrirtæki og fjármálastjóra Trump

Bandarískir miðlar greina frá því að gefin hafi verið út ákæra á hendur Trump Organization, fyrirtæki fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og fjármálastjóranum Allen Weisselberg vegna meintra skattalagabrota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×