Framsóknarflokkurinn, Píratar, Samfylkingin og Viðreisn kynntu málefnasamning meirihluta flokkanna fjögurra í borgarstjórn í gær. Ný borgarstjórn kemur saman í fyrsta skipti í dag.
„Dagurinn leggst bara vel í mig. Þetta er fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar. Það er svolítið eins og að hefja fyrsta skóladaginn í nýjum skóla, sami fiðringur í fólki,“ sagði Hildur Björnsdóttir í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hildur mun leiða Sjálfstæðisflokkinn í minnihluta í borgarstjórn á þessu kjörtímabili.
Eðli málsins samkvæmt segist hún hafa viljað vera í meirihluta, en hún væri ekki örg yfir því að nýr meirihluti hafi verið myndaður án aðkomu Sjálfstæðisflokksins.
„Nei, ég er með svo mikið jafnaðargeð. En auðvitað vildum við vera í meirihluta og við stefndum á það. Við töluðum fyrir breytingum og það er auðvitað flokkur þarna í meirihlutanum sem náði góðri kosningu á grundvelli þess að boða breytingar.“
Ertu svekkt út í Framsókn?
„Nei nei, maður getur ekki gengið að neinu sem vísu,“ sagði Hildur.
Það vakti athygli eftir kosningar að Samfylkingin, Píratar og Viðreisn mynduðu viðræðubandalag. Á sama tíma útilokaði Sósíalistaflokkurinn samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Þrengdi það möguleika Sjálfstæðisflokksins á að komast í meirihluta töluvert. Hildur segir að þetta sé pólitík sem henni hugnist ekki.
„Mér finnst það auðvitað eitthvað sem má taka til umræðu hvernig flokkar höguðu sér eftir kosningar, í þessum meirihlutaviðræðum. Þessi kúltúr. Við allavega höfum þá vinnureglu í Sjálfstæðisflokknum , við getum starfað með öllum. Við höfum það sem vinnureglu á síðasta kjörtímabili. Við styðjum öll góð mál, við vinnum með meirihluta að góðum málum. Gerum auðvitað ágreining um mál þar sem við erum ósammála,“ sagði Hildur.
„Leiðindapólítik“ ástunduð
„Þarna birtist okkur svona svolítil leiðindapólitík, þar sem að útilokað er samstarf við flokka og það eru mynduð einhver bandalög til að einangra aðra og fólk tók jafn vel ekki símann og annað. Þetta var svolítil hegðun sem við kennum börnunum okkar að sé ekki æskileg. Hún er einhvern veginn ástunduð þarna,“ sagði hún ennfremur.
Eitt af því sem nýr meirihluti ætlar sér að gera er að bæta samstarfið í borgarstjórn, þvert á flokka.
„Ég held að þarna kannski viti flokkarnir í meirihlutanum aðeins upp á sig skömmina og setja sér þessi markmið að bæta andrúmsloftið. Við höfum bara alltaf verið klár í það. Við getum talað við alla og starfað með öllum, alveg þvert á hinn pólitíska ás. Við eigum bara í góðu sambandi við fólk í öllum flokkum og verðum auðvitað algjörlega reiðubúinn í það að taka þátt í að starfsandinn lagist,“ sagði Hildur.
Hún segir nýja meirihlutasáttmálann vera svolítið eins og ný dekk undir gamlan bíl.
„Þetta er svolítið það sama og við sáum á síðasta kjörtímabili. Við sjáum að gamli meirihlutinn er svolítið að ná sínum málum í gegn. Mér finnst kannski einu fingraför Framsóknar á þessum sáttmála vera frítt í sund og strætó fyrir börn, mér finnst það vera eina sem Framsókn virðist hafa náð í gegn.“
En það á nú að fara að byggja?
„Þetta eru bara húsnæðisáform gamla meirihlutans. Þetta eru allt svæði sem gamli meirihlutinn kynnti í kosningunum og var að vinna að á síðasta kjörtímabili. Við sjáum ekki uppbyggingu í Örfirisey sem bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn töluðu fyrir. Við sjáum ekki uppbyggingu í Staðahverfi í Grafarvogi sem bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsókn töluðu fyrir,“ sagði Hildur.
Styðja hraðari uppbyggingu
Í gær kom fram að nýr meirihluti ætli sér að hraða húsnæðisuppbyggingu. Hildur segir Sjálfstæðisflokkinn styðja slík áform.
„Maður er svolítið vonsvikin að sjá að þarna er bara gamla húsnæðisáætlun gamla meirihlutans sem hefur þegar mistekist. En auðvitað vona ég að það breytist eitthvað og það verði byggt hraðar. Við munum styðja öll svoleiðis áform og standa með þeim, ekki spurning.“
Hlusta má á viðtalið við Hildi í heild sinni í spilaranum hér að ofan.