Guðrún Helga er að hluta til búsett í Senegal með eiginmanni og börnum og hefur fjölskyldan í gegnum tíðina ferðast mikið. Þegar þau eru á flakki kennir hún börnum sínum í heimakennslu og vinnur Guðrún sjálf fjarvinnu.
Hún heimakenndi fyrst þegar hún var stödd í Senegal að gera rannsókn fyrir doktorsverkefni sitt.
„Eftir það þá tók ég þá ákvörðun að ég ætlaði ekki að vinna neina vinnu sem krefðist þess að ég væri föst einhvers staðar af því að mér fannst þetta bara vera lífið að geta farið með börnin þangað sem ég vil og þegar ég vil,“ sagði Guðrún Helga Jóhannsdóttir, móðir.
Mikið frelsi
Hún segir frelsið og samveru með börnunum aðal kostinn við fjarvinnu. Með fjarvinnu sé hægt að ferðast um allan heim auk þess sem hún losnar við það að sitja í umferð á leiðinni heim úr vinnu.
„Fyrir mér finnst mér það minnka álagið á bæði mig og heimilið.“
Guðrún fær námsgögn frá skólanum og kennir börnunum sjálf. Oftast hefst skóladagurinn klukkan hálf 10 og stendur til klukkan tvö, þrjú á daginn, en það fer eftir dagsformi barnanna hve lengi er setið við. Ef þau komast í gírinn er haldið áfram en ef dagsformið er ekki upp á tíu þá finnur Guðrún önnur verkefni.
„En við blöndum mikið hinu daglega lífi inn í hinn hefðbundna lærdóm. Við lesum af skiltum þegar við erum úti að labba og svo sjá þau um að reikna frá sefum yfir í íslenskar krónur en þúsund sefar eru 250 íslenskar krónur þannig þau þurfa alltaf að deila með fjórum.“
Hæglæti og einfaldur lífstíll
Allt er þetta hluti af hugmyndafræði eða lífsstíl sem snýr að hæglæti, en Guðrún situr í stjórn Hæglætishópsins.
Guðrún Helga heldur úti instagraminu Mommy needs to travel sem státar þúsundum fylgjenda. Hún segist reglulega fá fyrirspurnir frá mæðrum sem langar að ferðast.
„Það sem heldur mér gangandi að halda þessu er að ég hef oftar en tvisvar og oftar en þrisvar fengið pósta frá mæðrum sem segja að þetta hafi gefið þeim sparkið sem þær þurftu til að elta draumana sína, alveg þetta er hægt.“