Sex íhaldssamir dómarar réttarins töldu að lög í New York sem gera kröfu um að byssueigendur sýni fram á sérstaka þörf fyrir að þeir beri vopn sín á almannafæri stæðust ekki stjórnarskrá. Clarence Thomas, höfundur meirihlutaálitsins, sagði stjórnarskrána tryggja rétt einstaklinga til þess að bera skammbyssu til sjálfsvarnar utan veggja heimilisins.
Sambærileg lög hafa verið í gildi í Kaliforníu, Havaí, Maryland, Masschusetts, New Jersey og Rhode Island sem líklegt er að verði ógilt í kjölfarið. Um fjórðungur bandarísku þjóðarinnar býr í ríkjum með slík lög, að sögn AP-fréttastofunnar.
Útlit er nú fyrir að takmarkanir á hver getur gengið um vopnaðir á almannafæri verið að miklu leyti afnumdar þar, þar á meðal í milljónaborgunum New York, Los Angeles og Boston.
Ríkisstjórn Joes Biden hafði hvatt dómarana til þess að staðfesta lögin. Stuðningsmenn þeirra héldu því fram að yrðu þau ógilt leiddi það til aukins vopnaburðar á götum úti og vaxandi tíðni ofbeldisglæpa.
Letitia James, dómsmálaráðherra New York-ríkis, fer nú yfir dóm hæstaréttar. Í tísti hét hún því að gera allt sem í hennar valdi stæði til þess að vernda New York-búa fyrir byssuofbeldi og verja „skynsöm“ skotvopnalög ríkisins.
We are currently reviewing the decision from the Supreme Court on New York's ability to regulate who can carry firearms in public.
— NY AG James (@NewYorkStateAG) June 23, 2022
But we will continue to do everything in our power to protect New Yorkers from gun violence and preserve our state's common sense gun laws.
Fyrsta stóra byssumálið í áratug
Byssuofbeldi hefur verið ofarlega á baugi í Bandaríkjunum undanfarnar vikur eftir hrinu mannskæðra skotárása. Nítján börn og tveir kennarar voru skotnir til bana í skotárás í grunnskóla í bænum Uvalde í Texas í síðasta mánuði og tíu viðskiptavinir verslunar í Buffalo nokkrum dögum fyrr.
Bandaríkjaþing eru nú sagt nær því að ná samkomulagi um ný lög til að reyna að koma í veg fyrir skotárásir af þessu tagi í fyrsta skipti í þrjátíu ár.
Dómur hæstaréttar nú er sá þýðingarmesti í skotvopnamálum frá árinu 2010 þegar dómarar skáru úr um að allir Bandaríkjamenn hefðu rétt á að hafa skotvopn á heimili sínu til sjálfsvarnar. Málið nú snerist um hvort sá réttur næði út fyrir veggi heimilisins.
Áður hefur rétturinn þó komist að þeirri niðurstöðu að það samræmist stjórnarskrá að takmarka vopnaburð á viðkvæmum stöðum, þar á meðal í stjórnarbyggingum og skólum. Þá sé í lagi að takmarka vopnaeign fanga og geðsjúkra.