Uppgjafartónn og ofsóknaræði runnið á rússneska ráðamenn Heimir Már Pétursson skrifar 25. mars 2022 19:21 Joe Biden átti góða stund með bandarískum hermönnum í Jasionka í Póllandi í dag sem nýlega voru sendir til landsins til að efla herstyrk NATO í austur Evrópu. AP/Evan Vucc Uppgjafartónn og ofsóknaræði er runnið á æðstu ráðamenn Rússlands sem segja Vesturlönd hafa sameinast um að gereyða Rússlandi. Vestrænir leiðtogar heita því að standa saman þar stríðinu ljúki með sneypuför Putins. Nú er talið að minnsta kosti þrjú hundruð manns hafi fallið í árás Rússa á leikhús í Mariupol.
Leiðtogar Vesturlanda samþykktu hertar refsiaðgerðir gegn Rússum, aukinn herafla NATO í aðildarríkjunum í austur Evrópu og aukinn stuðning við Úkraínu á sögulegum fundum leiðtoga NATO, sjö helstu iðnríkja og Evrópusambandsins í gær. Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir Vladimir Putin Rússlandsforseta hafa hugsað NATO og Vesturlöndum þegjandi þörfina lengi. „Það sem Putin hefur verið að reyna, og ég hef sagt þetta frá því ég var varaforseti, er að sundra NATO. Hann vill frekar eiga við þrjátíu sjálfstæð ríki en þrjátíu ríki í samstarfi með Bandaríkjunum. Án gríns. Ég trúi því einlæglega að þetta hafi verið markmið hans frá upphafi," segir Biden. Joe Biden forseti Bandaríkjanna og Ursula van der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segja samstöðu Vesturlanda aldrei hafa verið meiri.AP/Evan Vucc Samkomulag er um að Bandaríkin og Evrópa vinni saman að því að gera Evrópu algerlega óháða gasi og olíu frá Rússlandi og vinni sameiginlega að hraðari orkuskiptum. Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir samstöðu Vesturlanda aldrei hafa verið meiri. „Við erum staðráðin í að standa saman gegn grimmilegu stríði Rússa. Þetta stríð verður hernaðarleg mistök Putin,“ segir von der Leyen. Sjá nasista í öllum hornum og skúmaskotum Samstaða Vesturlanda og áhrif viðamikilla refsiaðgerða þeirra á efnahagslíf Rússlands er greinilega farin að reyna á taugarnar í rússneskum ráðamönnum. Lavrov utanríkisráðherra greip í dag til orðaforða Göbbels áróðurmálaráðherra Þriðja ríkisins og sagði Vesturlönd stefna að gereyðingu Rússlands. Sergey Lavrov segir Vesturlönd hafa lýst yfir allsherjarstríði gegn Rússum að hætti þýskra nasista.AP/Kirill Kudryavtsev „Í dag var lýst yfir fjölþátta allsherjarstríði gegn okkur. Þetta hugtak sem var notað af nasistum í Þýskalandi er nú á vörum margra evrópskra stjórnmálamanna þegar þeir ræða hvað þeir vilja gera við Rússneska sambandlýðveldið,“ sagði Lavrov. Og Putin gerði Rússland að fórnarlambi stríðsins á fjarfundi með fulltrúum menningarlífsins í dag. Sagði Vesturlönd hafa bannað rússneska tónlist, menningu og bókmenntir. Vladimir Putin sagði á fjarfundi með fólki úr menningarlífinu í dag að Vesturlönd hafi bannað rússneska tónlist, bókmenntir og menningu.AO/Mikhail Klimentyev „Síðast var farið í stóra herðferð af þessu tagi til að eyða óæskilegum bókmenntum á tímum nasista í Þýskalandi fyrir 90 árum,“ sagði Putin. Hann minntist hins vegar ekkert á múlbindingu fjölmiðla í Rússlandi, handtökur á fólki sem vogaði sér að mótmæla honum og morð dauðasveita hans á andstæðingum hans. Örvæntingin nær einnig til vígstöðvanna því í dag sagði rússneska ITAR-TASS fréttastofan frá því að Rússar teldu sig hafa náð markmiðum sínum í hinum sérstöku hernaðaraðgerðum eða innrásinni í Úkraínu og ætluðu aðeinbeita sér að því að tryggja yfirráð yfir Donbashéraði. Enda hefur úkraínski herinn rekið Rússa á flótta víða. Nú síðast í dag frá bæ skammt vestur af Kænugarði sem Rússar höfðu hertekið áður. Stórskotaliðs-, eldflauga-, og loftárásir Rússa á borgir og bæi hafa fellt þúsundir óbreyttra borgara og skilið eftir sig gífurlega eyðileggingu. Hér stendur aldraður maður fyrir framan sprengt fjölbýlishús í borginni Kharkiv.AP/Efrem Lukatsky Mannfalll Rússa er mikið, allt að 12 þúsund manns, en þeir hafa líka skilið eftir sig töluvert mannfall og gríðarlega eyðileggingu í Úkraínu. Í dag var skýrt frá því að talið væri að um 300 manns hefðu látist í sprengjuárás Rússa á leikhús í Mariupol á miðvikudag í síðustu viku. Þar höfðu um þúsund manns leitað skjóls í loftvarnabyrgi í kjallara. Biden Bandaríkjaforseti flaug til Póllands í dag til fundar við ráðmenn þar. Hann heilsaði einnig upp á bandaríska hermenn sem voru nýlega sendir til að styrkja varnir NATO í Póllandi og snæddi pizzu með þeim. Og allir vildu hermennirnir fá sjálfu með forseta sínum.
