„Þessar fréttir af yfirvofandi hópuppsögn allra starfsmanna Eflingar vekja óhug. Ýmislegt orkar hér tvímælis að því er virðist og nokkuð líklegt að ef hér væri á ferð atvinnurekandi innan vébanda Samtaka atvinnulífsins sem færi fram með þessum hætti að viðbrögð verkalýðshreyfingarinnar yrðu afdráttarlaus,“ segir Friðrik Jónsson formaður BHM í nýlegum pistli sem hann birtir á Facebook-síðu sinni.
Verið að losa sig við óæskilega starfsmenn
Friðrik telur blasa við að með uppsögnunum sé Sólveig Anna Jónsdóttir, sem var að taka við stjórnartaumunum í Eflingu eftir hlé, sé að losa sig við „óæskilega starfsmenn“:
„Vissulega er það svo að ef starfsmenn t.d. í félagspólitísku umhverfi vinna beinlínis gegn lýðræðislega kjörinni forystu að þá verður eitthvað undan að láta. Hér er hins vegar beitt öðrum rökum sem hver um sig vekja upp enn frekari spurningar.“
Drífa Snædal forseti ASÍ var viðstödd starfsmannafund starfsmanna Eflingar sem fram fór á skrifstofu Eflingar og hún sagði, líkt og Friðrik, að uppsagnirnar vektu upp ýmsar spurningar.
Jafnlaunastaðall misnotaður
Friðrik segir að vísað sé í skipulagsbreytingar, breytt hæfnisviðmið og starfslýsingar við uppsagnirnar. Hann gefur ekki mikið fyrir það.
„Við í verkalýðshreyfingunni þekkjum þessar skýringar af engu öðru en að hafa þann tilgang að lækka laun. Það að verkalýðsfélag gangi fram með þeim hætti er „athyglisvert“ svo ekki sé meira sagt.“
Friðrik segir ennfremur að vísað sé í jafnlaunastaðal en hann sé yfirleitt nýttur til að hækka laun til að ná jöfnuði milli kynja. Það sé hins vegar nýlunda, svo ekki sé meira sagt, að hann sé misnotaður til að réttlæta uppsagnir.
„Í ljósi starfsöryggis starfsfólk Eflingar – ef það er svo að laun þar séu hærri en gengur og gerist – er kannski ekki óeðlilegt að þau njóti þess með bættum kjörum hvað það er greinilega hverfult að starfa á þeirra vettvangi.“
Friðrik segir fróðlegt að sjá hvort fram komi formleg tilkynning um hópuppsögn frá Eflingu.
Drífa hvetur stjórnarmenn að endurskoða ákvörðun sína
Uppfært 12:44
Drífa hefur nú hnykkt á því, á sinni Facebook-síðu, sem hún sagði í samtali við fréttastofu að afloknum starfsmannafundi Eflingar í morgun. Drífa er ómyrk í máli: „Ég hélt ekki að ég ætti eftir að upplifa þann dag að stéttarfélag segði upp öllu starfsfólki sínu á einu bretti. Þetta hefur ekki gerst áður hér á landi og mér er til efs að til sambærilegra aðgerða hafi verið gripið nokkurs staðar á Norðurlöndunum eða í öðrum löndum með frjálsa og skipulagða verkalýðshreyfingu,“ segir Drífa þar.
Hún segir nauðsynjalausar hópuppsagnir aðför að réttindum launafólks og gangi gegn atvinnu- og afkomuöryggi. Nú ríki upplausn og ljóst að mikil reynsla og þekking hverfur úr húsi: Þekking á túlkun kjarasamninga, greiðslum úr sjúkrasjóðum, fræðslusjóðum, úthlutun orlofshúsa, ráðgjöf um starfsendurhæfingu, innheimtu vangoldinna launa og allt annað sem stéttarfélög vinna að dags daglega.
„Félagsfólk Eflingar sem treystir á aðstoð síns stéttarfélags situr uppi með laskað félag,“ segir Drífa sem tekur fram að hún myndi fordæma öll fyrirtæki sem stæðu fyrir slíkum gjörðum. Hún hvetur stjórnarmenn Eflingar sem samþykktu uppsagnirnar að endurskoða ákvörðunina. ASÍ muni taka málið fyrir á sínum vettvangi.
Meðal þeirra sem starfa á skrifstofu Eflingar eru félagar í VR en fréttastofu tókst ekki að ná tali af Ragnari Þór Ingólfssyni formanni þar, nú fyrir hádegi.