Sjúkratryggingar Íslands Sigríður Halla Magnúsdóttir skrifar 11. apríl 2022 07:00 Þann 1. apríl síðastliðinn sendu Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um réttindi fólks til að sækja sér læknismeðferðir innan EES svæðisins. Í gegnum störf mín sem varaformaður Samtaka um endómetríósu þekki ég til tilvika þar sem illa hefur gengið fyrir sjúklinga með endómetríósu að fá greiðsluþátttöku frá SÍ auk þess sem ég hef persónulega reynslu af því. Miðað við reynslu mína get ég ekki annað en sett út á þessa yfirlýsingu SÍ, sér í lagi vegna þess að málið er ekki svo einfalt. Læknismeðferð sem ekki er hægt að veita hér á landi: SÍ skrifa: Ef biðtími eftir nauðsynlegri læknismeðferð hér á landi er læknisfræðilega óásættanlegur greiða Sjúkratryggingar meðferðarkostnað á heilbrigðisstofnun sem er með samning við hið opinbera, auk fargjalds og dagpeninga vegna ferðarinnar. Hver tekur ákvörðun um hvort biðtíminn sé læknisfræðilega óásættanlegur? Ég veit fyrir víst að biðtími eftir aðgerðum vegna endómetríósu er frá níu mánuðum og allt að tveimur árum. Það, er ekki ásættanlegur biðtími fyrir einstakling sem getur ekki sinnt einföldum húsverkum vegna verkja. Embætti Landlæknis hefur gefið út viðmiðunarmörk um bið eftir læknisþjónustu og samkvæmt þeim er ásættanlegur biðtími eftir aðgerð/meðferð hjá sérfræðingi 90 dagar. Einnig stendur þar “Í öllum tilvikum er átt við þann tíma sem líður frá því að sjúklingur hefur samband við veitendur heilbrigðisþjónustu út af einkennum eða frá því að þörf fyrir viðkomandi þjónustu er greind.” En hvað með okkur sem fáum ekki greiningu, er vísað frá eða lendum ítrekað á læknum sem neita því að þörf sé á aðgerð? Okkar eina von er að leita erlendis. Sjálf var ég búin að veltast um í heilbrigðiskerfinu í mörg ár, orðin óvinnufær og ófær um að sinna sjálfri mér og fjölskyldunni vegna verkja, mæði og þrekleysis. Ég var jú komin með greiningu um endómetríósu en þar sem komin voru mörg ár síðan legið var tekið úr mér átti ekki að vera möguleiki á að þessi sjúkdómur væri enn að framkalla hjá mér veikindi, og hvað þá í öndunarfærum. Sumarið 2020 var ég ekki búin að ná að draga djúpt andann í heilt ár og einu svörin sem ég fékk voru að ég væri bara svona kvíðin og þyrfti lyf við því. Þar sem ég þekki sjálfa mig töluvert betur en þeir læknar sem ég var búin að hitta ætlaði ég aldeilis ekki að fara á lyf við einhverju sem ég vissi að væri ekki að hrjá mig. Ég hafði samband við lækni í Evrópu, sendi honum sjúkrasöguna mína ásamt öllum þeim myndgreiningum sem ég hafði farið í (11 myndatökur á 17 mánuðum) og óskaði eftir ráðgjöf. Þar kom í ljós að endómetríósa var sannarlega enn að valda mér veikindum, bæði í kviðarholi og á þind! Ég bað þennan lækni um að skrifa bréf til Sjúkratrygginga Íslands, bað minn heimilislækni einnig um að gera slíkt hið sama þar sem hún var búin að standa með mér í þessu og sendi ég umsókn til SÍ um fyrir fram ákveðna læknismeðferð innan Evrópu sem ekki er hægt að framkvæma hér á landi. Ég stóð auðvitað í fullri trú um að ef hægt væri að framkvæma þessa meðferð hér á landi væri vissulega búið að því eða í það minnsta segja mér frá því! Svar SÍ var stutt og laggott “Sjúkratryggingum Íslands hefur borist umsókn um greiðsluþátttöku í læknismeðferð þinni á Bucharest endometriosis centre, Búkarest, Rúmenía. Umsóknin var tekin fyrir af Siglinganefnd þann 21.12.2020. Er það álit Siglinganefndar að meðferð sé í boði hér á landi. Umsókninni hefur því verið synjað.” Ég sendi inn fyrirspurn til að fá upplýsingar um hvar á Íslandi ég gæti fengið þessa meðferð en fékk ekki svar. Valkvæð aðgerð erlendis: SÍ skrifa: “Kjósi sjúkratryggður hins vegar að sækja meðferð erlendis til einkarekinnar heilbrigðisstofnunar gilda aðrar reglur. Sjúkratryggingar greiða í slíkum tilvikum sömu fjárhæð og þjónustan myndi kosta ef hún væri veitt hér á landi. Þá er ekki greiddur ferðakostnaður eða dagpeningar.” Nú þekki ég ekki til annara sjúklinga og þeirra meðferða sem aðrir kjósa að sækja erlendis en ég get staðfest það að við, sem höfum farið erlendis til að fá meðferð við endómetríósu gerðum það ekki til að fara í skemmtiferð til útlanda. Við fórum erlendis vegna þess eins að hér á landi var enga hjálp að fá og það getur varla skrifast á valkvæði. Þar sem þetta var eina endurgreiðslan sem ég gat farið fram á eftir að hafa kært niðurstöðu SÍ til Úrskurðarnefndar Velferðarmála ákvað ég að gera það og sendi afrit af öllum reikningum sem ég greiddi á spítalanum. Það er agalega sárt að geta eingöngu sent inn reikninga frá spítalanum því þó það hafi verið stærsti kostnaðarliðurinn þá er allt hitt fljótt að telja. Ég þurfti til dæmis að versla mikið af lyfjum í apóteki, ég þurfti að vera í landinu í 11 daga eftir aðgerð og greiða fyrir gistingu, kaupa mér mat og ferðast á milli gististaðar og spítala með leigubílum þar sem ég var með þvaglegg og skurðsár, maðurinn minn þurfti að taka sér frí frá vinnu og einnig móðir mín þar sem einhver þurfti að hugsa um heimilið og svo má auðvitað ekki