Hvað hefur Framsókn gert fyrir Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 7. maí 2022 08:31 Ég á auðvelt með að skilja Reykvíkinga sem kjósa Framsókn. Framsókn hefur í gegnum árin barist heilshugar fyrir uppbyggingu landsins alls og þar er höfuðborgin engin undantekning. Við í Framsókn höfnum öfgum til hægri og vinstri, við viljum mætast á miðjunni og finna lausn á úrlausnarefnum samtímans með samvinnu að leiðarljósi. Dæmin um það sem Framsókn hefur gert fyrir Reykvíkinga verða ekki öll talin upp hér, en eftirfarandi eru nokkur dæmi: ● Framsókn kom á fót frístundakortinu. Korti sem veitir fjölda reykvískra barna tækifæri til þess að stunda þá frístund sem þeim dreymir um. Þess má einnig geta að framboð Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi kosningar vill hækka styrkinn úr 50 þúsund í 75 þúsund á næsta kjörtímabili. ● Hagsmunir barnanna okkar eru hagsmunir framtíðarinnar. Framsókn kom á lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Lög sem tryggja að börn séu í hjarta kerfisins og að aðilar sem koma að þjónustu við börn vinni saman með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Lögin fela í sér grundvallarbreytingu í barnavernd. ● Framsókn batt hnút á lausa spotta í samgöngumálum á Höfuðborgarsvæðinu með því að leiða saman sveitarfélögin á Höfuðborgarsvæðinu og ríkið til gerðar samgöngusáttmála. Tímamótasáttmála sem gerir ráð fyrir umtalsverðum framkvæmdum við innviði allra samgangna á höfuðborgarsvæðinu, stofnbrautir, göngu- og hjólastíga og bættar almenningssamgöngur. ● Framsókn hefur staðið fyrir því að hér verði byggt hús íslenskunnar sem mun opna á næsta ári. Hús íslenskunnar muna færa tungumálinu okkar nýtt og glæsilegt lögheimili í Vesturbænum. ● Framsókn kom á fót sérstökum hlutdeildarlánum til að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eignast sína fyrstu íbúð. Hlutdeildarlánin eru ólík þeim hefðbundnu fasteignalánum sem við flest þekkjum, að því leyti að ríkið lánar ákveðið hlutfall af verði þess íbúðarhúsnæðis sem tekju- og eignalitlir fyrstu kaupendur hyggjast kaupa. Hlutdeildarlánin virka þannig að kaupandi leggur til að lágmarki 5% eigið fé og tekur 75% fasteignalán hjá lánastofnun. Ríkið lánar síðan restina. Hlutdeildarlán hafa og munu koma til með að auðvelda fjölda Reykvíkinga, sem og landsmanna, að eignast eigið húsnæði. Lánin eru þó háð því að sveitarfélög eins og borgin tryggji lóðaframboð á viðráðanlegu verði til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Það vill framboð Framsóknar í borginni einmitt gera. Við í Framsókn viljum mæta mikilli eftirspurn eftir húsnæði í borginni með því að byggja meira, hraðar og fjölbreyttara húsnæði. Markmiðið er 3000 íbúðir á ári. ● Framsókn lagði fram frumvarp um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir. Sundabraut er eitt þeirra sex verkefna sem talað var um sem samvinnuverkefni og hefur Alþingi heimilað Sundabraut sem samvinnuverkefni. Lagning Sundabrautar er ein arðsamasta framkvæmd sem um getur hér á landi með um 11% innri raunvexti. Þar að auki gæti heildarakstur á höfuðborgarsvæðinu minnkað um 150 þúsund kílómetra á hverjum sólarhring við opnun Sundabrautar. Undirbúningur miðast við að framkvæmdir hefjist 2026 og Sundabrautin verði tekin í notkun 2031. Framboð Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar vill tryggja að Sundabraut verði að veruleika með sem hröðustum hætti. ● Framsókn skrifaði undir viljayfirlýsingu um að framkvæmdum við nýja þjóðarhöll í Laugardal verði lokið árið 2025. Þjóðarhöllin verður nýtt heimili fyrir landslið Íslands í inniíþróttum og notuð til æfinga fyrir íþróttafélögin í Laugardal, sem Reykvíkingar munu svo sannarlega njóta góðs af. ● Framsókn hefur sýnt vilja í verki með því að auðvelda nýbökuðum foreldrum lífið á fyrsta æviári barna og brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla með því að lengja fæðingarorlofið upp í tólf mánuði. Til þess að þetta nái fram að ganga þarf borgarstjórn líka að setja í forgang að leysa úr dagvistunarvanda barna með því tryggja dagvistunarúrræði sem taka mið af þörfum foreldra að fæðingarorlofi loknu. Framboð Framsóknar í Reykjavík fyrir komandi kosningar vill því eyða biðlistum eftir leikskólaplássum og auka sveigjanleika í opnunartíma án þess að lengja skóladag barna. Framsókn vill einnig efla dagforeldrakerfið og bjóða heimgreiðslur með barni sem bíður eftir leikskólaplássi til að brúa bilið. Mér þykir vænt um Reykjavík, hún er heimilið okkar og höfuðstaður. Það er margt sem borgin gerir vel og á skilið lof fyrir, en ekkert er svo gott að ekki megi bæta og breyta. Við í Framsókn viljum bretta upp ermar og ganga í þau verk sem eru fyrir hendi. Við í Framsókn viljum vinna í samvinnu við borgarbúa að breytingum í borginni og höfum birt stefnuskrá með þeim breytingum sem við viljum sjá. Leðjuslagur í ráðhúsinu skilar engum árangri, heldur grefur hann undan störfum borgarstjórnar. Kannanir um traust til borgarstjórnar hafa einmitt leitt þetta í ljós þar sem traust til borgarstjórnar mælist minna en til bankakerfisins. Nú er staðan þó þannig að Framsókn hefur ekki setið í borgarstjórn í 8 ár og svo sannarlega kominn tími á breytingar og aukna samvinnu á miðjunni í borgarstjórn. Til þess að Framsókn komist að í borginni þarft þú að merkja X við B 14. maí. Er ekki kominn tími á breytingar í borginni? Höfundur er formaður Ung Framsókn í Reykjavík og skipar 3. sæti á lista Framsóknar í borgarstjórnarkosningunum sem fara fram 14. maí n.k. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Sveitarstjórnarkosningar 2022 Reykjavík Framsóknarflokkurinn Skoðun: Kosningar 2022 Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar