Innlent

Lokatölur úr Reykjanesbæ: Meirihlutinn styrkti stöðu sína

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Reykjanesbæ.
Þessir ellefu fulltrúar náðu kjöri í Reykjanesbæ. Vísir

Meirihlutinn í Reykjanesbæ styrkti stöðu sína að loknum sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin fær þrjá fulltrúa, Framsókn sömuleiðis og Bein leið einn. Alls sjö fulltrúa af ellefu.

Samfylkingin, Framsóknarflokkurinn og Bein leið mynduðu sex fulltrúa meirihluta árið 2018. Sjálfstæðismenn með þrjá fulltrúa og Umbót með einn fulltrúa hafa myndað minnihluta.

Á kjörskrá í Reykjanesbæ eru 14.646 en ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Niðurstöðurnar voru eftirfarandi:

  • B-listi Framsóknar: 22,6% með þrjá fulltrúa
  • D-listi Sjálfstæðisflokks: 28,1% með þrjá fulltrúa
  • M-listi Miðflokks: 1,8% með engan
  • P-listi Pírata: 4,1% með engan
  • S-listi Samfylkingar: 22,1% með þrjá fullrúa
  • U-listi Umbót: 8,4% með einn
  • Y-listi Bein leið: 12,8% með einn

Kjörsókn í Reykjanesbæ var undir fimmtíu prósentum. Kjörsókn í Reykjanesbæ var 57 prósent árið 2018 en um var að ræða lökustu kjörsókn á landinu.

Eftirfarandi náðu kjöri í bæjarstjórn:

  • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir (B)
  • Bjarni Páll Tryggvason (B)
  • Díana Hilmarsdóttir (B)
  • Margrét Ólöf A. Sanders (D)
  • Guðbergur Ingólfur Reynisson (D)
  • Helga Jóhanna Oddsdóttir (D)
  • Friðjón Einarsson (S)
  • Guðný Birna Guðmundsdóttir (S)
  • Sverrir Bergmann Magnússon (S)
  • Margrét Þórarinsdóttir (U)
  • Valgerður Björk Pálsdóttir (Y)
Á kjörskrá í Reykjanesbæ eru 14.646.Vísir/Vilhelm

Tengdar fréttir

Nýjustu tölur úr Fjallabyggð

Sjálfstæðisflokkurinn missir einn fulltrúa frá síðustu kosningum og nær tveimur inn en Jafnaðarfólk og óháðir nældu í þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur úr Múlaþingi

Þrír flokkar fengu þrjá fulltrúa kjörna í fyrstu sveitarstjórnarkosningunum í Múlaþingi. Áhugavert verður að fylgjast með meirihlutamyndun fram undan.

Nýjustu tölur frá Vestmannaeyjum

Allt er óbreytt í Vestmannaeyjum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í ár. Meirihluti Eyjalistans og Fyrir Heimaey hélt velli í kosningunum, hefur nú fimm fulltrúa af níu en hafði áður fjóra af sjö.

Nýjustu tölur úr Ísafjarðarbæ

Ísafjarðarlistinn kom, sá og sigraði í sveitarstjórnarkosningunum í Ísafirði þetta árið. Flokkurinn náði fimm fulltrúum af níu og náði þar með meirihlutanum með því að stela fulltrúa af Sjálfstæðisflokknum.

Nýjustu tölur úr Fjarðabyggð

Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknar og óháðra heldur. Framsókn bætir við sig einum en Fjarðalistinn missir tvo.

Nýjustu tölur frá Akranesi

Framsóknarflokkurinn bætti við sig einum manni í bæjarstjórn á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum. Samfylkingin og Framsókn eru í meirihluta og halda honum örugglega. 

Nýjustu tölur úr Árborg

Sjálfstæðisflokkurinn bættir við sig tveimur fulltrúum í sveitarfélaginu Árborg og er nú með hreinan sex fulltrúa meirihluta. Framsókn bættir sömuleiðis við einum fulltrúa og hefur nú tvo. Miðflokkurinn missir sinn eina bæjarfulltrúa en Samfylking og Áfram Árborg halda sínum mönnum.

Nýjustu tölur úr Mosfellsbæ

Framsóknarflokkurinn er orðinn stærsti flokkurinn í Mosfellsbæ. Flokkurinn átti ekki fulltrúa í bæjarstjórn á síðasta kjörtímabili en fékk fjóra fulltrúa í kosningunum í nótt.

Nýjustu tölur úr Garðabæ

Sjálfstæðisflokkurinn heldur hreinum meirihluta í Garðabæ þrátt fyrir að tapa einum fulltrúa. Flokkurinn hefur sjö fulltrúa af ellefu að loknum kosningum.

Nýjustu tölur frá Akureyri

Bæjarlistinn er í lykilstöðu þegar kemur að myndun meirihluta eftir kosningarnar. Flokkurinn bætir við sig fulltrúa og er stærstur í bæjarstjórn með þrjá fulltrúa.

Nýjustu tölur frá Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn halda sex fulltrúa meirihluta í Kópavogi að loknum sveitarstjórnarkosningunum í nótt. Vinir Kópavogs, nýtt framboð, náði inn tveimur bæjarfulltrúum.

Nýjustu tölur frá Hafnarfirði

Samfylkingin bætti við sig tveimur bæjarfulltrúum í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningunum. Flokkurinn er á pari við Sjálfstæðisflokkinn en hvor flokkur er með fjóra bæjarfulltrúa.

Nýjustu tölur frá Reykjavík

Framsóknarflokkurinn er þriðji stærsti flokkurinn í Reykjavík eftir ótrúlegan árangur í kosningunum í nótt. Flokkurinn sem hafði engan borgarfulltrúa undanarin fjögur ár náði fjórum mönnum inn. Meirihlutinn í borginni er fallinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×