gleyma fluginu. Spítalakostnaðurinn úti hljóðaði upp á 697 þúsund krónur en ég fékk það ekki allt til baka, SÍ millifærði 619.815 krónur inn á reikning minn án útskýringa. Ég veit ekki eftir hvaða verðskrá þau fara, hvaða meðferð og hvað kostar þetta á Landspítala? Hversu lengi liggur sjúklingur inni eftir þá meðferð? Ég þarf á annarri, umfangsmeiri aðgerð að halda í náinni framtíð og hverjir eru mínir valkostir? Jú, ég get beðið í nokkra mánuði eftir viðtali við sérfræðing og ef viðkomandi samþykkir að framkvæma aðgerð þá þarf ég að bíða í enn fleiri mánuði eftir henni. Þá er ekki víst að ég nái ákjósanlegum bata þar sem þekking á endómetríósu í öndunarfærum er ekki mikil á Íslandi. Ég get bókað tíma hjá eina vottaða endómetríósu sérfræðingi landsins Jóni Ívari Einarssyni á Klíníkinni. Þar er biðtíminn, samkvæmt viðmiðunarmörkum Landlæknis læknisfræðilega ásættanlegur en þar þarf ég að greiða á bilinu 700 – 1.200 þúsund krónur sem Sjúkratryggingar Íslands taka ekki þátt. Sú aðgerð myndi samt ekki ná yfir allt sem þarf að gera hjá mér þar sem lungnaskurðlæknir þarf að vera með í minni aðgerð. Það má því segja að ég væri hreinlega að kasta peningunum út um gluggann með því að fara þá leið. Ég gæti líka farið sömu leið og ég fór fyrir rúmu ári síðan, farið til annars lands og borgað 1.200 þúsund krónur fyrir utan flug og gistingu og sótt svo um endurgreiðslu hjá SÍ fyrir 619 þúsund krónum. Á Íslandi eru í gildi lög nr. 74 um réttindi sjúklinga. Í 3. gr laganna kemur fram að ,,Sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita" og ,,Sjúklingur á rétt á þjónustu sem miðast við ástand hans og horfur á hverjum tíma og bestu þekkingu sem völ er á.” Eins og framangreint sýnir eru þessi mál hins vegar ekki eins einföld og yfirlýsing SÍ gefur til kynna. Verklag SÍ þarf að vera gagnsætt og heilbrigðisyfirvöldum ber að sinna öllum sjúklingum, ekki einungis þeim sem glíma við þekktari sjúkdóma. Höfundur er varaformaður Samtaka um endómetríósu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa – vettvangur á tímamótum Laufey Elísabet Gissurardóttir Skoðun Mest lesnu orð á Íslandi Friðrik Björnsson Skoðun Ónýtir vegir – eina ferðina enn Sigþór Sigurðsson Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson Skoðun Hafnarfjörður er bær sem styður við lífsgæði eldra fólks Valdimar Víðisson Skoðun Samræmt gæðanám eða einsleit kerfi? Bogi Ragnarsson Skoðun Hallgrímur, málið snýst því miður ekki bara um kebab Snorri Másson Skoðun Samræðulist í heimi gervigreindar Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Verum öll tengd Sólrún Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hafnarfjörður er bær sem styður við lífsgæði eldra fólks Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Samræðulist í heimi gervigreindar Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Samræmt gæðanám eða einsleit kerfi? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ónýtir vegir – eina ferðina enn Sigþór Sigurðsson skrifar Skoðun 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa – vettvangur á tímamótum Laufey Elísabet Gissurardóttir skrifar Skoðun Mest lesnu orð á Íslandi Friðrik Björnsson skrifar Skoðun Tími til kominn að styðja öll framúrskarandi ungmenni Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Hvað með dansinn? Lilja Björk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Mótórhjólasamtök á Íslandi – hvers vegna öll þessi læti? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson skrifar Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir skrifar Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson skrifar Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar Skoðun Orðræða mótar menningu – og menningin mótar okkur öll Jóhanna Bárðardóttir skrifar Skoðun Eitt spilakort, betri spilamenning – er skaðaminnkandi Ingvar Örn Ingvarsson skrifar Skoðun Sameining sem eflir íslenskan landbúnað Egill Gautason skrifar Skoðun Konur sem stinga hvor aðra í bakið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Fjölbreytileiki er styrkleiki Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Það er list að lifa með krabbameini Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Um kynjafræði og pólítík Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Við fylgjum þér frá getnaði til grafar Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ef þið bara hefðuð séð heiminn út frá mínum augum: Börn & ADHD Stefán Þorri Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun 7 milljarða húsnæðisstuðningur afnuminn… en hvað kemur í staðinn? Vilhjálmur Hilmarsson skrifar
Skoðun Alþjóðlegur dagur þroskaþjálfa – vettvangur á tímamótum Laufey Elísabet Gissurardóttir skrifar
Skoðun Viðhorf sem mótar veruleikann – inngilding á orði og á borði Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson skrifar
Skoðun Mega einhverf hverfa? Ármann Pálsson,Björg Torfadóttir,Sigrún Ósk,Sigurjón Már,Halldóra Hafsteins,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir,Mamiko Dís Ragnarsdóttir skrifar