Lífið

Ný innsetning íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða

Elísabet Hanna skrifar
Ttalið frá vinstri: Eyjólfur Eyjólfsson hjá Axis, Árni Grétarsson hjá GÁ húsgögnum, Geir Hilmar Oddgeirsson hjá Grein, Ninja Ómarsdóttir hjá Brákarey, Brynjar Sveinbjörnsson hjá Steinkompanýinu, Steve Christer hjá Studio Granda, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Stefán Sigurðsson hjá Fólk Reykjavík, Magnús J. Magnússon hjá Sólóhúsgögnum, Örn Þór Halldórsson hjá Random Ark, Birkir Snær Einarsson hjá Sólóhúsgögnum, Ástríður Birna Árnadóttir hjá Arkitýpa, Aðalheiður Dóra Þórólfsdóttir hjá Zetia og Zenus og Ásgeir Freyr Ásgeirsson hjá Zetia og Zenus.
Ttalið frá vinstri: Eyjólfur Eyjólfsson hjá Axis, Árni Grétarsson hjá GÁ húsgögnum, Geir Hilmar Oddgeirsson hjá Grein, Ninja Ómarsdóttir hjá Brákarey, Brynjar Sveinbjörnsson hjá Steinkompanýinu, Steve Christer hjá Studio Granda, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Stefán Sigurðsson hjá Fólk Reykjavík, Magnús J. Magnússon hjá Sólóhúsgögnum, Örn Þór Halldórsson hjá Random Ark, Birkir Snær Einarsson hjá Sólóhúsgögnum, Ástríður Birna Árnadóttir hjá Arkitýpa, Aðalheiður Dóra Þórólfsdóttir hjá Zetia og Zenus og Ásgeir Freyr Ásgeirsson hjá Zetia og Zenus. BIG

Formleg opnun nýrrar innsetningar íslenskra húsgagna og hönnunar í suðurstofu Bessastaða fór fram í gær að viðstöddum forseta Íslands, fulltrúum Samtaka iðnaðarins, hönnuðum og framleiðendum.

Árið 2019 var í fyrsta skipti ein stofa Bessastaða helguð íslenskri hönnun og húsgagnagerð. Þetta er því í annað sinn sem slík innsetning fer fram. Íva Rut Viðarsdóttir, innanhússarkitekt, valdi húsgögnin og munina úr þeim tillögum sem bárust frá hönnuðum og framleiðendum og skipulagði rýmið. 

Við valið var haft í huga að sýna þá miklu fjölbreytni sem einkennir íslenskt handverk og hönnun, auk þess sem litið var til sjálfbærni og hringrásarhugsunar. Áformað er að þessi nýja innsetning vari í þrjú ár samkvæmt fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. Af þeim munum sem valdir voru í rýmið eru fjórir frá FÓLK Reykjavík.

Skjáskot af heimasíðunni sem opnast við skönnun á QR kóðanum.Skjáskot/Samtök iðnaðarins

Samstarfið gekk vel

„Samstarfið við forseta Íslands hefur verið ánægjulegt og einkennst af áhuga og velvilja. Það á að vera sjálfsagt mál að íslensk hönnun og húsgögn sjáist í öllum opinberum byggingum hér á landi og þá ekki síst þar sem almenningur og erlendir gestir fara um,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

„Við eigum að vera stolt af því sem er hannað og framleitt hér á landi og hvetja til frekari verka á því sviði. Í auknum mæli er horft til umhverfisverndar og kolefnisfótspors og þar standa íslenskir framleiðendur framarlega.“

Gestir Bessastaða geta í framtíðinni nálgast upplýsingar á íslensku og ensku um húsgögnin og munina með því að skanna inn QR-kóða.


Tengdar fréttir

Mikilvægt að skapa virði úr skapandi greinum

Felgur, loftpúðar, lök og fleiri ónýtir hlutir fengu framhaldslíf í nýrri íslenskri hönnun sem hönnunarmerkið Fólk kynnti á HönnunarMars frá þeim sjö hönnuðum sem þau starfa með.

Hönnuðu gólfpúða úr loftpúðum ónýtra bíla

Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir, sem mynda hönnunartvíeykið Studio Flétta, sýndu á HönnunarMars nýja heimilispúða sem fara í sölu í haust. Verkefnið er hluti af hringrásarvænni hönnun þar sem úrgangi er breytt í verðmæti.

Bessastaðir opnir almenningi á laugardaginn

Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á laugardaginn. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid munu þar taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13 og 16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.