Bandaríkin NATO Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Evrópusambandið Vladimír Pútín Tengdar fréttir Rússar segja Vesturlönd hafa lýst allsherjarstríði á hendur Rússlandi að hætti nasista Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst yfir allsherjarstríði við Rússland að hætti nasista með það að markmiði að tortíma landinu. Bandaríkin og Evrópusambandið ætla að vinna saman að því að Putin Rússlandsforseti geti ekki lengur beitt aðgangi Evrópu að rússneskri orku sem vopni í samskiptum við bandalagið. 25. mars 2022 11:58 Neyðarsöfnun til Úkraínu í gegnum listaverka uppboð Myndlistargalleríið Listval stendur nú fyrir listaverka uppboði þar sem allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Uppboðið hófst í gær og stendur til 31. mars næstkomandi. 25. mars 2022 11:30 Úkraínumenn snúa vörn í sókn Vísbendingar eru uppi um að Úkraínumönnum sé að takast að snúa vörn í sókn á sumum svæðum og setja áætlanir Rússa í enn frekara uppnám. Yfirvöld í Úkraínu segja þeim hafa tekist að hrekja Rússa til baka, meðal annars norður af Kænugarði. 25. mars 2022 06:31 Zelenskyy gagnrýnir Vesturlönd fyrir skort á vopnum Úkraínuforseti sakar Rússa um að nota fosfórsprengjur í stríðinu í Úkraínu og gagnrýnir Vesturlönd fyrir að útvega Úkraínumönnum ekki flugvélar og skriðdreka. Innrás Rússa sé aðeins byrjunin á árásum þeirra á Evrópuþjóðir nái þeir sínu fram gagnvart Úkraínu. 24. mars 2022 20:01 Rússar uppskera gerbreytt og öflugra NATO með innrásinni Framkvæmdastjóri NATO segir innrás Rússa í Úkraínu hafa breytt stefnu bandalagsins varanlega en leiðtogar þess ákváðu í dag að efla herafla sinn í austur Evrópu verulega. Rússar áskilja sér rétt til notkunar kjarnorkuvopna. 24. mars 2022 19:21 Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Fleiri fréttir Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Sjá meira
Rússar segja Vesturlönd hafa lýst allsherjarstríði á hendur Rússlandi að hætti nasista Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst yfir allsherjarstríði við Rússland að hætti nasista með það að markmiði að tortíma landinu. Bandaríkin og Evrópusambandið ætla að vinna saman að því að Putin Rússlandsforseti geti ekki lengur beitt aðgangi Evrópu að rússneskri orku sem vopni í samskiptum við bandalagið. 25. mars 2022 11:58
Neyðarsöfnun til Úkraínu í gegnum listaverka uppboð Myndlistargalleríið Listval stendur nú fyrir listaverka uppboði þar sem allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til neyðarsöfnunar Þroskahjálpar fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Uppboðið hófst í gær og stendur til 31. mars næstkomandi. 25. mars 2022 11:30
Úkraínumenn snúa vörn í sókn Vísbendingar eru uppi um að Úkraínumönnum sé að takast að snúa vörn í sókn á sumum svæðum og setja áætlanir Rússa í enn frekara uppnám. Yfirvöld í Úkraínu segja þeim hafa tekist að hrekja Rússa til baka, meðal annars norður af Kænugarði. 25. mars 2022 06:31
Zelenskyy gagnrýnir Vesturlönd fyrir skort á vopnum Úkraínuforseti sakar Rússa um að nota fosfórsprengjur í stríðinu í Úkraínu og gagnrýnir Vesturlönd fyrir að útvega Úkraínumönnum ekki flugvélar og skriðdreka. Innrás Rússa sé aðeins byrjunin á árásum þeirra á Evrópuþjóðir nái þeir sínu fram gagnvart Úkraínu. 24. mars 2022 20:01
Rússar uppskera gerbreytt og öflugra NATO með innrásinni Framkvæmdastjóri NATO segir innrás Rússa í Úkraínu hafa breytt stefnu bandalagsins varanlega en leiðtogar þess ákváðu í dag að efla herafla sinn í austur Evrópu verulega. Rússar áskilja sér rétt til notkunar kjarnorkuvopna. 24. mars 2022 19:21