Innlent

Vig­dís telur næsta víst að Dagur verði borgarstjóri

Jakob Bjarnar skrifar
Vigdís í pontu í Ráðhúsinu. Hún dró ekki af sér í gagnrýni sinni á Dag B. Eggertsson borgarstjóra og meirihlutann á því kjörtímabili sem nú er að ljúka. Hún telur víst að Dagur verði eftir sem áður borgarstjóri Reykvíkinga.
Vigdís í pontu í Ráðhúsinu. Hún dró ekki af sér í gagnrýni sinni á Dag B. Eggertsson borgarstjóra og meirihlutann á því kjörtímabili sem nú er að ljúka. Hún telur víst að Dagur verði eftir sem áður borgarstjóri Reykvíkinga. vísir/vilhelm

Vigdís Hauksdóttir, fráfarandi oddviti Miðflokksins, kveður nú borgarstjórn eftir fjögur viðburðarík ár. Reynslunni ríkari. Hún gaf ekki kost á sér í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Vigdís telur víst að Dagur B. Eggertsson verði áfram borgarstjóri Reykvíkinga.

Vísir leitaði viðbragða Vigdísar við meirihlutaviðræðunum sem kynntar voru í dag, hvernig hún meti þær og þá væntanlega nýja borgarstjórn?. Henni vafðist tunga um tönn, aldrei þessu vant.

„Tjah, hvað skal segja - ég var búin að spá þessu þannig að þetta var fyrirséð. Og Dagur verður borgarstjóri.“

Heldurðu það?

„Já. Dagur er mjög sleipur. Hann byrjar á því að gera málefnasamning sem verður kominn svo langt að ekki verður hægt að snúa til baka og krefst þess svo að fá stólinn.“

Vigdís segir spurð Dag vera ref; slyngan með afbrigðum og sannfærandi, þegar svo ber undir ef það komi sé vel fyrir hann. 

„Einar Þorsteinsson væri flottur borgarstjóri,“ segir Vigdís. En hún telur að það verði ekki.

„Samúð mín er hjá kjósendum Framsóknarflokksins sem héldu og trúðu að þeir væru að kjósa breytingar á meirihlutanum í borgarstjórn.“

Þegar hún er spurð hvernig henni lítist á þann meirihluta sem nú stefnir í segist Vigdís ekki þurfa að spyrja. Hún kveður nú Ráðhúsið eftir fjögur viðburðarík ár og er spurð af því tilefni hvort hún eigi ekki eftir að sakna fólksins þar, Dags og félaga?

„Ég fer aldrei í svoleiðis pælingar þegar ég hef tekið ákvarðanir í mínu lífi. Nú eru þessi 4 ár á enda og ég reynslunni ríkari.“

Og þú hefur þá frá ýmsu að segja?

„Já, heldur betur,“ segir Vigdís. En var ekki alveg á því að deila reynslusögum við þetta tækifæri. Það bíður betri tíma. Jafnvel verður það skrifað í bók.

„Já, ég á klárlega eftir að láta skrifa ævisögu mína – eða gera það sjálf,“ segir Vigdís og þá sé ekki bara borgin ein undir, heldur allt hitt líka. En Vigdís á viðburðaríkan feril á þingi að baki, einnig.


Tengdar fréttir

Vigdís ætlar ekki aftur fram í borginni

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins í Reykjavík, mun ekki sækjast eftir því að leiða lista flokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún gagnrýnir stöðu mála innan borgarinnar en telur að gagnrýni hennar fái ekki hljómgrunn að kosningunum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×