Innlent

Lokatölur úr Mosfellsbæ: Ótrúlegt gengi Framsóknar

Ritstjórn skrifar
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Mosfellsbæ.
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Mosfellsbæ. Vísir

Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.

Á kjörskrá í Mosfellsbæ eru 9.422. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Eftir bæjarstjórnarkosningarnar árið 2018 mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og VG meirihluta í bæjarstjórn með fimm fulltrúa samtals. Viðreisn, Vinir Mosfellsbæjar, Miðflokkurinn og Samfylkingin hafa setið í minnihluta með einn fulltrúa hver.

Niðurstaðan í nótt varð eftirfarandi:

  • B-listi Framsókn: 32,2% með fjóra fulltrúa
  • C-listi Viðreisn:7,9 % með einn fulltrúa
  • D-listi Sjálfstæðisflokkur: 27,3 með fjóra fulltrúa
  • L-listi Vinir Mosfellsbæjar: 13,0% með einn fulltrúa
  • M-listi Miðflokkur: 4,9% með engan
  • S-listi Samfylking: 9,0% með einn fulltrúa
  • V-listi Vinstrihreyfingar græns framboðs: 5,7% með engan

Að neðan má sjá úrslitin í Mosfellsbæ.

Eftirfarandi náðu kjöri í bæjarstjórn:

  • Halla Karen Kristjánsdóttir (B)
  • Aldís Stefánsdóttir (B)
  • Sævar Birgisson (B)
  • Örvar Jóhannsson (B)
  • Lovísa Jónsdóttir (C)
  • Ásgeir Sveinsson (D)
  • Jana Katrín Knútsdóttir (D)
  • Rúnar Bragi Guðlaugsson (D)
  • Helga Jóhannesdóttir (D)
  • Dagný Kristinsdóttir (L)
  • Anna Sigríður Guðnadóttir (S)
Sjálfstæðisflokkurinn og VG hafa setið í meirihluta í Mosfellsbæ undanfarin fjögur ár. Sá meirihluti kolféll í kosningunum.Vísir/Vilhelm


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur úr Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur úr Múlaþingi

Þrír flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. Áhugavert verður að fylgjast með meirihlutamyndun fram undan.

Nýjustu tölur frá Vestmannaeyjum

Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.

Nýjustu tölur úr Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.

Nýjustu tölur úr Reykjanesbæ

Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.

Nýjustu tölur úr Fjarðabyggð

Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo.

Nýjustu tölur frá Akranesi

Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. 

Nýjustu tölur úr Árborg

Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.

Nýjustu tölur úr Garðabæ

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.

Nýjustu tölur frá Akureyri

Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.

Nýjustu tölur frá Hafnarfirði

Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.

Nýjustu tölur frá Reykjavík

Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×