Innlent

Flug­vél nauð­lenti í Tungudal

Bjarki Sigurðsson skrifar
Vélin tók á loft klukkan tuttugu mínútur í sjö í kvöld. 
Vélin tók á loft klukkan tuttugu mínútur í sjö í kvöld.  ISAVIA

Lítil flugvél nauðlenti í um tuttugu mínútna fjarlægð frá Akureyrarflugvelli í kringum sjöleytið í kvöld. Tveir voru um borð og eru þeir báðir óslasaðir.

RÚV greinir frá þessu en samkvæmt frétt þeirra tók vélin á loft frá flugvellinum klukkan tuttugu mínútur í sjö í kvöld. Klukkan sjö hafi vélin síðan sent frá sér neyðarkall.

Flugturn flugvallarins kallaði út aðstoð í gegnum neyðarlínuna og var slökkvilið kallað til. Nú er unnið að því að staðsetja vélina sem lenti á óbyggðu svæði í tuttugu mínútna fjarlægð frá flugvellinum.

Uppfært klukkan 21:21: 

Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir komnir í þyrlu og verið er að flytja þá frá slysstað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×