Innlent

Jón Bald­vin segir boðið hafa borist of seint

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Jón Baldvin vilji „fyrirbyggja misskilning.“
Jón Baldvin vilji „fyrirbyggja misskilning.“ Vísir/Vilhelm

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra sendi frá sér fréttatilkynningu rétt í þessu þar sem hann segir forsetaembættið fara með rangt mál þegar það segir hann hafa afþakkað boð á hátíðarsamkomu um sjálfstæði Eystrasaltsríkja.

Í gær greindi Fréttablaðið frá því að stjórnvöld og Háskóli Íslands hafi ætlað að sleppa því að bjóða Jóni Baldvin Hannibalssyni á hátíðarsamkomu í tilefni þess að rúmlega þrjátíu ár séu síðan Ísland hafi á ný tekið upp stjórnmálasamband við Eystrasaltslöndin þrjú.

Forsetaembættið hafnaði þessum ásökunum og sagði í yfirlýsingu Jón Baldvin hafa fengið boð „sama dag og aðrir boðsgestir eins og ætíð stóð til, með svipuðum fyrirvara og gengur og gerist um viðburði af þessu tagi. Auðvelt hefði verið fyrir blaðið að sannreyna þetta með einu símtali. Auk þess er rétt að leiðrétta þá rangfærslu að viðburðurinn fari fram í Háskólabíói. Hið rétta er að hann fer fram í hátíðarsal Háskóla Íslands.“

Öll boð hafi verið send út á mánudegi fyrir viðburð sem halda átti á föstudegi.

Í samtali við Fréttablaðið sagði Sighvatur Björnsson að Jón Baldvin hafi ekki fengið boð á viðburðinn en hafi svo borist slíkt fjórum dögum fyrir viðburðinn.

Um þetta segir Jón Baldvin boðið hafa borist sér svo seint að hann hafi ekki geta þegið það þar sem hann sé staddur erlendis.

„Skýringin á fjarveru minni er einföld og auðskilin. Hvergi í dagskrá heimsóknarinnar er gert ráð fyrir nærveru fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands. Ekki einu sinni í Höfða, þar sem upphafið að viðurkenningu alþjóðasamfélagsins á endurheimtu sjálfstæðis Eystrasaltsþjóða, átti sér stað, að frumkvæði hans,“ segir Jón Baldvin í yfirlýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×