Innlent

Heilsu­gæslan til­búin í slaginn: „Við ætlum að rúlla þessu upp“

Snorri Másson og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa
Brátt heyrir það sögunni til að sjúklingar í einangrun mæti í athugun hjá göngudeildinni á Birkiborg. 
Brátt heyrir það sögunni til að sjúklingar í einangrun mæti í athugun hjá göngudeildinni á Birkiborg.  Landspítalinn/Þorkell

Sóttvarnalæknir telur að faraldur kórónuveirunnar fjari út á næstu vikum. Verið er að loka Covid-göngudeild Landspítalans og fela heilsugæslunni verkefni deildarinnar.

Í gamalli leikskólabyggingu við Landspítalann í Fossvogi hefur mikill hluti daglegrar umönnunar Covid-veikra farið fram, en nú er komið að tímamótum. Nú á að loka deildinni - í skrefum á næstu vikum. Sýnt var frá starfseminni á lokametrunum í kvöldfréttum Stöðvar 2:

„Ég er að upplifa ákveðinn létti þessa dagana. Mér finnst þetta vera, ekki endilega dagurinn í dag, en undanfarnir dagar og það sem er fram undan finnst mér vera mjög jákvætt og góðar fréttir, að við séum að fara út úr þessari vinnu,“ segir Sólveig Sverrisdóttir deildarstjóri göngudeildarinnar.

„Covid-veikindin eru miklu minni en þau voru, þannig að það er svona að fjara út svolítið,“ segir Sólveig.

Heilsugæslan tekur nú við verkefnum göngudeildarinnar - að vera í sambandi við sjúklingana - en fárveikt fólk kemur vitaskuld áfram á sjúkrahús.

„Ef einhver þarf að hitta lækni og ekki er hægt að leysa það í gegnum fjarþjónustu verður það áfram gert hér. En síðan í framhaldinu er því spáð alla vega að þetta verði bara eins og hver önnur flensuvertíð,“ segir Sólveig.

Sóttvarnalæknir bindur vonir við að þjóðin sé á góðri leið inn í hjarðónæmisástand og telur ekki óvarlegt að ætla að um helmingur þjóðarinnar sé búinn að sýkjast og jafnvel gott betur.

„Við getum áfram fengið svona einstaklingsbundnar sýkingar en við erum svona að bíða eftir að það fari að slökkva í þessu, sem ætti kannski að gerast á næstu tveimur vikum eða eitthvað svoleiðis,“ segir Þórólfur í samtali við fréttastofu.

Sig­ríður Dóra Magnús­dóttir, fram­kvæmda­stjóri lækninga hjá Heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins, segist reiðu­búin að taka á móti verk­efnum göngu­deildarinnar.

Hún telur að verk­efnin verði þó tölu­vert fleiri en gengur og gerist með hina hefð­bundnu haust­flensu: „Þetta verður ansi mikið og það eru margir mjög veikir af þessari pest, en sem betur fer eru margir sem sleppa vel, enda vel varðir.“

Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að starfsmenn séu klárir í slaginn.Stöð 2

Sig­ríður Dóra telur að margir hafi nú þegar heim­sótt heilsu­gæslur á höfuð­borgar­svæðinu smitað enda smit orðið tölu­vert út­breitt í sam­fé­laginu. Fólk með ein­kenni sé þó hvatt til að leita sér ráð­legginga áður en leitað er til læknis á hefð­bundinni heilsu­gæslu.

„Við viljum að fólk hafi samband áður, fái símaráð hjá upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar eða 1700, netspjalli Heilsuveru og fái ráð. Ekki koma hingað beint,“ segir Sigríður Dóra.

Þið treystið ykkur í þetta?

„Já, við höfum tekist á við annað eins. Við munum finna fyrir þessu en við ætlum alveg að rúlla þessu upp.“


Tengdar fréttir

Heilsugæslan og Læknavaktin taka við Covid-göngudeildinni

Heilsugæslan og Læknavaktin munu taka við meginhluta af þjónustu og eftirliti með þeim sem eru veikir af Covid-19 af Landspítala frá og með deginum í dag. Yfirfærslan er í samræmi við þróun faraldursins hér á landi þar sem sífellt færri greinist alvarlega veikir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×